Fréttablaðið - 31.05.2022, Qupperneq 34
kolbrunb@frettabladid.is
Elli Egilsson heldur einkasýninguna
Nevada í Þulu og mun sýningin
standa til 19. júní.
Elli er sjálfmenntaður mynd
listarmaður, fæddur og uppalinn í
Reykjavík, en hefur starfað síðustu
misseri í Los Angeles og Las Vegas,
þar sem hann er búsettur.
Verk Ella eru unnin eftir ímynd
uðum myndformum íslenskrar
náttúru, eins og hún formast í skap
andi hugsun, engir sérstakir staðir
hafðir í huga, pensillinn látinn
ráða för og verkin máluð á draum
kenndan hátt með heimagerðum
olíulitum þar sem listamaðurinn
notar sína eigin olíulitaformúlu.
„Verk mín eru einfaldlega minn
ingar fyrir komandi kynslóðir, sýna
landslagið eins og það verður til í
hugarheimi mínum, raunverulegt
en ímyndun í bland. Málarar fyrri
tíma hafa skilið eftir sig stórbrotin
listaverk sem lýsa því hvernig þeir
sáu heiminn í kringum sig, veröld
sem þá var. Mig langar að skilja
eftir mig mína sýn, mitt sjónarhorn
á náttúruna og óbyggðir landsins,
fyrir komandi kynslóðir að upplifa
og njóta,“ segir listamaðurinn. n
Verk mín eru einfald-
lega minningar fyrir
komandi kynslóðir.
Hann vakti mikla
athygli strax í upphafi
því verk hans voru
grótesk en í yngri
verkunum er hann
greinilega upptekinn
af andlegum hugleið-
ingum.
Verk Gunnars Arnar Gunn
arssonar eru á sýningu í
aðalsal Hafnarborgar. Yfir
skrift sýningarinnar er Í
undirdjúpum eigin vitundar.
Sýningarstjóri er Aldís Arnar
dóttir.
Gunnar Örn hélt fyrstu einkasýn
ingu sína í Unuhúsi árið 1970 og var
þá tuttugu og fjögurra ára gamall.
Árið 1988 var hann fulltrúi Íslands
á Feyneyjatvíæringnum. Hann lést
árið 2008.
„Þetta er yf irlitssýning sem
spannar tæplega 40 ára feril,“ segir
Aldís. „Gunnar Örn vann í marga
miðla og notaði ólíkar aðferðir. Hér
eru málverk, þrykk, vatnslitaverk
og skúlptúrar bæði úr tré og unnir
með blandaðri tækni. Verkin bera
vitni um hin fjölbreyttu efnistök
sem listamaðurinn beitti.“
Andleg upplifun
Gunnar Örn var að mestu sjálf
menntaður í myndlist. „Það var
ekki af því hann hafði ekki áhuga
á að mennta sig heldur hafði hann
ekki tök á því. Hann gerði sér grein
fyrir að teikningin væri mikilvæg
og fór á teikninámskeið í Dan
mörku en var að öðru leyti sjálf
menntaður.
Allan ferilinn er undirliggjandi
ákveðinn tilvistarstrengur. Þegar
maður gengur um sýninguna sér
maður að verkin eru mjög ólík en
alls staðar er þessi þráður, tilvistin.
Hann vakti mikla athygli strax í
upphafi því verk hans voru grót
esk en í yngri verkunum er hann
greinilega upptekinn af andlegum
hugleiðingum. Í þeim verkum eru
einföld form, f letir og punktar.
Fjölbreytt
efnistök
Gunnar Örn
vann í marga
miðla og notaði
ólíkar aðferðir,
segir Aldís.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Sjónarhorn á náttúruna
Mig langar að
skilja eftir mig
mína sýn, segir
Elli.
MYND/AÐSEND
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Hann varð fyrir andlegri upplif
un, eins og hann orðaði það sjálfur
og í kjölfarið f lutti hann að Kambi
í Rangárvallasýslu. Þar hafði hann
góða vinnuaðstöðu, meðal ann
ars í skemmu og gat farið að vinna
skúlptúra sem hann gat ekki gert
áður vegna aðstöðuleysis.“
Aftur í dagsljósið
Gunnar Örn var gríðarlega afkasta
mikill og fjöldi verka liggur eftir
hann. Verkin á sýningunni koma
frá ekkju listamannsins og fjöl
skyldu hans, einnig frá Listasafni
Íslands og Listasafni Reykjavíkur,
Arion banka og einkasöfnurum.
„Ég held að það sé áhugavert fyrir
fólk að sjá hér feril hans í heild. Ekki
síst fyrir yngri listamenn sem eru
margir í alls kyns útvíkkun á mál
verkinu og þekkja kannski ekki
vel til verka hans, en Gunnar Örn
tók á sínum tíma fullan þátt í nýja
málverkinu. Það er gaman að geta
dregið Gunnar Örn aftur fram í
dagsljósið,“ segir Aldís. n
22 Menning 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 31. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR