Ægir - 2021, Page 12
12
„Skipið reyndist algjörlega frábærlega
á heimleiðinni. Við lentum strax í
vondu veðri, þegar við komum út frá
Vigo og vorum í vondu veðri í þrjá
sólarhringa á leiðinni. Við tókum
svona veðurrúnt sem kallað er. Sigld-
um eftir veðurspánni. Við sigldum því
í norðvestur til að byrja með í sólar-
hring. Það var ægilegt veður í Norð-
ursjónum og við vorum að spá í að
fara Ermasundið, því það var svo vont
veður báðum megin við Írland. Þegar
komust loks norður af Írlandi fengum
við fínasta veður og vorum rétt tæpa
fimm sólarhringa að fara 1.400 sjómíl-
ur. Þetta gekk mjög vel og skipið
reyndist alveg frábærlega. Hreyfðist
lítið og fór vel með okkur,“ segir Arn-
ar Óskarsson, skipstjóri á nýjum Bald-
vin Njálssyni GK 400 sem kom til
landsins nú í byrjun desember. Frysti-
togarinn er 65,6 að lengd og 16 metra
breiður. Hann er 2.880 brúttótonn.
Lestin er 1.720 rúmmetrar og aðalvél-
in 3.000 kílówött sem gæti lagst út
sem 4.400 hestöfl. Það er þó ekki vél-
arstærðin sem skiptir öllu máli. Skipið
er með risavaxna skrúfu og mikla nið-
urgírun og snýst skrúfan ekki nema
60 til 80 snúninga á mínútu. Með
þessu fæst mikil spyrna og mikil nýtni
á hestöflum.
Meiri möguleikar í veiðunum
Skipið er með tæknivædda vinnslu um
borð. Auk hausara og flökunarvélar á
vinnsluþilfari er viðamikið vinnslukerfi,
aðstaða til flakasnyrtingar, flokkunar-
búnaður, frystitæki og pökkun og röðun
á vörubretti áður en vara er send for-
flokkuð á brettum niður í lest. Allt
vinnsluferlið byggir á mikilli sjálfvirkni
Glæsilegur Baldvin
Njálsson GK 400
til Nesfisks