Fréttablaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 21
Salur og tvö glæsileg fundar-
herbergi eru til útleigu í einu
sögufrægasta húsi landsins
og einu af helstu kennileit-
um borgarinnar, Safnahús-
inu við Hverfisgötu. Leitast
er eftir að veita framúr-
skarandi þjónustu ásamt
ráðgjöf sem hentar hverjum
viðburði fyrir sig. Þá er vin-
sælt að bóka leiðsögn um
húsið og/eða yfirstandandi
sýningar Listasafns Íslands í
kringum fundartímann.
Í einu af safnhúsum Listasafns
Íslands, Safnahúsinu við Hverfis-
götu, eru tvö fullbúin og glæsileg
fundarherbergi ásamt sal til
útleigu. Lestrarsalurinn hentar
vel fyrir stærri fundi, málþing,
starfs- og vinnudaga, ráðstefnur og
tónleika. Fundarherbergin henta
hins vegar vel fyrir minni fundi,
stjórnarfundi, starfsmannasamtöl
og fundi þar sem fjarfundarbún-
aður er nýttur.
„Safnahúsið við Hverfisgötu er
fyrsta safnabyggingin sem reist
var hér á landi og var hún vígð árið
1909 og er eitt af helstu kenni-
leitum borgarinnar,“ segir Guðrún
Jóna Halldórsdóttir, markaðs- og
þjónustustjóri Listasafns Íslands.
„Hannes Hafstein lét reisa húsið,
sem var byggt á árunum 1906-1908
til að hýsa Landsbókasafn Íslands
og Þjóðskjalasafnið. Safnahúsið er
tímamótaverk í íslenskri húsagerð-
arsögu og jafnframt síðasta opin-
bera stórhýsið með steinhlöðnum
veggjum áður en steinsteypuöld
gekk í garð.
Lestrarsalurinn
Lestrarsalurinn er mjög virðu-
legur og fallegur salur með glæsi-
legri aðkomu. Í salnum er góður
hljómburður, f lygill og falleg birta
frá stórum gluggum leikur um
salinn. Salurinn er í sinni upp-
runalegu mynd ásamt einstökum
húsgögnum sem fylgt hafa salnum
frá því húsið var opnað.
„Salurinn tekur um 100 manns í
standandi opnun en um 80 manns
í sætum fyrir fundi, fyrirlestra,
málþing, tónleika og ráðstefnur.
Uppröðun stóla í salnum tekur
mið af þörfum gesta okkar ásamt
tæknibúnaði svo sem hljóðkerfi,
hágæða myndvarpa og ræðu-
púlti.“
Norðurstofa og Suðurstofa
Fundarherbergin eru tvö, Norður-
stofa og Suðurstofa. Í Norðurstofu
er aðstaða fyrir allt að 16 manns
og í Suðurstofu er aðstaða fyrir allt
að 10 manns við hringborð ásamt
þægilegri aðstöðu með sófasetti.
„Danski hönnuðurinn Børge
Mogensen hannaði sófasettið
sem var gjöf frá danska þinginu
til hússins árið 2001 þegar húsið
hafði gengist undir viðgerðir og
verið endurnýjað.“
Ekki má gleyma einum vin-
sælasta stiga landsins. „Ófá
brúðhjón hafa leigt stigann fyrir
myndatöku á stóra deginum, en
einstakur glæsileiki stigans hentar
vel sem bakgrunnur á einum af
stærstu viðburðum í lífi fólks.
Stiginn hefur einnig verið leigður
út fyrir aðrar myndatökur eins og
fyrir tískuljósmyndun, útskriftir,
fermingar og almennar fjölskyldu-
myndatökur.“
Framúrskarandi þjónusta
Guðrún Jóna segir að leitast sé eftir
að veita framúrskarandi þjónustu
ásamt ráðgjöf sem hentar hverjum
viðburði fyrir sig. „Öll aðstaða er
til fyrirmyndar og unnið er eftir
fremsta megni til að koma til móts
við þarfir viðskiptavina okkar til
að skapa einstaka upplifun. Allur
tæknibúnaður er til fyrirmyndar
bæði í fundarherbergjunum og í
Lestrarsalnum og lagt er upp með
að skapa einstaklega hlýlegt og
fágað andrúmsloft. Góður fjar-
fundarbúnaður er til staðar sem
eykur þægindin fyrir bæði funda-
haldara og gesti sem koma inn á
fundinn í gegnum búnaðinn. Eins
má nefna að tæknibúnaðurinn er
sérlega auðveldur til notkunar.“
Aðgengi að Safnahúsinu er gott.
Við hlið hússins er aðstaða fyrir
hópferðabíla og á móti húsinu,
Hverfisgötu 20, er bílastæðahús
fyrir akandi gesti safnsins.
Leiðsagnir og sýningar
Guðrún Jóna segir að vinsælt sé
að bóka leiðsögn um húsið og/eða
yfirstandandi sýningar Listasafns
Íslands í kringum fundartímann.
„Leiðsagnirnar hafa verið vin-
sælar á starfs- og vinnufundum
fyrirtækja og einnig þegar erlendir
gestir funda í húsinu. Hægt er að
bóka leiðsögn fyrir og eftir fundi
en einnig er tilvalið að brjóta
upp daginn, til dæmis í kringum
hádegishlé, og njóta leiðsagnar
um húsið og sýningar Listasafns
Íslands. Leiðsagnirnar geta varað
allt frá þrjátíu mínútum til klukku-
stundar eftir því hvað hentar
hverjum hópi fyrir sig. Umtalað er
á meðal gesta okkar að öll aðkoma
og glæsilegt útlit hússins í heild
sinni ásamt sýningum safnsins
skilur eftir sig ógleymanlega upp-
lifun.“
Í húsinu eru núna tvær sýningar
Listasafns Íslands. Það er annars
vegar sýningin Fjársjóður þjóðar í
Safnahúsinu sem varpar ljósi á þá
dýrmætu safneign sem Listasafn
Íslands býr yfir. „Á sýningunni eru
listaverk frá síðari hluta 19. aldar
til dagsins í dag, sem endurspegla
fjölbreytt viðfangsefni listamanna
og gefst gestum hússins kærkomið
tækifæri til að skoða mörg af helstu
listaverkum þjóðarinnar. Hins
vegar er til sýnis fyrsti hluti þver-
faglegu sýningarinnar Viðnám,
sem mun taka yfir húsið á næstu
mánuðum, en sýningin varpar ljósi
á tengingu myndlistar og vísinda.
Verkin á sýningunni eru lykilverk
í eigu Listasafns Íslands sem skapa
áhugavert samtal myndlistarinnar
við vísindaleg málefni og heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna.“
Guðrún Jóna segir að það sé
ánægjulegt að Listasafn Íslands
geti boðið upp á upplifun af þessu
tagi líkt og þekkist víða í söfnum
erlendis. „Við lítum svo á að þó
svo að gestir komi ekki einungis í
safnið til þess að skoða sýningar
heldur sem fundar- eða ráðstefnu-
gestir þá njóti þeir þessarar sér-
stöðu að skoða íslenska listasögu
og framúrskarandi myndlist í þess-
ari byggingu sem var sérstaklega
byggð fyrir íslensk söfn.
Innlendir sem erlendir gestir
okkar hafa lýst yfir ánægju yfir feg-
urð og glæsileika hússins og á þá
auknu upplifun að skoða sýningar
safnsins að fundi loknum.“
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu safnsins listasafn.is og/
eða senda póst á info@listasafn.is
Salur og fundaherbergi
í einu sögufrægasta
húsi Reykjavíkur
Guðrún Jóna
Halldórsdóttir,
markaðs- og
þjónustustjóri
Listasafns Ís-
lands.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Salarkynnin
eru glæsileg í
Safnahúsinu við
Hverfisgötu.
Í lestrarsalnum er góður hljómburður, flygill og falleg birta frá stórum
gluggum leikur um salinn.
Hægt er að skapa sér gott næði í Safnahúsinu.
Í Safnahúsinu við Hverfisgötu, eru tvö fullbúin og glæsileg fundarherbergi
ásamt sal til útleigu.
Salirnir eru vel búnir með fallegum húsgögnum.
Leiðsagnirnar hafa
verið vinsælar á
starfs- og vinnufundum
fyrirtækja og einnig
þegar erlendir gestir
funda í húsinu.
kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 27. maí 2022 R ÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐASTJÓRNUN