Fréttablaðið - 22.06.2022, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 22.06.2022, Blaðsíða 14
Haldið áfram að heim- sækja og hringja í vini ykkar og fjölskyldu- meðlimi, þó að þið þurfið að segja þrisvar að þið voruð í sumar- bústað um síðustu helgi, skiptir það ein- hverju máli? Ekki verð- ur hægt að leggja neinar línur á því sviði nema setja stöðl- uð viðmið og nota staðlaðar aðferðir og mælingar til að unnt sé að segja til um orkunýtni og flokka húsnæði eftir henni. Kosningum til sveitarstjórna er lokið og ljóst hvernig landið liggur næstu fjögur árin í borgarstjórn Reykjavíkur. Flokkur fólksins mun gera sitt besta til að koma mikilvæg- um baráttumálum í þágu borgarbúa í brennipunkt umræðunnar. Við lifum áfram í þeirri von að dropinn holi steininn. Baráttumálin okkar lúta að því að bæta þjónustu, aðstæður og líf þeirra sem minna mega sín í Reykjavík. Í borginni eru margir viðkvæmir hópar sem hafa orðið út undan, sem hafa ekki verið settir ofarlega í forgangsröðun síðasta meirihluta. Biðlistar hafa verið tíðræddir hjá Flokki fólksins. Frá kosningum hafa biðlistar barna eftir fagfólki skóla lengst um 200 börn. Á listanum eru nú 2.011 börn en þar voru um 400 börn árið 2018. Ekki sjást enn nein alvöru merki þess að taka eigi á þessu stóra og vaxandi vandamáli. Aðeins 140 milljónir hafa verið veittar í mála- f lokkinn á tveimur árum sem enn eru ekki fullnýttar. Því er borið við að erfitt sé að ráða sálfræðinga. Það liggur í augum uppi að finna þarf leiðir til að laða sálfræðinga til að starfa hjá borginni. Svo mikið er víst að allt er hægt sé viljinn fyrir hendi. Fátækt og vanlíðan Fátækt hefur aukist og samhliða versnandi stöðu hjá mörgum fjöl- skyldum eykst vanlíðan og kvíði. Flokkur fólksins vill að borgin beiti sér sérstaklega í þágu hinna verst settu til að auka megi jöfnuð. Á fundi borgarstjórnar 21. júní lagði Flokkur fólksins fram tillögu um að veita lágtekjuheimilum sér- tæka aðstoð vegna gjalda tengdum börnum. Endurskoða þarf reglur Reykja- víkur um fjárhagsaðstoð með tilliti til þess að tekjulágir foreldrar fái styrk til að greiða fyrir daggæslu barns í heimahúsum, leikskóla- vistun og frístundaheimili, sumar- dvöl og þátttöku barns í þroskandi félags- og tómstundastarfi. Flokkur fólksins mun leggja til að skipaður verði starfshópur, skip- aður sérfræðingum frá skóla- og frístundasviði, og velferðarsviði verði falið að kanna hvernig skuli útfæra slíkt styrktarúrræði. Það verður að ná til fátækustu barna- fjölskyldnanna og sem f lestra barnafjölskyldna sem eiga erfitt með að standa straum af kostnaði í tengslum við börn sín. Jöfn tækifæri allra barna Afar mikilvægt er að tryggja að öll börn sitji við sama borð og hafi jöfn tækifæri án tillits til efnahags for- eldra. Það er samfélagsleg skylda okkar að aðstoða foreldra sem eiga erfitt með að greiða gjöld vegna þjónustu við börn sín. Eins og staðan er í dag erum við aðeins að hjálpa litlum hluta af þessum börnum í Reykjavík. Sam- kvæmt tölum frá mars sl. fá sum þessara barna gjaldfrjálsa mál- tíð, eða 262 börn, en aðeins 166 fá ókeypis leikskóladvöl og 118 ókeypis í frístundir. Ekki er mikið vitað um aðstæður þeirra tæplega 2.000 barna undir 18 ára sem búa við fátækt eða eru í hættu á að líða fyrir fátækt. Ganga þarf lengra og gera betur. Um er að ræða börn fátækustu for- eldra borgarinnar, börn einstæðra foreldra, börn foreldra sem eru atvinnulausir, börn foreldra sem eru öryrkjar eða glíma við veikindi. Þessum foreldrum þarf að hjálpa þannig að þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur af gjöldum sem tengjast umönnun og menntun barna sinna enda iðulega ekki mikið eftir af tekjum þegar búið er að greiða hús- næðiskostnað. Sálfræðingar út í skólana Flokkur fólksins hefur barist fyrir því allt kjörtímabilið að sálfræðing- ar hafi aðsetur í skólunum frekar