Fréttablaðið - 22.06.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 22.06.2022, Blaðsíða 1
Við erum að leita að skrifstofugörðum þar sem saman geta komið margir aðilar með skylda starfsemi sem eiga samleið. Guðmundur Arason, fram- kvæmdastjóri leiguþjónustu FSRE 1 2 1 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . J Ú N Í 2 0 2 2 Dreymir um að verða skáld Guðrún Árný verður í Eyjum Menning ➤ 22 Lífið ➤ 26 NÚ ER TÍMI FYRIR SUMMER SALE Er ferðavagninn þinn tryggður? Hugsum í framtíð Fjöldi ríkisstofnana er í úreltu og ósveigjanlegu húsnæði og er nú verið að bregðast við því með markaðskönnun á allt að tuttugu þúsund fermetra leiguhúsnæði á höfuðborgar- svæðinu. ser@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Framkvæmdasýslan og Ríkiseignir (FSRE) leita nú að allt að tuttugu þúsundum fermetra af skrifstofuhúsnæði til leigu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins og eru kröfur uppi um að húsnæðið þurfi að vera miðsvæðis á höfuðborgar- svæðinu og liggja vel við helstu samgönguæðum. Nýja húsnæðið mun leysa af eldra og óhentugra húsnæði sem gjarnan hefur verið stúkað niður í stórar og litlar skrifstofur sem eru úr takti við þarfir og þróun á sveigj- anlegu skrifstofurými nútímans þar sem horft er til opinna vinnu- svæða. Þá er nýja húsnæðinu einnig ætlað að hagræða í rekstri ríkisins með því að koma nokkrum ríkis- stofnunum saman í eitt og sama húsnæðið, sem gefur færi á sam- eiginlegri stoðþjónustu, svo sem afgreiðslu og mötuneyti. „Við erum að leita að skrif- stofugörðum þar sem saman geta komið margir aðilar með skylda starfsemi sem eiga samleið,“ segir Guðmundur Arason, framkvæmda- stjóri leiguþjónustu FSRE, en hann segir að með skilvirkum hætti sé hægt að ná niður fjölda fermetra á starfsmann um fimmtíu prósent, en til þess þurfi nýtt og sveigjan- legt húsnæði. Gert er ráð fyrir að umræddar ríkisstofnanir geti f lutt á nýjar sameiginlegar skrifstofur og að leigutími verði fimmtán til tuttugu og fimm ár auk mögulegrar fram- lengingar. n Ríkið leitar að þúsundum fermetra fyrir stofnanir á höfuðborgarsvæði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra nutu listarinnar á Kjarvalsstöðum í gær. Ekki var þó um að ræða eintóma menningarheimsókn, heldur voru ráðherrarnir mættir til að undirrita viljayfirlýsingu um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk. Var þar glatt á hjalla er þrír ráðherrar og formenn Sambands íslenskra sveitarfélaga og Lands- sambands eldri borgara skrifuðu undir yfirlýsinguna. Óhætt er þó að segja að sígild málverk Jóhannesar Kjarval, sem prýddu salinn, hafi stolið senunni. SJÁ NÁNAR Á BLS. 4. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI NÁTTÚRA Jarðeigandi, sem átti lengi eign vestan við Fjaðrárgljúfur, segist telja að fleiri eigendur séu að jörð- inni sem Fjaðrárgljúfur tilheyrir en landeigendurnir á Heiði. Heiði var nýlega seld íslenskum viðskipta- manni sem hyggst rukka bílastæða- gjald sem aðgangseyri að náttúru- perlunni. Ef rétt reynist að gljúfrið sé í eigu fleiri en einnar landeignar er óljóst hvort samningur, sem nýr eigandi gerði við stjórnvöld um friðlýsingu gljúfursins, haldi. Íslenska ríkið féll frá forkaupsrétti sínum að jörðinni og með því varð ljóst að hún yrði ekki gerð að ríkis- jörð. SJÁ BLS. 4 Hyggst innheimta gjald við bílastæði að Fjaðrárgljúfri

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.