Skessuhorn - 28.07.2021, Blaðsíða 19
miðvikudagur 28. júlí 2021 19
íslandsmót golfklúbba í 2. deild
kvenna fór fram á Bárarvelli í
grundarfirði dagana 23.-25. júlí.
alls tóku sex golfklúbbar þátt og var
leikið í einum riðli þar sem öll liðin
mættust innbyrðis. Nesklúbburinn
og golfklúbbur Fjallabyggðar léku
hreinan úrslitaleik í lokaumferð-
inni um hvort liðið færi upp í efstu
deild. Fyrir leikinn höfðu báðir
klúbbar unnið alla sína leiki. Nes-
klúbburinn hafði betur og tryggði
sér sæti í efstu deild 2022.
vaks
Það var stuð og stemning um
helgina þegar hinir árlegu reyk-
hóladagar voru haldnir hátíðleg-
ir um síðustu helgi. jóhanna Ösp
Einarsdóttir, tómstundafulltrúi
reykhólahrepps, var að sjálfsögðu á
staðnum og sendi okkur pistil með
frásögn af því helsta sem gerðist á
hátíðinni: „Hátíðin byrjaði á föstu-
deginum á barnaviðburðum, þar
var teymt undir börnum á hestum
og svo var Elfar logi hjá kóme-
díuleikhúsinu með leiksýninguna
dimmalimm. vel var mætt á þessa
viðburði og börn brosandi út að
eyrum. Hlaupin voru nokkuð vel
sótt en alls voru hlaupnir yfir 150
kílómetrar. Bjórmílan var haldin í
fyrsta skiptið og þar voru mun fleiri
áhorfendur en þátttakendur. Nýtt
brautarmet var sett; 11.57 mínút-
ur af jóhannesi geir guðmunds-
syni. Ekki allur bjór bjórmílunnar
skilaði sér í mark ef svo má að orði
komast.
jón víðis var með fjölsótta töfra-
sýningu í reykhólabúðinni sem
fylltist af kátu fólki sem brosti út
að eyrum alla sýninguna. Fólk hélt
að einn sýningargestur væri hætt
kominn þegar töframaðurinn dróg
upp sög og ætlaði að saga af hon-
um hausinn, en blessunarlega vissi
töframaðurinn hvað hann væri að
gera og engar blóðsúthellingar voru
þetta kvöldið. Þessari sýningu var
svo fylgt eftir á laugardagsmorgn-
inum með töfraskóla fyrir börnin
sem lærðu nokkur einföld brögð og
geta vonandi haldið eigin töfrasýn-
ingu fyrir foreldra sína. BarSvarið
var vel sótt og var hart barist í kímni
spurningum sem voru að sjálfsögðu
misfyndnar enda er húmor manna
misjafn. Sögur úr grínþáttum voru
heimfærðar á samfélagið og þar
sem þátttakendur BarSvarsins tóku
þátt í gríninu trúðu jafnvel spurn-
ingahöfundar að sögurnar hefðu í
raun og veru gerst á reykhólum.
laugardagurinn var vel sóttur
af heimamönnum og gestum, fólk
horfði á hina glæsilegu dráttarvéla-
sýningu sem trekkir alltaf að mik-
ið margmenni. veltibíllinn var svo
á staðnum og kenndi okkur mikil-
vægi þess að spenna bílbeltin. Þara-
boltinn fór fram á fótboltavellin-
um á reykhólum en þar fékk lið
Strumpanna hinn glæsilega farand-
bikar sem Þörungaverksmiðjan gaf
hátíðinni fyrir 3 árum. Eftir harða
úrslitaviðureign náði grundarliðið
ekki að verja titilinn sinn frá því í
fyrra og enduðu í öðru sæti. regl-
ur þaraboltans hafa þó undanfarin
ár reynt að liðka til fyrir þeim sem
eru að lúta í lægra haldi þar sem ef
annað liðið kemst 3 mörkum yfir
fá andstæðingarnir víti og markið
þeirra minnkað. En allt kom fyrir
ekki enda Strumparnir hörku lið og
áttu sigurinn svo sannarlega skil-
inn!
Á kvöldvöku var íbúi ársins heiðr-
aður en það var að þessu sinni Sóley
vilhjálmsdóttir. Sóley hefur í gegn-
um tíðina tekið mikinn þátt í félags-
málum í sveitinni. Hún hefur verið
leiðandi ásamt öðrum konum að
halda uppi mikilvægum félagsskap
kvenna í sveitinni. Sóley vann lengi
í bankanum í króksfjarðarnesi og
þekkir því vel til allra í sveitinni. í
bankanum tók hún ávallt vel á móti
íbúum og aðstoðaði í hvívetna. Sól-
ey skipar stóran sess í hugum og
hjörtum íbúanna.
dansleikurinn fór fram frá klukk-
an 21 til miðnættis vegna sóttvarna-
reglna sem tóku gildi á miðnætti.
dansleiksgestir voru til fyrirmynd-
ar og var frábær stemning enda
hljómsveitin SuE alveg frábær.
Á sunnudeginum tróð svo harm-
onikku hljómsveitin Nikkólína upp
í króksfjarðanesi í vöfflukaffi hand-
verksfélagsins Össu sem hefur verið
fastur lokaviðburður reykhóladag-
anna undanfarin ár. Hátíðargestum
er þakkað kærlega fyrir samveruna
á reykhóladögum.“vaks/ Ljósm. jöe.
gróa Finnsdóttir er núna um
verslunarmannahelgina að gefa út
sína fyrstu skáldsögu, en hún hef-
ur áður verið meðhöfundur í smá-
sagnasafni auk þess að skrifa ljóð og
greinar. gróa hefur undanfarin 33
ár starfað sem bókasafns- og upp-
lýsingafræðingur á Þjóðminjasafn-
inu í reykjavík og í starfi sínu m.a.
sinnt greinaskrifum. gróa er gam-
all Borgnesingur, á sumarbústað í
landi gufuár í Borgarhreppi, þar
sem hún er fædd og uppalin.
Bók gróu heitir Hylurinn og
gerist nær öll í Borgarnesi. „Hylur-
inn er dramatísk og spennandi saga
af heillandi mannlífi, andlegum
þroska, ástum og fallegri vináttu,“
segir á bókarkápu; „en í henni gef-
ur einnig að líta myrkustu hliðar
mannlífsins og er lesandinn dreginn
inn í spennu þar sem við sögu koma
bein manns og hests í litlu heiðar-
vatni. Sögumaðurinn Snorri, hinn
guðumlíki Stefán og sjálfmennt-
aði nuddarinn kolfinna í Borgar-
nesi eru þríeyki sem í bókinni vinna
kraftaverk. lesendur kynnast einn-
ig systkinunum kára og Sólrúnu
sem rænd voru æsku sinni og hafa
sloppið naumlega undan illum og
ósanngjörnum örlögum.“
mm
Gróa Finnsdóttir með nýju bókina; Hylinn.
Sögusvið Hylsins er í Borgarnesi
Nesklúbburinn komst upp um deild. Ljósm. sk
Hart barist í golfi
í Grundarfirði um
helgina
Strumparnir unnu Þaraboltann.
Reykhóladagar fóru fram um helgina
Dráttarvélasýningin trekkir alltaf að. Þessi tóku þátt í bjórmílunni.