Fréttablaðið - 31.05.2022, Side 28
Núna er maður auð-
vitað leiður yfir því að
fara úr Safamýrinni en
það verður spennandi
að taka þátt í þessum
nýja kafla félagsins.
Steinunn Björnsdóttir
Mörgum leikmönnum
finnst samskiptum
ábótavant.
16 Íþróttir 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR
hoddi@frettabladid.is
FÓTBOLTI Fleiri en einn og fleiri en
tveir leikmenn íslenska landsliðs-
ins sem kynntir voru í hóp liðsins í
síðustu viku lásu um það á veraldar-
vefnum að þeir væru í hópi Arnars
Viðarssonar. Iðulega eru leikmenn
sem eru í landsliðshóp látnir vita
áður en hópurinn er kynntur opin-
berlega.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins voru nokkrir leikmenn
hissa á stöðu mála þegar þeir lásu
það á vefmiðlun síðasta miðviku-
dag að þeir væru í hópi Arnars fyrir
verkefnið í júní. Heimildarmaður
Fréttablaðsins segir að samskipti
þjálfarateymis við leikmenn sem
koma til greina í landsliðið séu lítil.
Nánast engin samskipti eiga sér stað
á milli verkefna og nú þegar valið er
í hópinn eru nokkrir leikmenn sem
lesa um það á vefmiðlum að krafta
þeirra sé óskað í landsliðinu.
Arnar Þór Viðarsson hefur stýrt
landsliðinu í 18 mánuði en gengi
liðsins innan vallar hefur verið
slakt, kynslóðaskipti hafa átt sér
stað en framfarir á leik liðsins hafa
ekki verið áþreifanlegar. Arnar
heldur enn í vonina um að eldri og
reyndari leikmenn liðsins gefi kost
á sér á komandi mánuðum til að
reyna að snúa við slöku gengi. Óvíst
er hins hvort eða hvenær eldri leik-
menn ná heilsu, gefi aftur kost á sér
og þar fram eftir götunum.
Liðið leikur þrjá leiki í Þjóðadeild-
inni í júní en um er að ræða fyrstu
keppnisleiki liðsins frá því að Arnar
skipti út aðstoðarmanni sínum Eiði
Smára Guðjohnsen en í hans stað er
Jóhannes Karl Guðjónsson mættur
til starfa. n
Lásu um það á netinu að þeir væru í landsliðshópi Arnars
Leikir Íslands í júní
n Ísrael - Ísland
fimmtudaginn 2. júní
á Sammy Ofer Stadium
kl. 18.45
n Ísland - Albanía
mánudaginn 6. júní á
Laugardalsvelli kl. 18.45
n San Marínó - Ísland
fimmtudaginn 9. júní
á Stadio Olimpico di
Serravalle kl. 18.45
n Ísland - Ísrael
mánudaginn 13. júní á
Laugardalsvelli kl. 18.45Arnar Þór Viðarsson er á leið inn í
fjóra landsleiki. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Steinunn Björnsdóttir segir
það viðeigandi að sigur-
sælasta félag kvennaboltans
frá upphafi, Fram, hafi unnið
Íslandsmeistaratitil á lokaári
sínu í Safamýrinni áður en
haldið er á nýjar slóðir.
kristinnpall@frettabladid.is
HANDBOLTI „Þessi tilfinning þreyt-
ist ekki og í raun virðast titlarnir
alltaf toppa þá fyrri. Ég held að
þessi verði sérstaklega eftirminni-
legur því ég fann það daginn eftir
leikinn að það var ákveðinn doði
vitandi að kafla okkar í Safamýr-
inni sé lokið.
Fyrir vikið er maður ótrúlega
þakklátur að hafa náð að ljúka
þeim kaf la með titli,“ segir Stein-
unn Björnsdóttir, leikmaður Fram,
spurð hvort Íslandsmeistaratitill
liðsins um helgina hafi haft aukna
þýðingu í ljósi þeirra tímamóta sem
eru fram undan hjá sigursælasta
félagi landsins í kvennaboltanum.
„Það gefur þessum titli svolítið
aukna vigt og ég er viss um það
þegar ég lít til baka seinna meir
að þessi verður mér mikilvægur til
lengri tíma.“
Steinunn er, eins og nokkrar úr
kjarna liðsins sem voru að fagna
fjórða Íslandsmeistaratitli félags-
ins á síðustu níu árum, svo gott sem
uppalin í Framheimilinu. Það verða
því viðbrigði þegar Fram hefur
nýjan kafla í sögu félagsins þegar
það flytur starfsemi sína í Úlfarsár-
dal á næstu mánuðum.
