Fréttablaðið - 22.06.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 22.06.2022, Blaðsíða 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Primex Iceland setti fyrir ári síðan á markað vörulínu undir nafninu ChitoCare Medical. Línan saman- stendur af græðandi vörum sem innihalda lífvirka trefjaefnið kítósan. Vörurnar hafa verið viður- kenndar á Evrópumarkaðinum sem lækningatæki í f lokki þrjú. „Við framleiðum kítósan, sem er virka efnið í vörunum. Kítósan er náttúrulegt efni, lífvirk fjölliða einangruð úr auðlindum sjávar við Íslandsstrendur. Þetta er jákvætt hlaðið efni sem binst við neikvætt hlaðin efni. Kítósan binst húðinni eða sárum sem þarfnast verndar, myndar filmu og veitir rétt skilyrði til að viðhalda raka og efla nátt- úrulegt viðgerðarferli húðarinnar. Þannig hraðar það gróandanum í sárum,“ segir Sigríður Vigfúsdóttir, forstjóri Primex. „Við höfum verið að þróa sára- vörurnar í langan tíma en á síðasta ári fengu þær vottun sem lækn- ingatæki í f lokki þrjú. Það er hæsti áhættuflokkur sem lækningatæki getur fengið. Við fengum þessa vottun vegna þess að við erum með klínískar rannsóknir á vör- unum sem sýna fram á árangur,“ útskýrir hún. Aðdragandinn að framleiðslu ChitoCare Medical vörulínunnar er að fyrirtækið hafði unnið sem hrá- efnisframleiðandi fyrir önnur fyrir- tæki sem eru meðal þeirra fremstu í heiminum í sárameðhöndlun. „Upp úr þeirri þekkingu sem við fengum eftir að hafa unnið með kítósan við sárameðhöndlun, ákváðum við að búa til okkar eigin vörur. Það er ferli sem hófst fyrir meira en tíu árum síðan,“ upplýsir Sigríður. „Við fórum í gegnum vöruþróun og forrannsóknir. Þróunarferlið náði svo hámarki þegar við fram- kvæmdum klínískar rannsóknir. Þar á meðal var stór klínísk rann- sókn sem sannaði að vörurnar okkar virka vel á fótasár sem koma vegna sykursýki, en það eru erfiðustu sárin til að græða. Fólk er með þessi sár í mörg ár og þau geta valdið því að aflima þarf sjúklinga. Við fengum mjög góðar klínískar niðurstöður úr þeirri rannsókn. Í kjölfarið fengum við áðurnefnda vottun, eða CE-merkingu eins og það kallast, fyrir vörurnar sem lækningatæki í f lokki þrjú.“ Náttúrulegt og græðandi Í ChitoCare Medical vörulínunni eru tvær vörur. ChitoCare Medical sáragel og ChitoCare Medical græðandi sprey. ChitoCare Medical sáragelið er náttúrulegt sáragel til meðferðar á bruna, bráðum og þrálátum sárum ásamt húðvandamálum. Sigríður segir gelið góða fyrstu hjálp fyrir sár, bruna og ör. Meðal virkni þess er að það: n Minnkar þrálát sár á árangurs- ríkan hátt n Verndar gegn sýkingum n Hefur græðandi áhrif á bráða- og brunasár n Dregur úr sviða, roða og kláða n Dregur úr blæðingu n Er náttúrulega græðandi „Sáragelið virkar vel á áverkasár eins og skurði, núningsáverka, brunasár, þrýstingssár og þrálát sár eins og sykursýkissár, líkt og ég nefndi áðan,“ segir Sigríður. „Það sefar einkenni eins og kláða og roða og stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Það er áhrifaríkt á sólbruna, ör, bólur eins og unglingabólur, frunsur, blöðrur, húðútbrot, exem, þurra og sprungna húð, flugnabit og húðbólgur. Einnig má nota það á húð til styrkingar og verndar í forvarnarskyni. Gelið hentar fyrir alla, líka eldra fólk og börn.