Skessuhorn - 28.07.2021, Blaðsíða 30
miðvikudagur 28. júlí 202130
Hvað á að gera um
verslunarmannahelgina?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Davíð Hallgrímsson
vera í faðmi fjölskyldunnar.
Guðleif Nóadóttir
Planið var að fara í bústað en
kannski maður verði bara heima
í sólinni.
Daníel Magnússon
Bíða eftir barni númer tvö.
Erla Skagfjörð
Fara á netmót Hvítasunnukirkj-
unnar Fíladelfíu.
Héðinn Jónsson
Ekki neitt.
Penninn var á lofti í herbúðum
körfuknattleiksdeildar Skallagríms
í Borgarnesi í liðinni viku. Ákveð-
ið var að endurnýja samninga við
fjóra leikmenn sem munu leika
með meistaraflokki karla á kom-
andi leiktíð. Þetta eru þeir marinó
Þór Pálmason, Ólafur Þorri Sigur-
jónsson, almar Örn Björnsson og
alexander jón Finnsson. atli að-
alsteinsson og Hafþór ingi gunn-
arsson skipa þjálfarateymi liðsins
en gerður var þriggja ára samning-
ur við þá félaga í fyrra og verða þeir
því áfram í brúnni. vænta má fleiri
frétta af leikmannamálum Skalla-
gríms á komandi dögum.
glh
körfuknattleiksdeild Skallagríms í
Borgarnesi og goran miljevic hafa
gert með sér samkomulag um að
hann taki að sér þjálfun meistara-
flokks kvenna næstur tvö árin. Eins
og nýverið var sagt frá ákvað guð-
rún Ósk Ámundadóttir að leggja
þjálfarastarfið til hliðar. goran
er með mikla reynslu sem þjálf-
ari og hefur þjálfarð meðal annars
í Þýskaladi, Serbíu og nú síðast var
hann á mála hjá Hapol Eliat í ísra-
el. „Hann kemur inn með mikla
reynslu og þekkingu á leiknum
en hann kemur einnig að þjálfun í
yngri flokkunum og þá mun hann
sjá um einstaklings- og tækniæf-
ingar ásamt því að vera yngri þjálf-
urum deildarinnar innan handar,“
segir í tilkynningu frá félaginu.
goran þekkir ágætlega til hér á
landi en hann hefur komið hingað
og þjálfað í körfuboltabúðum, nú
síðast í vestrabúðunum 2019. gor-
an mætir til starfa fljótlega í byrjun
ágúst og er nú unnið hörðum hönd-
um að því að gera liðið klárt fyrir
veturinn og er von á fleiri fréttum
fljótlega, segir í tilkynningu frá fé-
laginu. mm
ía lék gegn liði augnabliks í ell-
eftu umferð lengjudeildar kvenna
í knattspyrnu síðastliðinn miðviku-
dag og fór leikurinn fram á kópa-
vogsvelli. augnablik var án sigurs
frá því í fyrstu umferð í byrjun maí
þegar þær lögðu núverandi topplið
deildarinnar kr að velli 2-1 og er
það eina tap kr í sumar í deildinni.
augnabliksstúlkur mættu grimm-
ar til leiks og skoruðu strax á 13.
mínútu með marki frá vigdísi lilju
kristjánsdóttur en Skagastúlkur
jöfnuðu eftir hálftíma leik og var
þar að verki dagný Halldórsdótt-
ir með sitt fyrsta mark í deildinni í
sumar. augnabliksstúlkur létu þetta
ekki slá sig út af laginu og fimm
mínútum síðar skoraði Brynja Sæv-
arsdóttir og staðan 2-1 í hálfleik
fyrir augnablik.
Eftir um 20 mínútna leik í seinni
hálfleik bætti vigdís lilja við sínu
öðru marki fyrir augnablik og
skömmu síðar skoraði margrét
lea gísladóttir fjórða mark heima-
stúlkna og sigurinn í höfn. dana
joy Scheriff minnkaði muninn fyrir
ía með sárabótarmarki sex mínút-
um fyrir leikslok og lokastaðan því
4-2 fyrir augnablik. Skagastúlkur
hafa aðeins fengið eitt stig úr síð-
ustu fimm leikjum, síðasti sigur-
leikur liðsins var um miðjan júní
gegn grindavík og eru þær að nálg-
ast ískyggilega botnbaráttuna.
ía er nú í sjöunda sæti deild-
arinnar með tíu stig eftir ellefu
leiki, Hk er einu sæti fyrir neð-
an þær með níu stig eftir tíu leiki
og á botninum sitja augnablik og
grindavík með átta stig en augna-
blik á leik til góða. Næsti leikur ía
í lengjudeildinni var gegn toppliði
kr á akranesvelli í gærkvöldi, en
var ekki hafinn þegar Skessuhorn
fór í prentun.
vaks
Skallagrímur lék gegn liði Stokks-
eyrar í B-riðli 4. deildar karla í
knattspyrnu síðastliðinn miðviku-
dag og fór leikurinn fram á Skalla-
grímsvelli í Borgarnesi. Skallarn-
ir komust yfir á 13. mínútu leiks-
ins með marki frá ísak jakobi Haf-
þórssyni og tíu mínútum síðar kom
viktor már jónasson þeim í tveggja
marka forystu og staðan því 2-0 í
hálfleik fyrir heimamenn.
Stokkseyri minnkaði muninn
á 73. mínútu leiksins með marki
frá Örvari Hugasyni en Skallarnir
héldu þetta út og fjórði sigurleik-
ur þeirra í sumar staðreynd. mikil
harka var í leiknum því alls fóru á
loft tíu gul spjöld, heimamenn áttu
sex þeirra en gestirnir fjögur og auk
þess fékk ísak Breki jónsson, leik-
maður Stokkseyrar, rautt spjald tíu
mínútum fyrir leikslok.
Skallagrímur er nú í fjórða sæti í
riðlinum, með 14 stig eftir tíu leiki
og á eftir að spila fjóra leiki í deild-
inni í sumar. Næsti leikur Skalla-
gríms er gegn Smára í kvöld, mið-
vikudag, á Skallagrímsvelli og hefst
klukkan 20.
vaks
Ákveðið var á föstudaginn að fresta
leik víkings og Fram sem átti að
fara fram á Ólafsvíkurvelli þá um
kvöldið. Ástæðan er sú að leikmað-
ur víkings hafði greinst með kór-
ónuveiruna og voru allir leikmenn
liðsins sendir í sóttkví. í framhald-
inu kom svo í ljós að fjórir liðsmenn
víkings voru smitaðir.
illa hefur gengið hjá Ólsurum í
sumar en þeir eru með tvö stig á
botni lengjudeildarinnar, sjö stig-
um frá öruggu sæti.
vaks
Erla Karitas Jóhannesdóttir kom inn á í seinni hálfleik hjá ÍA á miðvikudaginn en
náði ekki að skora. Ljósm. úr safni/ sas
Skagastúlkur töpuðu gegn Augnabliki
Goran Miljevic verður þjálfari mfl.
kvenna hjá Skallagrími.
Goran Miljevic tekur
við þjálfun kvennaliðs
Skallagríms
Skallagrímur
sigraði Stokkseyri
Skallagrímur vann Stokkseyri, en eru hér í leik gegn liði SR á dögunum. Ljósm. glh.
Marinó Þór Pálmason leikstjórnandi heldur áfram með þeim gulu og grænu.
Fjórir leikmenn Skallagríms
verða áfram með liðinu
Úr leik Víkings og Grindavíkur fyrr í sumar.
Smit hjá Víkingi Ólafsvík