Fréttablaðið - 31.05.2022, Side 4
Vísitala neysluverðs
hækkar um 0,77 pró-
sent frá fyrri mánuði.
olafur@frettabladid.is
NEY TENDUR Verðbólga hækkar
enn og hefur ekki verið hærri í tólf
ár. Ekki verður séð að miklar stýri-
vaxtahækkanir Seðlabankans und-
anfarna 12 mánuði hafi mikil áhrif.
Vísitala neysluverðs í maí 2022
hækkar um 0,77 prósent frá fyrri
mánuði. Vísitala neysluverðs án
húsnæðis hækkar um 0,42 prósent
frá apríl.
Verð á mat og drykkjarvörum
hækkaði um 0,9 prósent (áhrif á vísi-
töluna 0,14 prósent), reiknuð húsa-
leiga hækkaði um 2,3 prósent (0,43
prósent), verð á nýjum bílum hækk-
aði um 2,1 prósent (0,11 prósent) og
verð á bensíni og olíum hækkaði
um 2,9 prósent (0,10 prósent). Verð
á flugfargjöldum til útlanda lækkaði
um 6,9 prósent (-0,14 prósent).
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um 7,6
prósent og vísitala neysluverðs án
húsnæðis um 5,5 prósent.
Skarpar stýrivaxtahækkanir
Seðlabankans undanfarna 12
mánuði virðast lítil áhrif hafa á
verðbólguna. Ekki þarf það koma
á óvart þar sem verðbólgan er að
stærstum hluta annars vegar inn-
flutt og hins vegar vegna skorts á
húsnæði. Íslensk peningastefna
virðist hafa takmörkuð áhrif á verð-
bólgu erlendis og ekki hefur verið
sýnt fram á að vaxtahækkanir skili
sér í auknu framboði húsnæðis á
viðráðanlegu verði. n
Verðbólgan æðir
áfram þrátt fyrir
vaxtahækkanir
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ Á LAUGARDÖGUM Í SUMAR
100% RAFMÖGNUÐ
ÍTÖLSK HÖNNUN
Hvað nærðu að gera á fimm mínútum? Það tekur Fiat 500e aðeins
fimm mínútur í hraðhleðslu að ná 50km akstursdrægni. Fiat 500e
sameinar gæði og tímalausa ítalska hönnun sem hentar vel fyrir þá
sem þurfa að komast örugglega á milli staða innanbæjar.
Með 3+1 hurðum og allt að 433 km drægni
FIAT.IS
Fjórar blokkir eiga 60 pró-
sent af úthlutuðum kvóta.
Vaxandi þrýstingur er á að
veiðigjald verði hækkað. SFS
segir að um tímabundið góð-
æri kunni að vera að ræða.
bth@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Það stefnir í met-
hagnað sjávarútvegsfyrirtækja.
Brim hagnaðist um 11,3 milljarða í
fyrra og Síldarvinnslan um svipaða
fjárhæð. Hagnaður Síldarvinnsl-
unnar fyrstu þrjá mánuði þessa árs
nam á fjórða milljarð króna.
Samherji, Kaupfélag Skagfirð-
inga (KS) og önnur risafyrirtæki í
íslenskum sjávarútvegi, hafa ekki
skilað uppgjöri fyrir síðasta ár en
mikils hagnaðar er vænst. Íslensk
fiskiskip veiddu fisk fyrir 162,2
milljarða króna í fyrra samkvæmt
tölum Hagstofu. Verðmæti afla jókst
um 9 prósent milli ára, var 148,3
milljarðar 2020 samkvæmt úttekt
Kjarnans. Munar mestu um upp-
grip í síld og loðnu og eru horfurnar
mjög góðar nú, því verð á prótíni og
ekki síst fiski hefur hækkað mjög í
kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.
Í lok árs 2020 var bókfært eigið fé
íslensks sjávarútvegs 325 milljarðar
króna. Aukning eigin fjár á sjö árum
hjá sjávarútvegsfyrirtækjum er vel á
annað hundrað milljarða.
Þingmenn stjórnarandstöðu hafa
ítrekað bent á að veiðigjöld séu of
lág. Svandís Svavarsdóttir matvæla-
ráðherra sagði í Morgunblaðinu
í gær að djúpstæð tilfinning væri
meðal almennings um óréttlæti
vegna samþjöppunar veiðiheimilda
og að ágóðanum af sameiginlegri
auðlind væri ekki skipt á réttlátan
hátt. Árið 2020 greiddi sjávarút-
vegurinn tæpa 4,8 milljarða í veiði-
gjald en á sama tíma hefur íslenska
ríkið þurft að taka á sig söguleg áföll
vegna veirufaraldursins.
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingar, segir að arðurinn fyrir
aðgengi að takmörkuðum auðlind-
um í eigu þjóðarinnar verði í aukn-
um mæli að skila sér til þjóðarinnar.
„Við höfum horft upp á gríðarlega
auðsöfnun á mjög fáar hendur sem
hefur auk þess leitt til þess að örfáir
einstaklingar halda ekki einungis á
þorra fiskveiðiheimilda, heldur hafa
í skjóli þessa sama auðs sölsað undir
sig eignir mjög víða í samfélaginu í
óskyldum greinum,“ segir Logi.
Hann nefnir fjölmiðlarekstur,
fasteignastarfsemi, f lutninga, dag-
vörumarkað, orkuvinnslu, jafnvel
tryggingar og bankastarfsemi.
„Þetta skapar mjög óheilbrigt
ástand. Og nú þegar allur þorri
almennings sér fram á versnandi
af komu og ýmis heilbrigðis- og
velferðarþjónusta er undirfjár-
mögnuð, ættu handhafar kvótans
sannarlega að greiða meira til sam-
neyslunnar, þeir eru vel aflögufærir,
svo ekki sé meira sagt,“ segir Logi.
Samanlagt eiga fjórar blokkir um
60 prósent af öllum úthlutuðum
kvóta. Þessar blokkir eru Samherji,
Brim, KS og Ísfélagið. Heiðrún Lind
Marteinsdóttir hjá Samtökum fyrir-
tækja í sjávarútvegi (SFS) bendir á,
vegna orða Svandísar, að samþjöpp-
un veiðiheimilda sé þó takmörkuð
með lögum.
„Þrátt fyrir orð ráðherra nú leyfi
ég mér að efast um að almenningur
vilji hverfa frá þeim þáttum sem
hafa verið grundvöllur að sjálfbærni
og verðmætasköpun í atvinnugrein-
inni,“ segir hún.
Heiðrún bendir á að auðlinda-
gjaldið sé af komutengt, hækki
þegar vel gengur og lækki þegar
lakar árar. Þá sé rétt að hafa í huga
að þótt ágætlega gangi nú sé ekki
langt frá tveimur loðnulausum
árum og kvóti í þorski hafi verið
skorinn niður um 50 þúsund tonn
á tveimur fiskveiðiárum.
„Hin samfélagslegu verðmæti
verða ekki aukin með auknum álög-
um, þau verða fyrst og síðast aukin
með því að treysta samkeppnis-
hæfni og með aukinni verðmæta-
sköpun," segir Heiðrún. n
Ofurgróði útgerðar veldur titringi
Fyrstu ársafkomutölur stóru sjávarútvegsfyrirtækjanna benda til gróða á tá
og fingri. Tekist er á um hvort álögur séu sanngjarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir,
hjá SFS
Logi Einarsson,
formaður Sam-
fylkingarinnar
ser@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Tvær af sex hæðum
Sjávarútvegshússins við Skúlagötu
hafa staðið auðar í heilt ár, en í
sumar hillir loksins undir að fram-
kvæmdir hefjist þar að nýju við
gagngerar endurbætur á öllum sex
hæðum hússins.
Ráðgert er að allt að fimm ráðu-
neyti verði í húsinu, en þar eru fyrir
matvælaráðuneytið og menningar-,
ferða- og viðskiptaráðuneytið á
fimmtu hæðinni. Þykir brýnast að
koma félagsmálaráðuneytinu og
heilbrigðisráðuneytinu fyrir í hús-
inu, en þau hafa verið á ítrekuðum
hrakhólum eftir að mygla fannst í
húsakynnum þeirra við Tryggva-
götu og svo aftur í Skógarhlíðinni
þangað sem þau fluttu úr miðborg-
inni. Þau ráðuneyti eru nú í tíma-
bundnu húsnæði í Síðumúla.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins stóð upphaf lega til að
endurgera tvær hæðir hússins, en
í kjölfar kosninga í haust og gagn-
gerra breytinga á skipan ráðuneyta
í upphafi þessa árs var ákveðið að
húsið yrði allt endurgert. Hönnun
og áætlanagerð lauk fyrir tveimur
vikum og um helgina var útboð á
endurgerð hússins auglýst í blöðum.
Samkvæmt sömu heimildum hafa
orðið nokkrar tafir í hönnunar-
ferlinu, meðal annars vegna vals á
gólfefnum, hvort lagðar yrðu tep-
paflísar eða harðviður á gólfið – og
höfðu teppaflísarnir vinninginn.
Það sem einkum hefur þó tafið
verkið er sú grundvallarbreyting
að ákveðið skyldi að endurgera
allt húsið. En ekki einungis aðra og
þriðju hæðina.
Þá gera nýjar áherslur í nýtingu
skrifstofurýmis verkefnið flóknara
en ella.
Niðurstaða útboðs á lokafrágangi
hæðanna fæst í lok júní og munu
framkvæmdir hefjast að nýju að
af loknum samningum við verk-
taka. n
Þrjár hæðir í Sjávarútvegshúsinu hafa staðið auðar í eitt ár
Sjávarútvegshúsið við Skúlagötu
sem eitt sinn hýsti starfsemi Hafró.
4 Fréttir 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