Fréttablaðið - 12.04.2022, Síða 8
Dvorníkov tók þátt
í Tsjetsjeníustríðinu
árin 2000 til 2003 sem
skildi höfuðborgina
Grosní eftir í rústum
vegna loftárása.
Smart modular á Íslandi
Klettatröð 2 | 235 Reykjanesbær | S. 7839211 | info@icesmartmodular.net
Þessa dagana erum við að vinna að því að flytja
húsin okkar frá verksmiðju ytra til Íslands.
Eftir er eitt hús, 72 fm. sem er eins og er óselt.
Eins og markaðurinn er nú þá fara verð á vörum
úr timbri hækkandi. Þess vegna verða svona tækifæri
ekki í boði, á næstunni að minnsta kosti, enda hefur
hingað til stór hluti timburs komið frá Rússlandi
í hús sem framleidd eru í Austur-Evrópu.
• Gólfhiti og hægt að tengja við hitaveitu
• Allar lagnir eru til staðar
• Allar raflagnir eru til staðar
• Vatnsgólfhiti er í öllum rýmum
• Öll ljós tenglar og rofar eru til staðar
• Allir gluggar hurðir og innihurðir eru til staðar
• Eldhús afhendist fullbúið með vandaðri innréttingu með eyju
• Einangruð gólf eru í húsunum og engin þörf á að steypa botnplötu
• Húsin eru einangruð með steinull
150mm í útveggjum - 200mm í loftum og gólfum
Smart modular á Íslandi kynnir:
Einstakt tækifæri!
72 m2 lykilklárt hús - heilsárshús - samsett úr tveim einingum.
Vandað tilbúið hús sem er híft á undirstöður, tengt og er svo klárt til notkunar, í flestum tilfellum samdægurs.
UPPSETNING INNIFALIN Í VERÐI
kristinnhaukur@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Rússneska sjónvarpskon-
an Marína Ovsíjanníkova sem ögr-
aði Vladímír Pútín og valdhöfum
í Kreml í beinni útsendingu hefur
verið ráðin til þýska dagblaðsins
Die Welt. Blaðið tilkynnti þetta í
gær.
Hin 44 ára gamla Ovsíjanníkova
gekk inn í miðjan fréttaupplestur
á stöðinni Channel One þann 14.
mars síðastliðinn með spjald sem
á stóð: „Stöðvið stríðið. Ekki trúa
áróðrinum. Hérna er logið að þér.“
Fékk hún heimsathygli fyrir hug-
rekki sitt en var handtekin og sekt-
uð um því sem samsvarar tæplega
35 þúsund krónum.
Ovsíjanníkova gæti þó enn átt
yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi
fyrir að brjóta ný lög um „dreifingu
falskra upplýsinga“. Emmanuel
Macron Frakklandsforseti bauð
henni hæli en hún hafnaði boðinu
og vildi ekki yfirgefa Rússland.
Í yfirlýsingu Die Welt kemur
fram að Ovsíjanníkova muni skrifa
frá bæði Rússlandi og Úkraínu og
einnig koma fram á sjónvarps-
stöðinni sem blaðið rekur. Hún
sagði upp hjá Channel One þremur
dögum eftir útsendinguna frægu.
„Die Welt stendur fyrir það sem
Úkraínumenn eru að berjast svo
hetjulega fyrir núna, frelsið. Ég lít
á það sem hlutverk mitt sem blaða-
manns að verja þetta frelsi,“ sagði
Ovsíjanníkova í tilkynningunni. ■
Ovsíjanníkova ráðin til þýsks dagblaðs
kristinnhaukur@frettabladid.is
FRAKKLAND Valérie Pécresse, for-
setaframbjóðandi Repúblikana,
hins hefðbundna stórflokks á hægri
vængnum í Frakklandi, hefur hafið
söfnun fyrir kosningaútgjöldum
sínum. Þar sem hún náði ekki 5 pró-
sentum hlýtur hún ekki ríkisstyrk
upp á nærri helming kostnaðarins.
„Ég biðla til allra þeirra sem kusu
mig og einnig til allra Frakka sem
er annt um valkosti í stjórnmálum
og tjáningarfrelsið,“ sagði Pécresse í
yfirlýsingu. „Fjárhagsleg staða fram-
boðsins er alvarleg.“
Persónulegar skuldir frambjóð-
andans eru 5 milljónir evra, eða
rúmlega 700 milljónir króna, eftir
hið misheppnaða framboð. Heildar-
skuldir framboðsins og f lokksins
eru 8,5 milljónir evra.
Repúblikanar, f lokkur Jacques
Chirac og Nicholas Sarkozy, hafa
aldrei fengið aðra eins útreið í for-
setakosningum. Fjórir frambjóð-
endur náðu 5 prósenta markinu.
Emmanuel Macron og Marine Le
Pen fara í aðra umferð 24. apríl.
