Skessuhorn - 28.07.2021, Blaðsíða 8
miðvikudagur 28. júlí 20218
Fyrstu réttir
BORGARBYGGÐ: Sveit-
arfélagið Borgarbyggð birtir
á vefsíðu sinni lista um fjár-
réttir í haust. Þeim hefur nú
víða verið flýtt um viku mið-
að við fyrri hefðir. Fyrstu
réttir verða: Nesmelsrétt 4.
september, kaldárbakkarétt
5. september, Fljótstungu-
rétt 11. og 12. september,
Brekkurétt 12. september,
Hítardalsrétt 13. september,
Svignaskarðsrétt 13. sept-
ember, Þverárrétt 13. sept-
ember, grímsstaðarétt 14.
september, Oddsstaðarétt
15. september, rauðsgilsrétt
19. september og mýrdals-
rétt 21. september. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
17. til 23. júlí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu.
Akranes: 16 bátar.
Heildarlöndun: 20.488 kg.
Mestur afli: arnar Ár-55:
4.096 kg. í fjórum löndun-
um.
Arnarstapi: 12 bátar.
Heildarlöndun: 23.296
Mestur afli: Hrólfur ak-29:
3.507 kg. í þremur löndun-
um.
Grundarfjörður: 14 bátar.
Heildarlöndun: 183.962 kg.
Mestur afli: Skinney SF-20:
82.351 kg. í einni löndun.
Ólafsvík: 28 bátar.
Heildarlöndun: 53.782 kg.
Mestur afli: júlli Páls
SH-712: 14.567 kg. í tveim-
ur löndunum.
Rif: 16 bátar.
Heildarlöndun: 28.505 kg.
Mestur afli: valdimar
SH-250: 2.915 kg. í þremur
löndunum.
Stykkishólmur: 13 bátar.
Heildarlöndun: 24.359 kg.
Mestur afli: Bára SH-27:
4.014 kg. í þremur löndun-
um.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Skinney SF-20 GRU:
82.351 kg. 18. júlí.
2. Þórir SF-77 GRU:
70.294 kg. 18. júlí.
3. Júlli Páls SH-712 ÓLA:
9.193 kg. 20. júlí.
4. Júlli Páls SH-712 ÓLA:
5.374 kg. 18. júlí.
5. Kap II VE-7 GRU:
5.002 kg. 17. júlí.
-frg
Fréttavefurinn mbl.is í reykjavík
birti í síðustu viku skoðanakönnun
sem mmr vann fyrir miðilinn dag-
ana 8.-14. júlí, um fylgi stjórnmála-
flokka í kjördæmunum sex. Þar má
meðal annars sjá að allflestir flokk-
ar sem bjóða fram sækja afar mis-
munandi mikið fylgi eftir því hvort
horft er á suðvesturhorn landsins
eða landsbyggðina.
Ef skoðað er fylgi flokkanna í
Norðvesturkjördæmi sérstaklega er
Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur
samkvæmt könnuninni, fengi um
27% atkvæða. Framsóknarflok-
kurinn mælist næststærstur, fengi
um 19%. Þriðji stærsti flokkurinn
í kjördæminu er Samfylkingin sem
mælist með 15%. miðflokkurinn
kæmi næstur með um 8% og Só-
síalistar um 7%. með svipað fylgi,
eða um og yfir 5%, koma viðreisn,
Flokkur fólksins, Píratar og vinstri
hreyfingin grænt framboð. mm
Byggðarráð Borgarbyggðar hefur,
í umboði sveitarstjórnar, staðfest
kaupsamning á digranesgötu 2 í
Borgarnesi af arion banka. auk þess
liggur fyrir samkomulag um leigu
bankans á hluta húsnæðisins. Hafin
er vinna við að skipuleggja húsnæð-
ið til að þjóna því hlutverki að verða
ráðhús Borgarbyggðar. vinna við
breytingarnar verður síðan boðin
út og því ekki ljóst nú hvenær fram-
kvæmdum verður lokið og ráðhúsið
opnað á nýjum stað. Húsið var eins
og kunnugt er byggt yfir starfsemi
Sparisjóðs mýrasýslu en eftir að
sjóðurinn fór í þrot tók Nýi kaup-
þing banki, síðar arion banki, við
húsnæðinu og flutti starfsemi sína
þangað. Samkvæmt bókun í byggð-
arráði er kaupverð hússins 241 millj-
ón króna og áætlaður kostnaður við
breytingar sex milljónir.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
samþykkti í vor að fela sveitar-
stjóra að skrifa undir kauptilboð
á húsinu, en það var háð ástands-
skoðun þess. jafnframt var ákveð-
ið að fasteignin að Borgarbraut
14 yrði sett í söluferli. meirihluti
starfsemi ráðhússins við Borgar-
braut 14 fluttist í byrjun árs að
Bjarnarbraut 8 þegar ástandsskoð-
un á fasteigninni hafði leitt í ljós
að mikill rakavandi væri í húsnæð-
inu. í kjölfarið var farið í að kostn-
aðarmeta lagfæringar á Borgar-
braut 14 og leiddi sú vinna í ljós
að það yrði dýrara fyrir sveitarfé-
lagið að ráðast í endurbætur held-
ur en að fjárfesta í nýju húsnæði.
Því var ákveðið að kaupa húsið við
digranesgötu 2 eins og nú hefur
verið staðfest.
mm
Fljótt á litið minnir þetta mannvirki á
kirkjutröppurnar á akureyri í úrhell-
isrigningu. En því fer víðs fjarri. Hér
er annar af tveimur laxastigum sem
steyptir hafa verið til að auðvelda laxi
uppgöngu í Brynjudalsá fyrir botni
Hvalfjarðar. Fyrst eftir að þessi stöll-
ótti laxastigi var steyptur var ekk-
ert grindverk ofan á veggjunum. Það
gerðist því ítrekað að lax sem reyndi
uppgöngu í stigann lenti út fyr-
ir vegginn og drapst. Eitt sinn þeg-
ar veiðimaður mætti á svæðið sá hann
27 dauða laxa beggja vegna við laxa-
stigann. var fljótlega eftir það brugð-
ist við og grindverk smíðað. mm
Digranesgata 2 í Borgarnesi þar sem bæði ráðhús og bankaútibú verða til húsa í
framtíðinni.
Gengið frá kaupum Borgarbyggðar á nýju ráðhúsi
Minnir á kirkjutröppurnar á Akureyri
Fylgiskönnun MMR brotin niður eftir kjördæmum