Fréttablaðið - 25.05.2022, Page 8

Fréttablaðið - 25.05.2022, Page 8
magdalena@frettabladid.is Doktor Alan Watkins, stjórnenda- þjálfari og eigandi Complete, segir að einn mikilvægasti eiginleiki sem leiðtogar geti búið yfir sé forvitni. „Þeir sem eru minna forvitnir ná einfaldlega ekki sama árangri og ofar öllu ættu leiðtogar að vera opnir og móttækilegir fyrir áliti annarra. Þegar ég starfaði sem þjálfari árið 2012 fyrir Ólympíu- leikana spurði ég þjálfarana hvort þeir þyrftu aðstoð við undirbún- inginn. Sex af þeim sjö sem þáðu hjálp enduðu á verðlaunapalli,“ segir doktor Watkins og bætir við að þessi reynsla hafi kennt honum að vera opinn fyrir því að fá aðstoð frá öðrum og leita sífellt annarra leiða til að nálgast hlutina. Doktor Watkins hélt erindi á Viðsk ipt aþing i Viðsk ipt aráðs sem fram fór á Hilton síðastliðinn föstudag. Hann hélt erindi sem bar yfirskriftina: Ef þú telur að allt sé að breytast, þá ertu ekki einn. Í erindinu fjallaði hann um hver væri besta leiðin til að innleiða breytingar í fyrirtækjum. „Fyrirtækin þurfa að íhuga þrjár víddir breytinga. Það er að segja breyta því sem þau gera, breyta tengslum milli fólks og innleiða breytingar á einstaklingsgrund- velli. Þau þurfa að breyta öllum þessum þáttum til þess að breyt- ingarnar geti orðið til góðs. Ef fyrir- tæki eru ekki að ná árangri þarf að breyta því hvernig þau nálgast hlutina.“ n Mikilvægt að leiðtogar séu forvitnir Doktor Alan Watkins, stjórnendaþjálfari og eigandi Com plete. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þeir sem eru minna forvitnir ná einfaldlega ekki sama árangri og ofar öllu ættu leiðtogar að vera opnir og mót- tækilegir fyrir áliti annarra. Íslenskur frumkvöðull á sviði loftslagsmála segir að mikil tækifæri séu fólgin í að vera hluti af lausninni í lofts- lagsmálum. Loftslagstengd verkefni séu sá hluti af efna- hagslífinu sem sé hvað mest vaxandi enda er brýnt að leysa vandann. magdalena@frettabladid.is Fyrirtækið Transition Labs hyggst beita sér af fullum þunga í bar- áttunni gegn loftslagsvánni. Fyrir- tækið samanstendur af hópi frum- kvöðla og framkvæmdafólks sem hefur áhuga á því málefni. Transi- tion Labs var stofnað af þeim Davíð Helgasyni og Kjartani Erni Ólafs- syni. Í samtali við Markaðinn segir Kjartan að hugmyndin að fyrirtæk- inu hafi kviknað hjá Davíð en hann hafi um árabil verið virkur fjárfestir í loftslagstengdum verkefnum. „Í samtölum við þessi fyrirtæki kom ítrekað í ljós að þau eiga við sams konar áskoranir að stríða. Þá kviknaði sú hugmynd að þróa staðl- aðar lausnir á þessum áskorunum sem hægt er að nýta aftur og aftur, fyrir hvert fyrirtækið á fætur öðru, til að flýta uppbyggingu og skölun þeirra. Þetta er kjarninn í starfsemi Transition Labs. Til að byrja með ætlum við að starfa á Íslandi því við metum það sem svo að sumt sé hægt að gera hér hraðar en annars staðar,“ segir Kjartan og bætir við að ýmis- legt geri það að verkum að Ísland sé kjörinn staður fyrir loftslagstengd verkefni. „Þeim kostum má til einföldunar skipta í tvennt. Annars vegar eru náttúrulegir kostir og hins vegar samfélagslegir kostir. Náttúra og auðlindir Íslands henta mörgum loftslagsverkefnum vel. Við búum á basaltklumpi sem gagnast sumum loftslagsverkefnum og hefur til dæmis gagnast Carbfix vel. Aðgang- ur að Norður-Atlantshafinu nýtist öðrum verkefnum. Græna orkan okkar leikur líka hlutverk. Síðan eru samfélagslegir þættir sem gagnast á Íslandi eins og aðgangur að heims- klassa vísindafólki og stjórnvöld sem hafa metnað í loftslagsmálum og vilja greiða leið slíkra verkefna.“ Transition Labs hefur hafið sam- starf við erlenda loftslagsfyrirtækið Running Tide en það hyggst hefja starfsemi hér í sumar. Running Tide nýtir nýjustu tækni til að örva nátt- úrulegt ferli sjávarins við að fjar- lægja kolefni úr andrúmsloftinu, bæta lífríki hafsins og skilar ávinn- ingnum bæði til sjávarplássa og vistkerfa heimsins. Aðferðir félags- ins fjarlægja kolefni í þúsund ár. Kjartan segir að árangur af starf- semi Running Tide muni sjást strax á þessu ári. „Samstarfið við Running Tide er fyrsta verkefnið okkar og f leiri samstarfsfyrirtæki munu sigla í kjölfarið.“ Kjartan bætir við að Running Tide sé eitt af flottustu loftslagsverk- efnum heims og hafi unnið til fjöl- margra verðlauna og viðurkenninga. „Markmið Transition Labs er að f lýta loftslagsbaráttunni. Við höfum stuttan tíma til að takast á við þetta verkefni. Ísland hefur lýst því yfir að það ætli að verða kol- efnishlutlaust árið 2040 þannig að það eru aðeins 18 ár til stefnu. Við trúum því að við getum flýtt því um nokkur ár að áhrifarík loftslagsverk- efni nái skala og geti byrjað að hafa verulega áhrif á loftslagið til góðs.“ Kjartan segir jafnframt að mikil tækifæri felist í því að vera hluti af lausninni í baráttunni gegn lofts- lagsvánni. „Allar rannsóknarskýrslur og spár greiningaraðila benda til þess að þetta sé sá hluti efnahagslífsins sem muni vaxa hvað hraðast næsta áratuginn. Margir líkja því sem er að eiga sér stað í loftslagstengdum verkefnum við það að standa á upphafsmetrunum í internetbylt- ingunni. Umfang loftslagslausna í efnahagslífinu mun verða gríðar stórt ef spár ganga eftir.“ Kjartan segir að þau sem standa að Transition Labs brenni öll heitt fyrir loftslagsbaráttunni en að starfið megi ekki eingöngu vera borið uppi af hugsjón. „Fyrirtækin sem við byggjum upp eiga að vera rekstrarlega sjálf bær, geta skilað hagnaði og búið til verðmæti. Það er lykillinn að því að þau geti vaxið enn frekar og haft enn meiri áhrif til góðs.“ n Mikil tækifæri í loftslagstengdum verkefnum Davíð Helgason og Kjartan Örn Ólafsson, segja að Ísland henti mörgum lofts- lagstengdum verkefnum afar vel. MYND/AÐSEND Björninn ekki unninn Kjartan bætir við að þó að sú viðleitni að binda koltvísýring sé mikilvæg þurfi að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda á öllum sviðum hagkerfisins. „Loftslagslausnir sem binda koltvísýring eru ekki að fara að bjarga öllu. Þess vegna er mikilvægt að draga úr útblæstri eins og kostur er en öllum er ljóst að efnahagslífið fer tæplega niður í núll útblástur. Því er mikilvægt að binda það sem stendur út af og svo syndir fortíðarinnar allt frá upphafi iðnbyltingar. Þó að okkar lausn sé alls ekki allsherjarlausn þá getur hún reynst mikilvægur þáttur.“ Fyrirtækin sem við byggjum upp eiga að vera rekstrarlega sjálfbær, geta skilað hagnaði og búið til verðmæti. Kjartan Örn Ólafsson, stofnandi Transition Labs GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR 588 80 40 www.scanver.is RAFMÓTORAR 8 Fréttir 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.