Fréttablaðið - 12.04.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 12.04.2022, Blaðsíða 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það er varla hægt að segja „verið vel- komin“ á tákn- rænni hátt en þessar pólsku mæður gerðu. Eftir vinda- saman vetur er plast og rusl úti um allt í kringum þéttbýli. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Á meðan rússneskir hermenn hafa afhjúpað hina verstu birtingar- mynd mannlegrar grimmdar með stríðsglæpum sem hægt og bítandi eru afhjúpaðir á sviðnum slóðum þeirra í Úkraínu, hafa nágrannar þeirra í Pól- landi sýnt hvernig landamæri og tungumál aðskilur ekki fólk sem um sárt á að binda. Hryllilegar frásagnir af hatursfullum fram- gangi Rússa eru þess eðlis að erfitt er fyrir almenning í friðsælu landi að meðtaka. Aftökur almennra borgara og jafnvel barna, vanvirðing, eyðilegging eigna og það sem ómögulegt er að skilja, nauðganir, jafnvel á stúlkum á barnsaldri. Það tekur á að heyra slíkar fréttir og munu Rússar vonandi þurfa að svara til saka, en málið er til rannsóknar hjá Alþjóðasakamáladóm- stólnum í Haag og nýtur fordæmalausrar sam- stöðu aðildarríkja dómstólsins. En í þeirri holskeflu illsku sem á úkraínsku þjóðinni dynur tekst nágrönnum hennar í Pól- landi að endurvekja trúna á mannkynið með viðbrögðum sínum við flóttamannastraumn- um sem flæðir nú yfir landamæri þeirra. Frá upphafi stríðsins í febrúarlok hafa Pól- verjar tekið á móti um tveimur og hálfri milljón úkraínskra flóttamanna. Engin önnur þjóð hefur tekið á móti viðlíka fjölda en fyrir voru þar um ein milljón Úkraínumanna sem flúið hafði eftir yfirtöku Rússa á Krímskaga 2014. Blaðamenn Fréttablaðsins dvöldu á dögun- um í landamæraþorpinu Medyka í suðaustur- hluta Póllands og fundu skýrt og greinilega samtakamátt þjóðarinnar í móttöku nágranna sinna. Pólskar fjölskyldur hafa opnað heimili sín fyrir ókunnugum og tekið að sér margvísleg sjálfboðastörf. Samkenndin sem þjóðin í heild hefur sýnt hefur snert við heimsbyggðinni og sem dæmi varð ljósmynd af tómum barna- vögnum sem pólskar mæður höfðu skilið eftir við landamærin, fyrir allslausar úkraínskar mæður með börn sín, dreift víða um veraldar- vefinn. Það er varla hægt að segja „verið vel- komin“ á táknrænni hátt en þessar pólsku mæður gerðu. Blaðamenn Fréttablaðsins sögðu sjálfsprottna aðstoð pólsku þjóðarinnar hafa verið mun meira áberandi en starfsemi skipu- lagðra alþjóðlegra hjálparsamtaka. Það er einmitt með þeirri staðreynd sem löskuð trúin á mannkynið verður endurreist. Þegar um eitt hundrað flóttamenn voru í skyndi fluttir frá Ásbrú á Hótel Sögu stóð ekki á viðbrögðum nágranna þeirra í Vesturbænum sem skiptu með sér verkum til að létta fólkinu lífið á meðan á dvöl þeirra stendur. Í þessum ljótleika öllum er nefnilega, sem betur fer, töluvert um falda fegurð. ■ Hin falda fegurð Rúmlega sjö þúsund og fjögur hundruð manns tilheyra samfélaginu Plokk á Íslandi á Facebook og þessi hópur er kominn á fullt í að plokka í sínu umhverfi. Eftir vindasaman vetur er plast og rusl úti um allt í kringum þéttbýli. Áríðandi er að það komist úr umhverfinu áður en það hverfur á haf út eða grefst í náttúruna. Flestir sem tilheyra Plokk-síðunni plokka nánast allt árið um kring en Plokk á Íslandi skipuleggur Stóra plokkdaginn einu sinni á ári. Hann er hugs- aður sem upphaf plokk-tímabilsins, vitundarvakn- ing og hvatning. Tímasetningin hentar vel því þá er vorið komið, snjór horfinn úr byggð og plast og pappírsrusl bíður eftir því að verða bjargað og sent á viðeigandi stofnun. Langflest sveitarfélög landsins taka þátt og Plokk á Íslandi er með sjálfboðaliða um allt land sem eftir fremsta megni stýra og styðja þá sem vilja taka þátt en fegurðin í plokkinu felst einna helst í því hversu einfalt og sjálfbært það er í raun og veru að taka þátt. Því fylgir góð og heilbrigð hreyfing, útivera og félagsskapur. Plokk á Íslandi hvetur fyrirtæki, stofnanir, félaga- samtök og einstaklinga til að láta plokkið sig varða, taka þátt og hvetja aðra til þátttöku. Allir mega stofna viðburði á Stóra plokkdaginn á samfélagsmiðlum, tengja þá við Plokk á Íslandi, fá merkingar frá Plokk á Íslandi. Hægt er að nálgast merki plokkdagsins á plokk.is og er öllum heimilt að nota það sér að kostnaðarlausu. Sveitarfélög landsins auglýsa sína viðburði og hvernig hægt er að bera sig að með frágang, flokkun eða urðun á hverjum stað fyrir sig. Á Facebook-svæðinu Plokk á Íslandi má gjarnan deila sigrum okkar á ruslinu með jákvæðum fréttum af árangri baráttunnar allt árið um kring. Vertu með á Stóra plokkdeginum 24. apríl næst- komandi. ■ Stóri plokkdagurinn, vertu með Einar Bárðarson sjálf boðaliði hjá Plokk á Íslandi 80’s í fókus benedikt@frettabladid.is Hvað hefur breyst Davíð Scheving Thorsteinsson andaðist á föstudaginn og lands- menn minnast hans með hlýju. Davíð varð heimsþekktur á einni nóttu hér á landi þegar hann kom heim árið 1980 og vogaði sér að fara inn í landið með bjórkippu sem þá var stranglega bannað enda var Íslendingum ekki treystandi til að fara með slíkan drykk. Síðan eru liðin fjölmörg ár en drykkurinn forboðni er enn á milli tannanna á fólki og varla enn leyft að koma inn í landið með drykkinn góða. Allavega ekki þær tegundir sem Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins selur ekki. Karpað um áfengi Áfengi og eldri kynslóðir Íslend- inga eru ekki hamingjusamt par. Eldri Íslendingar kunnu ekki að fara með áfengi og drukku sig reglulega dauðadrukkna þegar f logið var með Arnarflugi eða rík- isf lugfélaginu. Nú í dag er staðan önnur og ungt fólk vill bara Joe & The Juice eða hollan morgun- mat fyrir f lug. Sumir jafnvel geta fengið sér einn bjór og hætt, ólíkt fyrri kynslóðum sem ultu inn í vélarnar. Krafan er að geta fengið sér bjór hvar og hvenær sem er án afskipta ríkisins. Það er karpað um áfengi í sölum Alþingis en ungt fólk spyr sig: Hefur eitthvað breyst síðan Davíð Scheving gekk inn í landið með bjórkippu fyrir fjörutíu og tveimur árum? ■ SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.