en í þjónustumiðstöðvum. Það fyrir- komulag er bæði óhagkvæmt og hvorki í þágu barnanna né kennara. Kostnaður vegna ferða sálfræðinga út í skóla er um 3 milljónir á ári. Gera má því skóna að hafi sálfræð- ingar aðsetur í skólum geti þeir leyst verkefni sín með skilvirkari hætti og tíma þeirra verði betur varið. Það liggur í augum uppi að skóla- sálfræðingar eiga að starfa þar sem viðfang og verkefni þeirra eru, þar sem þeir geta verið til taks og sinnt ráðgjöf samhliða viðtölum og grein- ingum. Því er ekkert að vanbúnaði að taka strax þá ákvörðun að sál- fræðingar flytji aðstöðu sína út í þá skóla sem hafa aðstöðu fyrir skóla- sálfræðinginn. Enginn kostnaður hlýst þar af og gæti f lutningurinn átt sér stað nú þegar. ■ Látum ekki deigan síga í borginni Kolbrún Baldursdóttir oddviti Flokks fólksins í borgar- stjórn Reykjavíkur Ríkisstjórnin setti sér nýverið for- gangsraðaðan aðgerðalista tengdan hagsmunagæslu Íslands vegna aðildar að EES samningnum. Þar segir að leiðarstef framkvæmda- stjórnar ESB sé að styrkja stöðu sambandsins á alþjóðavettvangi, efla samkeppnishæfni Evrópu í iðn- aði og viðskiptum og þar er lagður grunnur að þverfaglegri nálgun og samvinnu. Þar kemur ekki fram að það verði gert að talsverðu leyti með stöðlun en sú er þó raunin. Á for- gangslistanum segir að þessi nálgun kalli á að íslenska stjórnkerfið vinni samhent að hagsmunagæslu í góðu samráði við hagsmunaaðila. Ef rif jað er upp hvað felst í stöðlun er um að ræða sammælt viðmið hagaðila, unnin eftir verk- ferlum sem tryggja að raddir allra, og besta mögulega þekking, verði inntak þeirra. Staðlar eru alla jafna valkvæðir en verða hluti af löggjöf þegar löggjafinn ákveður að vísa til þeirra. Með notkun staðla tryggjum við nefnilega að besta fáanlega sér- fræðiþekking rati inn í okkar litla hagkerfi. Sú trygging er beinlínis byggð inn í EES samninginn. Kolefnishlutleysi 2040 Forgangslistinn inniheldur hags- munagæslu á sviði loftslagsmála. Þegar kemur að loftslags- og umhverfismálum er nú þegar til fjöldi alþjóðlegra staðla sem varða leið að árangri í umhverfismálum. Staðlaráð Íslands vinnur nú að útgáfu tækniforskriftar sem segir til um aðferð við að nýta alþjóðlega ISO-staðla til að varða leiðina að árangri Íslands við að ná kolefnis- hlutleysi árið 2040. Orkunýting bygginga Forgangslistinn inniheldur hags- munagæslu um orkunýtni, þ.m.t. orkunýtni bygginga. Ekki verður hægt að leggja neinar línur á því sviði nema setja stöðluð viðmið og nota staðlaðar aðferðir og mælingar til að unnt sé að segja til um orku- nýtni og flokka húsnæði eftir henni. Á stöðluðum viðmiðum byggja líka grænar fjárfestingar fjármálafyrir- tækja. Ætlum við að verða alvöru og raunverulegir þátttakendur á þessu sviði, verður ekki hjá því komist að vinna stöðlunarvinnu, sem segir til um það hvaða mælingar við notum, hver viðmiðin eru og hvernig við skilgreinum ýmis hugtök sem enn eru okkur ekki þjál og mismunandi skilningur lagður í þau. Þá er gott að vera hluti af stærra mengi og hafa aðgang að borðinu þar sem ákvarð- anir eru teknar. Stafræn umbreyting ekki án samhæfingar Á forgangslista ríkisstjórnarinnar er einnig minnst á mikilvægi þess að stafræn umbreyting sé sam- hæfð. Netöryggi, gervigreind, raf- rænir markaðir og rafræn þjónusta, byggir öll á samhæfðri stöðlun, enda mikilvægt að allt virki vel og ólík tækni virki saman, öryggi sé tryggt, sem og neytendavernd og að þjón- ustustig haldist hátt. Stór alþjóðleg staðlasamtök starfrækja þann vett- vang og Staðlaráð Íslands á aðild að þeim. Við erum nefnilega eitt púsl í stóru myndinni. Forgangsmálið er stöðlun Vettvangurinn til að eiga í góðu samráði við hagaðila er Staðlaráð Íslands, hlutlaus samráðsvettvang- ur þeirra sem hag hafa af stöðlun. Til þess að ná þeim árangri sem stefnt er að í stórum mikilvægum málaflokkum og til að halda áfram að vera þjóð meðal þjóða, þarf að tryggja starfsemi Staðlaráðs, tryggja farvegi fyrir íslenska hagsmuni inn í evrópska regluverkið og taka virkan þátt í því lýðræðislega samstarfi sem á sér stað á hinum fjölþjóðlega vett- vangi sem staðlasamtök bjóða upp á. Það er nefnilega mikilvægt að hið opinbera skili fjármunum sem atvinnulífið greiðir til staðlastarfs og hætti að taka til sín talsverðan hluta hennar, eftir að hafa einhliða rift samkomulagi þar um. Á það hafa 40 stjórnendur og sérfræð- ingar opinberra stofnana, samtaka og einkafyrirtækja nýverið bent á. Það er ekki síður mikilvægt að full- trúar hins opinbera taki fullan þátt í stöðlunarstarfi, sem samkeppnis- hæfni landsins hangir á sem og neyt- endavernd, heilsa og öryggi Íslend- inga, að ekki sé talað um samvirkni, gæði og aukna landsframleiðslu. Staðlar verða nefnilega oft hluti af löggjöf þó alla jafna séu þeir val- kvæðir. Þá er mikilvægt að íslenskir hagsmunir eigi rödd við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Þetta reddast nefnilega ... ekki mikið lengur. ■ Þetta reddast ... ekki mikið lengur Helga Sigrún Harðardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands Ég starfa í dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun þar sem við leggjum áherslu á að þjálfa félagslega, líkam- lega og vitsmunalega færni ásamt því að létta undir með aðstand- endum. Félagsleg þjálfun felst í því að hitta annað fólk, það er ekki f lóknara en það. Það er algengt að fólk með heilabilunarsjúkdóma einangrist, vinirnir hætta að koma í heimsókn eða hringja, vita ekki hvað þeir eiga að segja eða gera, halda jafnvel að viðkomandi muni ekki eftir heimsókninni. Þó að atburður gleymist fljótt, þá gleym- ist ekki tilfinningin sem hann vakti, það er því ómetanlegt að vekja gleði og vellíðan því þá verður dagurinn áfram góður. Haldið áfram að heim- sækja og hringja í vini ykkar og fjöl- skyldumeðlimi, þó að þið þurfið að segja þrisvar að þið voruð í sumar- bústað um síðustu helgi, skiptir það einhverju máli? Er ekki gott að eiga gæðastund með góðum vini? Þeim finnst það allavega. Líkamleg þjálfun felst meðal ann- ars í gönguferðum. Það er svo ein- staklingsbundið hvort gangan er löng, stutt eða bara á milli bekkja. Það má horfa á fuglana, blómin eða jafnvel telja rauða bíla. Hreyfingin og samveran getur gert daginn góðan. Hefur þú lausa stund til að bjóða vini í göngutúr? Vitsmunaleg þjálfun er afar fjöl- breytt. Að gera eitthvað nýtt er best af öllu. Krossgátur hætta að vera góð heilaleikfimi þegar þú ert farin að fylla þær inn á sjálfstýringu. Í Yatzy og pílukasti þarftu að reikna út stig- in, Olsen Olsen og vist láta þig hugsa og gamli góði Matador lætur mann aldeilis reyna á heilann. Tónlist kveikir á huganum líka og með því að spjalla um textana, höfundana og söngvarana á milli laga ertu að nota heilann vel. Endurminninga- vinna er góð, rifja upp fermingar- daginn, brúðkaupsdaginn, að vera sendur í sveit, böllin á Röðli, það er margt hægt að rifja upp. Ljóða- og bókalestur, þar sem er spjallað um það sem verið er að lesa, er góður. Það eru til ótal spurningaspil, það þarf ekki endilega að vera í þeim í keppni, heldur samvinnu. Ég er viss um að eitthvað af því sem hér er upp talið væri góð afþreying fyrir þig og vin. Með því að halda virku sambandi við vini þína og fjölskyldumeðlimi sem fá heilabilun, getur þú verið virkur þátttakandi í þjálfuninni sem þeir þurfa á að halda til að hægja á sjúkdómnum, viðhalda færni sinni og eiga góða daga. Líð- andi stund skiptir mestu máli og við þurfum að muna að tilfinningin gleymist ekki þó að atburðurinn geri það. ■ Átt þú vin með heilabilun? Ólína Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfræð- ingur og forstöðu- maður dagþjálf- unar í Maríuhúsi 14 Skoðun 22. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.