„Það er auðvitað erfitt að full-
yrða en fyrir mér hefur þetta verið
einstakt tímabil og Safamýrin eins
og æskuheimili. Að hafa fengið að
vera þarna í Framheimilinu í allan
þennan tíma þar sem fjölskyldan
mín hefur verið stór hluti af þessu
og bestu vinkonur,“ segir Stein-
unn og að það sé auðvitað um leið
spennandi að taka þátt í nýjum
kafla félagsins og er ekkert á því að
láta staðar numið.
„Að sama skapi eru ótrúlega
spennandi tímar fram undan, það
kemur tilhlökkun fyrir því að fara
í eitthvað nýtt, stærra og með frá-
bærri umgjörð. Núna er maður
auðvitað leiður yfir að vera að
fara úr Safamýrinni en það verður
spennandi að taka þátt í þessum
nýja kaf la félagsins. Ég er samn-
ingsbundin í ár í viðbót og er ekki
að fara að leggja skóna á hilluna.“
Steinunn sneri aftur inn á völl-
inn í tæka tíð fyrir úrslitakeppnina,
eftir að hafa slitið krossband síðasta
vor. Stuttu áður en það gerðist var
hún fjarverandi vegna höfuðhöggs
og var því nýkomin af stað að nýju
þegar hún meiddist illa í leik Íslands
og Norður-Makedóníu.
„Það var ótrúlegt áfall að slíta
krossbandið á þessum tíma. Ég var
orðin aftur upp á mitt besta þegar
krossbandið slitnar í landsleik í
mars. Á þeim tímapunkti sá ég ekki
endilega fram á að geta tekið þátt á
þessu tímabili heldur, sem var
erfitt að kyngja. Manni var skyndi-
lega kippt út úr því sem maður elsk-
ar að gera en ég naut góðs stuðnings
frá fjölskyldunni og sjúkraþjálfar-
anum.“
Steinunn vakti athygli þegar hún
var komin aftur í lið Fram sex vikum
eftir barnsburð og viðurkennir að
það hafi um tíma verið erfitt að sitja
á sér í endurhæfingunni.
„Sjúkraþjálfarinn minn, Rúnar
Pálmarsson, sá vel um mig og sá til
þess að ég myndi ekki fara of geyst
af stað og fara eftir því sem fræðin
segja. Hann var duglegur að minna
mig á það, þótt það hafi verið komin
ansi mikil eftirvænting í upphafi
ársins þegar mér fannst ég vera til-
búin. Það voru margir sem slógu á
létta strengi og höfðu orð á því að ég
yrði enga stund að ná mér af þessu
stuttu eftir að ég meiddist,“ segir
Steinunn glettin.
Einvígið sjálft var gríðarlega
spennandi. Þrír af fjórum leikjun-
um enduðu á eins marks sigri og í
þeim fjórða var munurinn eitt mark
þegar mínúta var eftir. Steinunn
tekur undir að það hafi ekki verið
margt sem skildi liðin að, aðspurð
hvað hafi ráðið úrslitunum.
„Fyrst og fremst var þetta frábært
einvígi. Það sem mér fannst skilja
liðin að í lok dags voru litlu hlut-
irnir. Við vorum að fá þessi klóku
en auðveldu mörk. Svo var Hafdís
(innsk. Renötudóttir, markvörður
Fram) frábær í einvíginu á meðan
markmenn Vals náðu sér ekki jafn
vel á strik.“
Steinunn fer fögrum orðum um
Stefán Arnarson, þjálfara Fram, sem
var að vinna sinn sjöunda Íslands-
meistaratitil.
„Stefán er auðvitað frábær þjálf-
ari. Hann nær alltaf að halda ótrú-
lega góðri liðsheild hjá liðunum
sínum og gerir hlutina svo skemmti-
lega og um leið einfalda. Hann held-
ur liðunum sínum í frábæru standi
og er um leið ótrúlega klókur.“ n
Þessi titill verður sérstaklega eftirminnilegur
Steinunn með
Íslandsmeist-
aratitilinn í Safa-
mýrinni sem
hún segir að sé
henni hálfgert
æskuheimili.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR