Fréttablaðið - 22.06.2022, Blaðsíða 34
Mig dreymir enn um
að vera bara skáld og
vona að ég vakni ekki
af þeim draumi alveg
strax.
Örvar Smárason
Örvar Smárason fékk
Nýræktarstyrk á dögunum
fyrir handritið að fyrsta smá-
sagnasafni sínu, Svefngrím-
unni, sem kemur út á vegum
Angústúru næsta haust.
tsh@frettabladid.is
Rithöfundurinn og tónlistarmaður-
inn Örvar Smárason er einn þriggja
höfunda sem fengu Nýræktarstyrk
2022 frá Miðstöð íslenskra bók-
mennta. Handrit hans, Svefngrím-
an, er smásagnasafn sem dansar á
mörkum hversdagslegra frásagna
og furðusagna.
„Þetta eru átta smásögur, margar
af hverjum ég er búinn að vera að
vinna og láta malla ansi lengi. Þetta
eru allt sögur sem gerast í hvers-
dagsleikanum, um fólk sem finnst
það þurfa að taka ábyrgð á lífinu,
en í hverri sögu er eitthvað utan-
aðkomandi sem flækist fyrir. Oftar
en ekki eitthvað nálægt því að vera
hryllingur,“ segir höfundurinn.
Örvar hefur á undanförnum
áratugum getið sér gott orð sem
tónlistarmaður, en hann er stofn-
meðlimur hljómsveitanna múm
og FM Belfast. Hann segir þó rit-
listina alltaf hafa átt sérstakan stað
í hjarta hans.
„Ég hef alltaf skrifað mjög mikið.
Síðan ég var unglingur þá var það
svona upprunalega: „Hvað ætlarðu
að verða þegar þú verður stór“ pæl-
ingin. Ég ætlaði alltaf að verða skáld
eða rithöfundur en svo datt ég óvart
inn í tónlistina sem hefur þvælst
svolítið fyrir mér síðustu tuttugu
árin.“
Margar pælingar í gangi
Að sögn Örvars standa áðurnefnd
tvö listform, tónlistin og ritlistin,
jafn nálægt honum og rúmlega það.
„Mig dreymir enn um að vera
bara skáld og vona að ég vakni ekki
af þeim draumi alveg strax. Ég þarf
samt alltaf bara að helga mig því
sem kallar á mig hverju sinni og get
eiginlega ekki sloppið frá því. Akk-
úrat núna er það bæði,“ segir hann.
Örvar er maður margra hatta og
þótt hann sé aðallega að vinna með
smásagnaformið núna þykir honum
ekki ólíklegt að hann muni fara út
í eitthvað allt annað í skrifunum
síðar meir.
„Hugmyndir ásækja mig, þær
hrúgast upp í hausnum á mér og því
er fullkomið að koma frá mér átta á
einu bretti í svona smásagnasafni.
Það hefur alltaf verið eins með tón-
listina, ég hef eiginlega alltaf verið
með of mikið af pælingum í gangi,
of mikið af hljómsveitum, of mikið
af verkefnum.“
Var algjörlega á botninum
Skiptir það miklu máli fyrir höf-
unda sem eru að stíga sín fyrstu
skref í ferlinum að fá Nýræktar-
styrk?
„Það skiptir mig allavega miklu
máli. Eins og allir þeir sem hafa
skrifað vita, þá stundum í ferlinu er
maður bara algjörlega á botninum.
Það er rosalega erfitt að finna sjálfs-
traustið og orkuna stundum og
þessi Nýræktarstyrkur kom á stað
þar sem ég var á algjörum botni.
Þegar styrkurinn kom þá var hann
eins og vítamínsprauta. Eins og að
skvetta vatni í andlitið.“
Örvar útskrifaðist nýlega úr
meistaranámi í ritlist og starfar
nú í hlutastarfi á bókasafni. Hann
segir ýmislegt vera á döfinni hjá sér
í bæði skrifunum og tónlistinni.
„Ég er að leggja lokahönd á sóló-
plötu sem ég er búinn að vera með
í vinnslu í nokkur ár. Síðan er ýmis-
legt að gerast í múm-heimum, við
erum á leiðinni til Ítalíu í haust að
taka upp nýja plötu. Svo er ég með
þónokkuð af skáldskap í stílabók-
inni sem ég er að þróa áfram.“ ■
Hugmyndir ásækja mig
Örvar segir Nýræktarstyrkinn hafa verið kærkominn enda var hann þá á
algjörum botni í skrifunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
kolbrunb@frettabladid.is
Sýning Julie Lænkholm, We The
Mountain / Fjallið við, er í Ásmund-
arsal og stendur til 10. júlí.
Verk Lænkholm eru oft unnin
með textíl. Hún notar efni og ull frá
ættarbænum sínum Húsavík þar
sem hún kynntist jurtalitun í fyrsta
sinn og textílaðferðum sem hafa
mótað iðkun hennar síðan. Lænk-
holm telur ljóðstafi felast í öllu efni.
Á einkasýningu sinni í Ásmundar-
sal vinnur hún með ljóð Guðnýjar
frá Klömbrum (1836), Saknaðar-
ljóð, og skoðar hvernig sársauki og
lækning birtist í ljóðinu samtímis.
Á hverjum fimmtudegi í aðdrag-
anda sýningarinnar bauð Lænk-
holm gestum að taka þátt í opinni
rannsóknarvinnu sem hét Wool
Gathering á vinnustofu sinni í
Gryfjunni, Ásmundarsal. Á hverri
samkomu deildi gestakennari
þekkingu sinni til að skapa sam-
eiginlega lækningarleið, Morwenna
Bugano (miðill og heilari) , Katrine
Bregengaard (fræðimaður og hug-
leiðslukennari) og Auður Hildur
Hákonardóttir (listamaður).
Julie býr og starfar í Kaupmanna-
höfn. Hún er útskrifuð frá Parsons,
The New School of Design í New
York. Hún er einnig menntaður
hjúkrunarfræðingur með sérhæf-
ingu í hjartaskurðlækningum. ■
Vinnur með ljóð Guðnýjar
Julie Lænkholm sýnir í Ásmundarsal.
MYND/AÐSEND
A F S L ÁT T U R
20%
STILL ANLEGIR
DAGAR
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
SETTU ÞIG Í STELLINGAR
FYRIR BETRI SVEFN
MEÐ ÞVÍ EINU AÐ SNERTA TAKKA GETUR ÞÚ STILLT
RÚMIÐ Í HVAÐA STELLINGU SEM ÞÉR HENTAR
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta er
pokagormadýna skipt upp í fimm mismunandi
svæði. Gormakerfið er með þéttari stuðning við bak
og mjaðmasvæði en mýkri við axlir. Þannig tryggir
þú rétta svefnstellingu hver sem svefnstaða þín er
og hjálpar þér að ná dýpri og betri svefni. Hægt er
að sérsníða rúmið eftir þínum þörfum; velja um þrjá
mismunandi stífleika sem og fjórar mismunandi
toppdýnur. Áklæðið utan um dýnuna er mjúkt og
slitsterkt, ofnæmisfrítt og andar vel.
Serta Splendid stillanlegt heilsurúm með Ocean gafli
og HR toppi. 2x90x200 cm. Fullt verð: 679.900 kr.
Tilboð 543.920 kr.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
LÝKUR UM
HELGINA
22 Menning 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR