Fréttablaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 22
Við höfum síðast-
liðin tvö ár verið
með 5.000 manna ráð-
stefnur og hefðum aldrei
getað tekið á móti öllum
þessum gestum í ráð-
stefnusalnum.
Erla Harðardóttir
Velkomin er stafræn
viðburðalausn sem sér-
fræðingar Advania þróuðu í
Covid, þegar viðburðahald
í raunheimum stöðvaðist
fyrirvaralaust og netið varð
vettvangur ráðstefna og
funda.
Fjöldi fyrirtækja notar þessa
snjöllu lausn Advania, sem
nýtist bæði fyrir viðburði sem fara
einungis fram á netinu og sem
blönduð lausn fyrir viðburði þar
sem hluti þátttakenda mætir og
hluti fylgist með í gegnum netið.
Upplifun gesta þarf að vera
framúrskarandi hvort sem mætt er
á svæðið eða horft á á netinu. Þar
kemur Velkomin lausnin sterk inn.
Erla Harðardóttir, vörustjóri
viðburðalausna hjá Advania, segir
ýmsa kosti fylgja því að vera með
viðburð á netinu, annað hvort
alfarið eða að hluta. Talað er um
hybrid- eða blandaða viðburði
þegar þeir eru í senn staðar- og
fjarviðburðir.
„Stafræn miðlun á viðburðum
eykur virði þeirra til muna og
er betri þjónusta við gesti, hvort
sem þeir mæta á staðinn eða ekki.
Það er ótakmarkað sætaframboð
og upptaka af viðburðinum lifir
áfram eftir að honum líkur. Við
höfum síðastliðin tvö ár verið
með 5.000 manna ráðstefnur og
hefðum aldrei getað tekið á móti
öllum þessum gestum í ráðstefnu-
salnum.
Við fögnum því jákvæða sem
breytt vinnuumhverfi hefur knúið
okkur til að læra. Eftir undanfarin
ár erum við betur í stakk búin til
að halda og sækja stafræna við-
burði, miðla þekkingu og eiga í
gagnvirkum samskiptum staf-
rænt.“
Erla segir umhverfissjónarmið
alltaf verða sterkari. „Við höfum
gert reiknivél sem reiknar kolefnis-
fótspor viðburða með tilliti til
hversu margir mæta á staðinn
og hversu margir fylgjast með á
netinu. Auk þess er hægt að bera
saman kolefnisspor veitinga sem
bornar eru fram og hversu mikil
áhrif það hefur að gera litlar og
einfaldar breytingar. Viðburða-
haldarar geta því tekið meðvitaða
ákvörðun þegar kemur að því að
ákveða hverslags viðburð skal
halda. Það sama gildir um gestina.
Auður Inga Einarsdóttir,
markaðsstjóri Advania, bendir á
að stafrænt viðburðahald er ekkert
nýtt af nálinni. Við erum hins
vegar orðin móttækilegri fyrir því
að sækja viðburði í gegnum netið.
Við erum öll farin að gera meiri
kröfur um sveigjanleika, að geta
stjórnað tíma okkar sjálf og unnið
hvaðan sem er. Blandað viðburða-
hald mætir kröfum þeirra sem
vilja mæta á viðburðinn og þeirra
sem vilja geta stjórnað því hvenær
og hvar þeir horfa á hann.
„Það eru engar skorður á borð
við takmarkaðan sætafjölda eða
bílastæði.” Erla segir fólk sýna því
mikinn áhuga að sækja stafræna
viðburði. „Tími neytenda er dýr-
mætur og gera þeir sífellt auknar
kröfur um hvernig þeir vilja verja
honum. Fólk vill mæta á staðinn til
að sýna sig og sjá aðra, en hefur val
um að fylgjast með efni viðburðar-
ins í ró og næði þegar því hentar, á
stafrænu formi.“
Velkomin lausnin var hönnuð
og útfærð með skýr markmið í
huga. Hún er einföld, notendavæn
og býður hverjum og einum við-
skiptavini að leyfa sínu vörumerki
að skína. Auk þess getur viðskipta-
vinur sett inn allt efni sjálfur og
séð breytingar í rauntíma og er
því nokkuð sjálfbær eftir að inn-
leiðingu lýkur. „Við þurfum öll að
laga okkur að þessum nýju kröfum
um viðburðahald og halda áfram
að þróast,“ segir Erla.
„Þegar við nýtum stafrænu við-
burðalausnina getum við boðið
öllum að mæta óháð því hvar fólk
er á landinu eða í heiminum,“ segir
Auður Inga. n
Stafræn viðburðalausn sem breytir leiknum
Erla Harðardóttir, vörustjóri viðburðalausna, og Auður Inga Einarsdóttir markaðsstjóri segja Velkomin, stafrænu við-
burðalausnina frá Advania, nýtast viðskiptavinum vel. MYND/AÐSEND
Taktu á móti eins
mörgum gestum
og þú vilt
Kynntu þér viðburðarlausn
Advania
8 kynningarblað 27. maí 2022 FÖSTUDAGURR ÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐASTJÓRNUN