Fréttablaðið - 03.05.2022, Síða 14

Fréttablaðið - 03.05.2022, Síða 14
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, „Fasteign er oftar en ekki ein stærsta fjárfesting og verðmætasta eign einstaklinga og fyrirtækja. Til að hámarka ávinning af þeirri fjárfestingu er mikilvægt að haga umsjón með fasteigninni á skipu- legan hátt þannig að ástand, ásýnd og virkni eignarinnar leiði af sér að eignin sé í senn arðbær fjár- festing fyrir eigendur og hentug og eftirsóknarverð aðstaða fyrir notendur hennar,“ segir Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Daga, og heldur áfram: „Margir fasteignaeigendur eiga það hins vegar til að nálgast við- hald fasteigna sem viðbragðsað- gerðir við ófyrirséðum aðstæðum í stað þess að snúa blaðinu við og fara í fyrirbyggjandi viðhald með skipulögðum hætti.“ Sérsníða lausnir í samráði við viðskiptavini Dagar eru leiðandi fyrirtæki á sviði fasteignaumsjónar og bjóða upp á fjölbreytta þjónustu á því sviði. Hjá Dögum starfa um 750 manns á starfsstöðvum víðs vegar um landið með fjölbreyttan bakgrunn. „Við höfum langa og víðtæka reynslu, öflugan hóp starfsfólks og net samstarfsaðila og veitum við- skiptavinum okkar þá þjónustu, yfirsýn og athygli sem fasteignin og starfsemin sem hún hýsir þarfn- ast,“ greinir Pálmar frá. Hann segir hugtakið fast- eignaumsjón ná yfir mismunandi þjónustuþætti sem hægt er að velja á milli eða taka sem heild. „Hvort sem að þú þarft ein- falda þjónustu, eins og húsvörslu þar sem okkar fólk getur verið til staðar ef eitthvað kemur upp, eða ef þú þarft hjálp við umfangsmeiri húsumsjón eða fasteignarekstur með kerfisbundinni umsjón og fyrirbyggjandi eftirliti og viðhaldi, þá getum við aðstoðað.“ Yfirsýn yfir alla verkþætti léttir fólki lífið Saga Daga nær aftur til ársins 1980 og spannar þjónustuframboð fyrirtækisins fjölmarga þætti þegar kemur að umsjón, rekstri og ræstingum, ástandi og ásýnd fasteigna. „Við vitum að viðhald fasteigna er langtímaverkefni sem er ekki með skýran upphafs- og enda- punkt. Reynslan hefur þar að auki sýnt okkur að ef margir ólíkir aðilar sinna langtímaverkefni sem þessu tapast oft yfirsýn og samhæfing sem leiðir til sóunar á fjármunum og tíma, veldur rekstrartruflunum og rýrir nota- gildi eignarinnar,“ upplýsir Pálmar. „Mikilvægt er að nálgast verkefni sem þessi skipulega og þess vegna byrjum við oft á því að gera úttektir á eignum sem gefa til kynna ástand þeirra og í hvaða röð er mikilvægast að nálgast verkþættina. Sérfræðingar okkar tryggja skýra yfirsýn yfir rekstur eignarinnar í gegnum fast- eignaumsjónarkerfi Daga þar sem verkbeiðnir eru skráðar og með- höndlaðar til að tryggja eftirfylgni og rekjanleika verka.“ Þjónusta leigjendur jafnt sem eigendur „Leigjendur og eigendur fasteigna deila með sér ábyrgð á þáttum sem lúta að viðhaldi, öryggi, ásýnd og virkni eignarinnar, eins og lýst er í leigusamningum milli aðila og samkvæmt lögum eins og við á. Þannig er algengt að leigjendur sjái um rekstur, viðhald og umhirðu innandyra og að eigandinn sjái um skelina að utan. Fyrirtæki eru misvel í stakk búin til að nálgast þetta verkefni, en þar hafa Dagar hjálpað til,“ segir Pálmar. „Forráðamenn fasteigna hafa kannski ekki þörf fyrir fullt starfsgildi til að sinna viðhaldi og rekstri, en Dagar geta séð um að sinna þessu verkefni með heim- sóknum einu sinni í viku eða oftar, allt eftir eðli og umfangi. Eigandi getur þannig á sýnilegan hátt séð að viðhaldi er sinnt.“ Vellíðan og öryggi starfsmanna skipta miklu máli Dagar eiga sér ríka sögu í þjón- ustuþáttum sem hafa bæði áhrif á virkni og upplifunarhluta eigna. „Við höfum í auknum mæli tekið eftir því að atvinnurekendur og eigendur fasteigna eru ekki ein- göngu að huga að reglubundinni umsjón til að hámarka verðgildi þeirra, heldur einnig til að tryggja aðlaðandi og gefandi umhverfi fyrir notendur og að öryggi þeirra sé tryggt. Við mætum þessari þróun með því að bjóða upp á hent- ugar lausnir fyrir fyrirtæki sem hækkar þjónustustig til starfsfólks og viðskiptavina, eins og með reglubundnum gler- og glugga- þvotti, viðhaldi gólfefna og öðrum þjónustum sem bæta upplifun notenda,“ segir Pálmar. Óháð eldvarnaeftirlit fasteigna Dagar hafa í auknum mæli tekið að sér óháð eldvarnaeftirlit mann- virkja og í kjölfar aukinnar eftir- spurnar hefur verið komið á fót hlutverki eldvarnafulltrúa á sviði Fasteignaumsjónar. „Þegar kemur að eldvarnaeftir- liti fasteigna er bundið í lög að eigandi mannvirkis tryggi að það fullnægi kröfum um brunavarnir. Margir eigendur hafa leitað til okkar með eldvarnaeftirlitið vegna þess að þau leggja ríka áherslu á að eftirlitið sé framkvæmt af óháðum fagaðilum. Þetta gera þau til að tryggja að eftirlit og framkvæmd úrbóta sé ekki á höndum sama aðila og draga þar með úr mögu- legum hagsmunaárekstrum,“ segir Pálmar og útskýrir nánar: „Þjónustu okkar er þá háttað þannig að við tökum út eldvarnir mannvirkisins með reglubundnu millibili, út frá ákveðnum for- skriftum yfirvalda, og skilum samantekt til eigenda húseigna. Þegar kemur að úrbótum í kjölfar skýrslunnar getum við svo verið eigendum og forráðamönnum mannvirkisins innan handar eftir þörfum.“ ■ Dagar eru að Lyngási 17, Garðabæ. Sími 580 0600. Netfang: dagar@ dagar.is. Allar nánari upplýsingar á dagar.is Forstjórinn Pálmar Óli segir sérfræðinga Daga tryggja skýra yfirsýn yfir rekstur fasteigna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Dagar sjá um hvers kyns viðhald í rekstri fyrirtækja og gera úttektir á ástandi fasteigna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Dagar sjá einnig um gluggaþvott. Við vitum að viðhald fasteigna er langtímaverkefni sem er ekki með skýran upphafs- og endapunkt. 2 kynningarblað 3. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURVIÐHALD FASTEIGNA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.