Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 1
Vaxandi þrýstingur er
á íslensk stjórnvöld að
hverfa frá þeirri stefnu
að vísa fjölda hælisleit-
enda úr landi á næstu
vikum.
1 0 1 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 5 . M A Í 2 0 2 2
Veruleiki
Húberts Nóa
Í Kolaporti
minninganna
Menning ➤ 20 Lífið ➤ 24
Barnshafandi kona sem átti
að vísa úr landi er komin
með læknisvottorð gegn
brottflutningi sem verður
sent Útlendingastofnun og til
lögreglunnar.
bth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Barnshafandi konu,
hælisleitanda sem komin er átta
mánuði á leið og hafði fengið boð
um brottvísun frá Íslandi, hefur
verið bjargað að sinni frá brott-
vísun.
Fréttablaðið hefur fengið staðfest
að konan er komin með vottorð frá
lækni og búið er að senda gögn um
hana til Útlendingastofnunar og
lögreglu. Konan vill ekki koma fram
opinberlega eða í viðtali. Vænta má
þess að nánustu fjölskyldumeðlimir
hennar fái einnig skjól hér á landi,
að minnsta kosti tímabundið.
„Já, það hefur tekist að hindra fyr-
irhugaða brottvísun umbjóðanda
okkar sem gengin var átta mánuði
á leið. Vottorð fékkst frá lækni
þess efnis að ekki væri forsvaran-
legt að senda viðkomandi úr landi
að teknu tilliti til ástands hennar,“
segir Magnús Norðdahl lögmaður.
Vaxandi þrýstingur er á Alþingi
að íslensk stjórnvöld hverfi frá
þeirri stefnu að vísa burt allt að
300 manns á næstu vikum með
lögregluvaldi í kjölfar aukins ferða-
frelsis eftir Covid.
Agnes M. Sigurðardóttir biskup
fordæmdi í Fréttablaðinu í gær
bylgju brottvísana fram undan.
Davíð Þór Jónsson prestur bætti
um betur í gær þegar hann sagði að
„fasistastjórn VG“ hefði ákveðið að
„míga á Barnasáttmála SÞ“, með því
að „senda fjölda barna úr langþráðu
öryggi og skjóli hér á Íslandi, þvert
á það sem þeim er fyrir bestu, til að
hafast við í fullkomnu reiðuleysi á
götum úti á Grikklandi.“
Magnús Norðdahl lögmaður segir
alveg ljóst að stjórnvöld séu ekki
bundin af lögum heldur sé um að
ræða pólitískt val.
„Efnismeðferð er meginreglan
samkvæmt núgildandi lögum,“ segir
Magnús. SJÁ SÍÐU 2
Þungaðri konu forðað frá brottvísun
Rafhjólatrygging
TM er hugsuð
fyrir þig
2-3 DAGA
AFHENDING
IÐNAÐUR Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og
nýsköpunar, boðar aðgerðir til að
bregðast við skorti á erlendum sér-
fræðingum í hugverkageiranum.
Tillögur nokkurra ráðuneyta eiga
að liggja fyrir í næsta mánuði.
Stór íslensk fyrirtæki áforma að
f lytja starfsemi úr landi vegna þess
hve erfiðlega gengur að ráða fólk.
Samtök iðnaðarins telja að laða
þurfi allt að níu þúsund manns til
landsins á næstu fimm árum.
Ráðherra segir mikilvægt að
bregðast hratt við stöðunni.
SJÁ SÍÐU 4
Boðar aðgerðir til
að bregðast við
sérfræðingaskorti
Forystufólk fjögurra flokka sem samtals eru með þrettán fulltrúa af 23 í borgarstjórn eftir nýafstaðnar kosningar tilkynntu í gær um upphaf viðræðna sín á milli um myndun meirihluta. SJÁ SÍÐU 4
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK