Fréttablaðið - 25.05.2022, Qupperneq 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
Segjum að þú fáir botnlangabólgu
eina bjarta sumarnótt og það er
rokið með þig upp á spítala. Þreytu-
legur vaktlæknir segir að hann
hafi enga trúa á skurðaðgerðinni
sem sannreynt hefur verið að gefi
bestan árangur. Hann ætli miklu
frekar að nudda botnlangann eftir
eigin tilfinningu.
Hvernig líður þér? Ég veit að mér
yrði ekki rótt. Þessi læknir vill gera
á þér tilraun, sem er gert með mýs
en ekki menn. Góð heilbrigðis-
þjónusta byggir nefnilega á gagn-
reyndri þekkingu og rannsóknum
á því sem virkar best hverju sinni
Sama á að gilda um aðgerðir í lýð-
heilsumálum, en einhvern veginn
finnst sumum þingmönnum til-
finningar sína vega þyngra en þekk-
ing sérfræðinga. Í hartnær sjö ár hef
ég ásamt öðrum með sérþekkingu á
sviði lýðheilsuaðgerða ítrekað bent
á mikilvægustu aðgerðirnar til að
draga úr skaða af völdum áfengis
og nikótíns, sérstaklega meðal
unglinga. Misheppnaður uppskurð-
ur þingsins eru meingölluð lög um
rafsígarettur, sem gera lítið annað
en að normalísera notkun nikó-
tíns. Sem dæmi opnaðist með þeim
gátt fyrir áhrifavalda til að selja
nikótín – sem getur verið brú yfir í
aðra neyslu. Þetta er galið, því sem
fyrirmyndir senda áhrifavaldar
ungu fólki skilaboð um að „sá sem
notar vöruna getur orðið eins og ég“
sem er eitt öflugasta markaðstrix
samtímans. Og á þessum sjö árum
hafa sumir þingmenn ítrekað reynt
að greiða götu áfengis, sem af öllum
vímuefnum ber mestan heilsufars-
legan skaða fyrir samfélagið.
Bólgnir botnlangar eru ekki
nuddaðir eftir tilfinningu vakthaf-
andi læknis. Þeir eru skornir burt.
Sama á að gilda um vímuefni, það
á að fjarlægja aðgengi ungmenna
að þeim. Þingmenn þurfa að hætta
þessum háskalega læknisleik og
taka fyrir fullt og fast á þessu mikil-
væga lýðheilsumáli. n
Læknisleikur
á þingi
islenskt.is
Borðaðu hana ferska, í ræmum með ídýfunni, saxaða
í litríkan pottrétt eða grillaða með gómsætri fyllingu.
Vatnsmælirinn: Paprika 91% íslenskt vatn
Paprika
Í þínu besta formi.
Þú færð okkar
besta verð
á tm.is
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN