Fréttablaðið - 12.04.2022, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 12.04.2022, Blaðsíða 44
Scheffler hefur tekið þátt í sex golfmótum síðustu tvo mánuði og unnið fjögur þeirra. Íslenska liðið náði snemma að brjóta ísinn í 4-0 sigri á Tékkum í haust, sem gerði útslagið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Hvert stig skiptir máli Jafntefli færi langt með að tryggja íslenska liðinu að minnsta kosti annað sæti riðilsins og um leið þátttöku- rétt í umspilinu en hvert stig gæti skipt sköpum í þeim málum. Liðin níu sem lenda í öðru sæti í sínum riðlum fara áfram í umspil þar sem þrjú stigahæstu liðin í undan- keppninni komast beint áfram á annað stig um- spilsins. Hérna fara hlutirnir að flækjast. Stigafjöldi liða úr riðlinum og úrslit í umspilinu sameinast eftir umspil og fara tvö stigahæstu liðin áfram en stigalægsta liðið fer í alþjóð- legt umspil á næsta ári. 20 Íþróttir 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURÍÞRÓTTIR 12. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR EXTRA ÓDÝR PÁSKAEGG Barónsstígur • Reykjanesbær • Akureyri *Sýna þarf kvittun samdægurs. Gildir aðeins fyrir páskaegg frá Nóa, Freyju og Góu. Gildir ekki um páskegg nr. 1. Þú færð ódýrara páskegg hjá okkur, annars endur- greiðum við mismuninn* Gildir til 18.apríl. Kvennalandsliðið mætir Tékklandi í mikilvægum leik í undankeppni HM 2023 ytra í dag. Íslenskur sigur fer langt með að tryggja Íslandi sæti í seinni hluta umspilsins hið minnsta og um leið úrslitaleik gegn Hollandi í haust upp á sæti á HM. Tékkneskur sigur kæmi Íslandi í vandræði. kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI „Við vitum það allar hversu mikilvægur þessi leikur er og við erum tilbúnar til þess að leggja allt í sölurnar í dag,“ segir Gunn- hildur Yrsa Jónsdóttir, sem hefur borið fyrirliðabandið til þessa í undankeppninni, aðspurð hvernig leikmannahópurinn nálgist leikinn í dag. Íslenska kvennalandsliðið hefur verið áður í þessum sporum fyrir leik gegn Tékklandi sem fór úrskeiðis en Stelpurnar okkar virð- ast einbeittar og tilbúnar í slaginn. „Þær eru með gott lið, þéttar til baka en við þurfum að einbeita okkur að okkar leik því við ætlum okkur að taka stigin þrjú,“ segir Gunnhildur enn fremur. Íslenska kvennalandsliðið mætir því tékkneska í Teplice í dag þar sem sigur fer langt með að tryggja Íslandi að minnsta kosti umspils- sæti í undankeppni HM 2023 sem fer fram í Ástralíu og á Nýja-Sjá- landi á næsta ári. Íslenska kvenna- landsliðið hefur aldrei komist í lokakeppni HM en er með örlögin í eigin höndum þegar liðið á þrjá leiki eftir í undankeppninni. Að sama skapi eru Tékkar að berj- ast fyrir lífi sínu í undankeppninni og á Þorsteinn Halldórsson, þjálfari liðsins, von á því að Tékkarnir reyni að byrja af krafti sem íslenska liðið þurfi að standast. „Við gerum okkur grein fyrir því að Tékkarnir þurfa að vinna þenn- an leik og eigum von á því að þær reyni að pressa á okkur og reyna að knýja fram mistök af okkar hálfu. Við þurfum að vera viðbúin öllu sem hægt er að undirbúa og vera tilbúin að bregðast við því hvað Tékkarnir gera. Þessi leikur mun krefjast mikillar þolinmæði af okkar hálfu.“ Tékkneska liðið er erfitt heim að sækja og var nálægt því að vinna Evrópumeistara Hollands undir lok síðasta árs. Tékkar komust tvisvar yfir í leiknum en Hollend- ingar björguðu stigi á lokamínútu leiksins. Þá áttu Stelpurnar okkar í meiri vandræðum með tékkneska liðið ytra en hér heima í síðustu undan- keppni, þó að leikirnir hafi báðir endað með jafntefli. „Tékkar eru eru sterkar varnar- lega. Spila yfirleitt mjög þéttan og skipulagðan varnarleik, notast við lágpressu í varnarleik sínum. Þegar þær eru með boltann halda þær honum vel, þolinmóðar og með sterka leikmenn fram á við sem eru að spila í háum gæðaf lokki. Heilt yfir er þetta f lott fótboltalið, góðar í sínum styrkleikum og hafa verið að sýna það undanfarið með góðum úrslitum,“ segir Þorsteinn, aðspurður við hverju megi búast af tékkneska liðinu í dag. ■ Sigur í dag yrði gulls ígildi á vegferð liðsins til Eyjaálfu kristinnpall@frettabladid.is GOLF Í f jórða sinn á innan við tveimur mánuðum var það Scottie Scheffler sem stóð uppi sem sigur- vegari á PGA-mótaröðinni um helgina. Kylfingurinn sem var ekki búinn að vinna mót í fyrstu sjötíu tilraununum á sterkustu mótaröð heims er kominn í efsta sæti heims- listans og virðist ekkert geta stöðv- að skilvirkan leik hins 25 ára gamla Schefflers. Sjálfur virðist hann að einhverju leyti hissa á velgengninni og viðurkenndi eftir mót að hafa brotnað niður og grátið á sunnu- dagsmorguninn vegna tilfinning- anna sem fylgdu vissunni um að risamótstitill væri innan seilingar. Scheffler gerði í raun aðeins ein mistök allt mótið og það á síðustu flötinni þar sem hann fjórpúttaði af stuttu færi. Það kom ekki að sök þar sem óaðfinnanleg spilamennska Scheff lers fram að því þýddi að hann var með sex högga forskot á næsta kylfing. Um leið varð Scheff- ler níundi yngsti kylfingurinn í sög- unni til að vinna Masters-mótið og fékk að launum 2,6 milljónir dala. Það fullkomnaði ótrúlegar átta vikur þar sem Scottie hefur skotist upp á stjörnuhimininn með því að vinna fjögur mót af þeim sex sem hann tók þátt í eftir að hafa beðið í þrjú ár eftir fyrsta sigrinum. ■ Skotist hratt upp á stjörnuhimininn Scheffler vann risamót í fyrstu til- raun sem efsti maður heimslistans í golfi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.