“ ChitoCare Medical græðandi sprey er hugsað til meðferðar á ertri og skaddaðri húð. Það er ásamt sáragelinu góð fyrsta hjálp fyrir sár og bruna og einnig fyrir bit eins og lúsmýbit. Meðal kosta spreysins er að það: n Verndar húðina n Græðir minni háttar sár n Dregur úr sviða, roða og kláða n Hefur góð áhrif á væg brunasár n Virkar vel á sólbruna n Er náttúrulega græðandi ChitoCare Medical græðandi sprey, líkt og sáragelið, hentar fyrir alla aldurshópa. Væntanlegt á markað er Chi- toCare Medical ör sáragel sem er tilvalið til meðhöndlunar á nýjum og eldri örum. „Það hafa verið gerðar klínískar rannsóknir sem sýna fram á að ör sáragelið virkar á eldri ör. Við höfum séð tilfelli þar sem ör sem var eldra en 18 ára minnkaði veru- lega hjá fólki sem notaði vöruna,“ segir Sigríður. Góðar sumarvörur „Ásamt því að græða sár eru Chi- toCare Medical vörurnar sérstak- lega hentugar á sumrin af því þær slá á kláða og bólgur, og henta því vel á lúsmýbit. Einnig eru þær góðar fyrir sólbruna. Sólbruni veldur skemmdum á húð, og þessar vörur hjálpa við að koma í veg fyrir frekari skemmdir, kæla húðina og vernda gegn rakatapi. En það sem gerist oft við bruna er að rakinn hverfur úr húðinni og þess vegna getur hún verið lengi að jafna sig,“ segir Sigríður. „Þegar við vorum að þróa þessar vörur sáum við hvað virka efnið kítósan hefur góð áhrif á húðina. Þess vegna ákváðum við að þróa einnig húðvörulínu með því að nota sömu tækni. Húðvörulínan heitir ChitoCare Beauty.“ ChitoCare Beauty línan inni- heldur meðal annars: n ChitoCare Beauty Body Lotion, n ChitoCare Beauty Body Scrub, n ChitoCare Beauty Face Cream, n ChitoCare Beauty Hand Cream n ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum. „ChitoCare Beauty Face Cream, andlitskremið er með sólarvörn og er því góður kostur á sumrin. Ef þú notar ChitoCare Medical við sólbruna þá er gott að nota and- litskremið með. Þá er líka gott að nota ChitoCare Beauty Body Lotion húðkremið samhliða sáravörunum, þessar vörur eru mjög góðar til að hleypa raka í húðina,“ segir Sigríður og bætir við að klínískar rann- sóknir sýni að ChitoCare beauty Anti-Aging Repair Serum og Chi- toCare Beauty Face Cream minnki einnig hrukkur og fínar línur. Nú þegar ChitoCare Medical vörurnar hafa verið á markaði í eitt ár segir Sigríður að þau hjá Primex Iceland hafi fengið að heyra fjöldann allan af jákvæðum reynslusögum frá notendum. „Flýtir fyrir gróanda í sárum og dregur líka úr bólgum við sár. Dregur úr kláða og sviða vegna skordýrabita,“ segir Rakel Páls- dóttir, ánægður notandi. Annar ánægður notandi, Hildur Helga- dóttir segir: „Gelið er frábært á allt, skurði, bólur, roða, rispur og útbrot. Það er ekki klístrað og fer vel inn í húðina.“ n ChitoCare Beauty vöru- línan er búin til úr kítósani, líkt og ChitoCare medical. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Maðurinn á myndunum brenndist eftir gassprengingu. Hann náði sér á aðeins 12 dögum með því að nota sáragelið á kvöldin og ChitoCare Medical sárasprey og ChitoCare Body Lotion daglega. MYNDIR/AÐSENDAR ChitoCare Medical sáragel. ChitoCare Medical græðandi sprey. Dagur 0 Dagur 1 Dagur 3 Dagur 5 Dagur 12 ChitoCare Medical vörurnar eru sér- staklega hentugar á sumrin. Þær slá á kláða og bólgur og henta því vel á lúsmýbit. Sigríður Vigfúsdóttir 2 kynningarblað 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGURSUMARVARNIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.