Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 32
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Láru G. Sigurðardóttur n Bakþankar Segjum að þú fáir botnlangabólgu eina bjarta sumarnótt og það er rokið með þig upp á spítala. Þreytu- legur vaktlæknir segir að hann hafi enga trúa á skurðaðgerðinni sem sannreynt hefur verið að gefi bestan árangur. Hann ætli miklu frekar að nudda botnlangann eftir eigin tilfinningu. Hvernig líður þér? Ég veit að mér yrði ekki rótt. Þessi læknir vill gera á þér tilraun, sem er gert með mýs en ekki menn. Góð heilbrigðis- þjónusta byggir nefnilega á gagn- reyndri þekkingu og rannsóknum á því sem virkar best hverju sinni Sama á að gilda um aðgerðir í lýð- heilsumálum, en einhvern veginn finnst sumum þingmönnum til- finningar sína vega þyngra en þekk- ing sérfræðinga. Í hartnær sjö ár hef ég ásamt öðrum með sérþekkingu á sviði lýðheilsuaðgerða ítrekað bent á mikilvægustu aðgerðirnar til að draga úr skaða af völdum áfengis og nikótíns, sérstaklega meðal unglinga. Misheppnaður uppskurð- ur þingsins eru meingölluð lög um rafsígarettur, sem gera lítið annað en að normalísera notkun nikó- tíns. Sem dæmi opnaðist með þeim gátt fyrir áhrifavalda til að selja nikótín – sem getur verið brú yfir í aðra neyslu. Þetta er galið, því sem fyrirmyndir senda áhrifavaldar ungu fólki skilaboð um að „sá sem notar vöruna getur orðið eins og ég“ sem er eitt öflugasta markaðstrix samtímans. Og á þessum sjö árum hafa sumir þingmenn ítrekað reynt að greiða götu áfengis, sem af öllum vímuefnum ber mestan heilsufars- legan skaða fyrir samfélagið. Bólgnir botnlangar eru ekki nuddaðir eftir tilfinningu vakthaf- andi læknis. Þeir eru skornir burt. Sama á að gilda um vímuefni, það á að fjarlægja aðgengi ungmenna að þeim. Þingmenn þurfa að hætta þessum háskalega læknisleik og taka fyrir fullt og fast á þessu mikil- væga lýðheilsumáli. n Læknisleikur á þingi islenskt.is Borðaðu hana ferska, í ræmum með ídýfunni, saxaða í litríkan pottrétt eða grillaða með gómsætri fyllingu. Vatnsmælirinn: Paprika 91% íslenskt vatn Paprika Í þínu besta formi. Þú færð okkar besta verð á tm.is Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.