Einnig Jean-Luc Mélenchon og Éric
Zemmour. ■
Í skuldafeni eftir afhroð í kosningum
Mótmælin vöktu heimsathygli.
MYND/SKJÁSKOT
Pécresse náði ekki þröskuldinum
fyrir fullum ríkisstyrk.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Alexander Dvorníkov mun
hafa yfirumsjón með stríðs-
rekstri Rússa í Úkraínu en
hann á langan feril að baki.
jonthor@frettabladid.is
RÚSSLAND Síðustu daga hafa stærstu
miðlarnir vestanhafs greint frá
skipun Vladímírs Pútíns Rússlands-
forseta á nýjum hershöfðingja sem
hefur umsjón með stríðinu í Úkra-
ínu. Þessi nýi hershöfðingi er hinn
sextugi Alexander Dvorníkov en
hann hefur áður séð um stór verkefni
á vegum rússneska hersins.
Bandaríska fréttastofan CNN lýsir
Dvorníkov sem „herforingja með
afrekaskrá hlaðna miskunnarleysi“.
Þegar Rússar veittu Bashar al-Assad
Sýrlandsforseta, ríkisstjórn hans
og bandamönnum þeirra stuðning
í Sýrlandsstríðinu var Dvorníkov
yfirherforingi.
Dvorníkov var í Sýrlandi frá sept-
ember 2015 til júní 2016. Pútín taldi
Rússa og sýrlenska stjórnarherinn
vera að missa stjórn á ástandinu og
var Dvorníkov sendur til að sporna
við þeirri þróun.
Á meðan hann var við stjórn-
völinn hjálpaði hann sýrlenskum
stjórnvöldum að ná aftur yfirráðum
í borginni Aleppo, en austurhluti
hennar var á valdi stjórnarand-
stæðinga. Til að ná markmiðinu var
notast við lofthernað og stórskota-
vopnum og sprengjum beitt sem
bitnaði meðal annars á fjölmennum
hverfum, en mannfall óbreyttra
borgara var mikið í árásunum, sem
voru fyrst og fremst á vegum Rússa.
Dvorníkov á sér langa sögu með
rússneska hernum, sem má rekja
til þess þegar hann var flokksstjóri
lítillar herdeildar árið 1982.
Á árunum 2000 til 2003 tók
Dvorníkov þátt í bardögum rúss-
neska hersins í Kákasus, meðal ann-
ars í síðara Tsjetsjeníustríðinu, sem
skildi höfuðborgina Grosní eftir
í rústum vegna mikilla loftárása
Rússa.
Í umfjöllun BBC um Dvorníkov
eru aðferðir rússneska hersins í
Maríupol bornar saman við þær í
Sýrlandi og Tsjetsjeníu, en þær eru
sagðar svipaðar og lýst sem harka-
legum.
Árið 2016 hlaut Alexander Dvorní-
kov titilinn Hetja Rússneska sam-
bandsríkisins frá stjórnvöldum í
Kreml, en það var fyrir vinnubrögð
hans í Sýrlandi enda taldi Pútín
árangur Rússa í stríðinu góðan.
CNN segir að ráðning hans sem
hershöfðingja virðist vera til að
tækla vandamál innan rússneska
hersins, sem sé skipulagsleysi. ■
Hinn nýi hershöfðingi Rússa með
afrekaskrá hlaðna miskunnarleysi
Dvorníkov (til
vinstri) hefur
áður séð um
stór verkefni
á vegum rúss-
neska hersins.
MYND/SKJÁSKOT
jonthor@frettabladid.is
BRETLAND Í gær var maður sak-
felldur fyrir að myrða breska þing-
manninn Sir David Amess, með því
að stinga hann meira en tuttugu
sinnum í október í fyrra. Maðurinn
var jafnframt sakfelldur fyrir að
skipuleggja hryðjuverk en hann
mun hljóta dóm á morgun, mið-
vikudag.
Maðurinn sem um ræðir er hinn
26 ára gamli Ali Harbi Ali, en honum
er lýst sem íslömskum ofstækis-
manni. Hann sagði gjörðir sínar
vera hefnd fyrir stuðning Amess við
loftárásir í Sýrlandi.
Morðið átti sér stað á kjósenda-
fundi í kirkju, líkt og tíðkast í Bret-
landi, þar sem þingmenn ræða við
kjósendur sína undir fjögur augu.
Eftir morðið mun Ali hafa vonast til
að lögregla mætti á svæðið og skyti
hann til bana, en úr því varð ekki.
Að lokum gaf hann sig fram eftir að
systir hans grátbað hann um það.
Ali Harbi Ali hafði áætlað árásir á
fleiri þingmenn. ■
Sakfelldur fyrir að
myrða þingmann
Amess var myrtur í október í fyrra.
8 Fréttir 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