Fréttablaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 9
Þau eru öll
á frönsku
með þér-
unum og
alles, og ég
verð alltaf
verulega
impóner-
aður þegar
svo virðu-
leg umslög
birtast
í póst-
kassanum
mínum.
Karl Th.
Birgisson
n Í dag
ÍÞRÓTTAVIKAN
MEÐ BENNA BÓ
FÖSTUDAGA KL. 19.00
Benedikt Bóas fær til sín góða
gesti til að ræða íþróttavikuna
sem leið og skoðar það helsta
sem gerðist á léttu nótunum.
Mér virðist sem Evrópusam-
bandið láti sér umhugaðra um
velferð og heilsu þegna sinna upp
á síðkastið en oft áður.
Þetta merki ég af þeim fjölda
bréfa sem ég hef fengið frá
framkvæmdastjórninni síðustu
mánuði. Þau eru öll á frönsku með
þérunum og alles, og ég verð alltaf
verulega imponeraður þegar svo
virðuleg umslög birtast í póst-
kassanum mínum.
En hvernig bréf eru þetta?
Skoðum dæmi
„Kæri þegn.
Okkur hefur borizt til eyrna að
þér hafið leigt bíl í janúar. Það sem
meira er, við höfum fengið staðfest
að þér hafið reykt í bílnum. Það er
á milli yðar og fyrirtækisins, en við
viljum nota tækifærið til að minna
á að reykingar drepa og valda getu-
leysi, þó ekki endilega í þeirri röð.
Hitt er alvarlegra, að upptökur
úr myndavélum sanna að þér hafið
hent stubbum út um gluggann.
Þetta telst meiri háttar brot á
stubbareglugerð nr. 1213/05, þar
sem segir skýrum stöfum: „Leifum
af reykjanlegum sívalningum skal
koma fyrir á öruggum stað, svo
að hvorki valdi fólki né umhverfi
skaða.
Evrópa er ekki öskubakki
Hins vegar eru vísbendingar um
að þetta kunni að vera fyrsta brot
yðar. Okkur þykir það ekki senni-
legt, en framkvæmdastjórnin vill
láta alla njóta vafans – líka yður.
Næst verður hins vegar engin mis-
kunn hjá Michelle.
Að því sögðu er nauðsynlegt
að árétta, að ofangreindri reglu-
gerð má alls ekki rugla saman við
Stubba-reglugerð nr. 4598/08, sem
gildir um sjónvarpsefni. Báðar
reglugerðir hafa þó keimlík, og
næstum sömu markmið.“
Ég hló þegar ég opnaði næsta
bréf. Það hljómaði eins og gamall
brandari. Ég hélt fyrst að Vigdís
Hauksdóttir væri að stríða mér,
en held að hún sé ekki svona góð í
frönsku – nema Brynjar hafi kennt
henni hana á Bifröst eins og margt
annað.
En framkvæmdastjórnin
var ekkert að djóka:
„Kæri þegn.
Við höfum fengið staðfest að þér
hafið miðvikudaginn 3.11.2021
snætt banana, sem stenzt ekki
kröfur um útlit og bragð. Því
biðjum við yður nú að finna
viðkomandi bananahýði með
viðeigandi strikamerki, setja í
lofttæmdar umbúðir og umslag, og
senda til:
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins
Belgíu
merkt „Bananar.“
Sé strikamerkið týnt má notast
við merki af sítrónu eða papaya –
mestu skiptir að það sé af ávexti.“
Það er rétt, að bananar héðan
úr sveitinni eru minni, þykkari og
bragðbetri en drjólarnir sem fást í
Bónus. Bændurnir eru hins vegar
lítið að vinna með strikamerki.
Þeir selja eftir vigt.
Ég fór búð úr búð í leit að strika-
merki, en árangurslaust. Loks fór
ég í ruslagáminn, fann hæfilega
gamalt bananahýði, fann svo tóma
fernu undan ananassafa, klippti
strikamerkið af henni, límdi kyrfi-
lega á hýðið, gekk frá öllu saman
eftir fyrirmælum og sendi.
Skömmu síðar kom
frekar hastarlegt bréf:
„Kæri þegn.
Þér valdið framkvæmdastjórn-
inni djúpstæðum vonbrigðum. Þér
gerið yður vonandi grein fyrir því
að við getum ekki látið strika-
merkjalaus bananahýði þvælast um
álfuna eftirlitslaust.
Því er nú lagt fyrir yður að bæta
úr vanrækslu yðar umsvifalaust. Að
öðrum kosti er óhjákvæmilegt að
grípa til miður skemmtilegra ráð-
stafana gagnvart yður.“
Ég hef ekki svarað ennþá. Held
niðri í mér andanum, en ber þá von
í brjósti að í Belgíu séu sirka fjórtán
byggingar merktar „Ókláruð mál.“
Samvizkubitið nagar mig inn að
beini.
Eitt bréf enn, sem
kom mest á óvart:
„Kæri þegn.
Rannsóknir staðfesta að of dökk
tré og runnar draga að sér áður
óþekkt skordýr, sem geta borið með
sér veirur, svokallaðar grænveirur,
sem eru hættulegar mönnum.
Því biðjum við yður nú að benda
framkvæmdastjórninni á svæði
þar sem óeðlilega mikið er af of
grænum trjágróðri, en einnig að
grípa til ráðstafana í nágrenni yðar
til að hamla útbreiðslu hans.“
Hér brást ég hart við. Um miðja
síðustu öld tóku einhver trjáræktar-
fríkin upp á því að planta barrtrjám
í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Ég
lýsti þessu róthneykslaður fyrir
framkvæmdastjórninni og bætti
við, að einhver hefði líkt þessum
hryðjuverkum við „skegg á konu.“
En ég gerði líka mitt heima við.
Svo vildi til að ég átti bleikingarefni
í þvottahúsinu. Ég fann spreybrúsa
og réðst til atlögu við runna hér
fyrir utan. Auðvitað kom lögreglan.
Ég sagðist vinna í umboði
framkvæmdastjórnarinnar, og það
var sama hversu hátt þeir hringdu
upp virðingarstigann í löggunni
– enginn fann lagabókstaf um að
bannað væri að sprauta bleikingar-
efni á runna.
Enda er allt annað að sjá þá. n
ESB hugsar um sitt fólk
Ég fann spreybrúsa
og réðst til atlögu við
runna hér fyrir utan.
Auðvitað kom lög-
reglan.
FÖSTUDAGUR 27. maí 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