Ægir

Árgangur

Ægir - 2021, Síða 8

Ægir - 2021, Síða 8
8 x-Inn fræðslumiðstöð fiskeldis á Grandagarði í Reykjavík hefur fengið liðsauka, Iðu Marsibil Jónsdóttur, sem taka mun við sem framkvæmdastjóri félagsins. Iða er viðskiptafræðingur og stundar MBA nám við Háskólann í Reykjavík. Iða er Bílddælingur, fædd og uppalin fyrir vestan, þriggja barna móðir og hefur brennandi áhuga og reynslu í fiskeldi. Fræðslumiðstöðin var opnuð í byrjun september og hefur verið afar vel tekið þar sem fram fer kynning og bein út- sending frá fiskeldinu, tengdri tækni, framleiðslu, markaðsetningu og dreif- ingu afurða en mest af starfseminni fer fram á landsbyggðinni sem Iða þekkir vel, að því er segir í fréttatilkynningu. Mikill uppbygging hafi verið á hennar æskuslóðum á sunnanverðum Vestfjörð- um og hún tekið þátt í uppbyggingu Arnarlax. Þar hafi hún verið ein af lykil- starfsmönnum félagsins um árabil og starfað við mannauðsmál, fjármál og skrifstofustjóri félagsins. Fræðslumiðstöðin farið vel af stað „Við erum heppin að fá Iðu til liðs við okkur og erum þakklát fyrir viðtökur bæði almennings sem og samstarfsaðila Lax-Inn sem gefur okkur tækifæri til frekari vaxtar. Iða hefur mikla reynslu af fiskeldi og stýringu rekstrar þar sem kraftar hennar munu nýtast vel til frek- ari uppbyggingar fræðslumiðstöðvar- innar.“ segir Sigurður Pétursson, stofn- andi Lax-Inn. Í fréttatilkynningu segir að í Lax-Inn sé heildarferli framleiðslunnar kynnt, hvernig jarðvarmi og græn raforka eru nýtt og hagstæðar umhverfisaðstæður í landeldi með gegnumstreymi og hring- rásarkerfi. „Frætt er um áframeldi í sjó en það er gert við köldustu aðstæður sem þekkjast í laxfiskaeldi í heiminum. Öllu framleiðsluferlinu er gerð ítarleg skil, hvað einkennir gæði afurða og um- hverfisáhrif framleiðslunnar rakin. Áhersla er lögð á kynningu á eldistækni íslenskra fyrirtækja sem eru mjög fram- arlega á heimsvísu í tæknilausnum bæði í eldi og framleiðslu. Einnig kynning á dreifileiðum, markaðsetningu og hag- rænum þáttum lagareldis.“ Iða Marsibil til liðs við Lax-Inn fræðslumiðstöð Fiskeldi  Iða Marsibil Jónsdóttir, nýr fram- kvæmdastjóri Lax-Inn fræðslumið- stöðvar. Suðurnesjabær óskar Nesfiski og áhöfninni á Baldvini Njálssyni GK 400 innilega til hamingju með glæsilega nýsmíði

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.