Skessuhorn - 28.07.2021, Blaðsíða 10
miðvikudagur 28. júlí 202110
Framkvæmdir við endurnýjun a
og B deilda í C-álmu sjúkrahúss-
ins á akranesi ganga vel. voru þær
fyrir margt löngu orðnar tíma-
bærar. Búið er að hreinsa allt út úr
húsnæðinu; innréttingar, gólfefni,
milliveggi, raf- og boðlagnir og
fleira auk þess sem sögun og múr-
broti er lokið. í vikunni var lokið
við að flota öll gólf. uppbygging
er nú þegar hafin og næstu verk-
efni eru uppsetning loftstokka,
milliveggja og sprinkler kerfis.
Þá er hafin vinna við raflagnir og
vatns- og skolplagnir auk málning-
arvinnu. Búið er að leggja í gegn-
um fyrstu hæð hússins þannig að
eðlileg starfsemi þar er komin í
gang aftur en dregið var úr starf-
semi í þrjár vikur frá 15. júní til 8.
júlí.
Framkvæmdirnar eru mjög um-
fangsmiklar og hafa nokkur áhrif
á starfsemi sjúkrahússins. rými í
elstu byggingu sjúkrahússins þar
sem áður var E deild hefur tekið
við hluta starfseminnar. Það rými
hefur þar til nýlega verið nýtt til
þess að mæta fráflæðisvanda land-
spítalans. Þá hefur hluti af starf-
semi B-deildar færst tímabundið
yfir á fæðingardeildina.
verkefnisstjóri í verkinu er
Skagamaðurinn Bjarni ingi Björns-
son fyrir hönd aðalverktaka en
hann er jafnframt einn af eigend-
um raf-Pro ehf. að sögn Bjarna
inga hefur allt samstarf, bæði milli
verktakanna og við verkkaupa
gengið afar vel. verkeftirlit fyr-
ir hönd verkkaupa er í höndum
starfsmanna verkís, Skagafólksins
Önnu maríu Þráinsdóttur og Sig-
urgeirs Fannars guðmundssonar.
að sögn Bjarna inga er nokk-
uð vandasamt að standa í svo um-
fangsmiklum framkvæmdum á
sjúkrastofnunum og þurfti að gæta
sérstaklega að hreinlæti. Sérstakir
loftræstiblásarar voru notaðir til
þess að halda loftþrýstingi í fram-
kvæmdarýminu lágum svo loft og
þar með óhreinindi leituðu ekki
út úr rýminu. jafnframt þurfti að
gæta varúðar við meðferð alls efnis
sem fjarlægt var og það flutt rak-
leitt frá svæðinu.
Áhugavert er að flestir aðilanna
sem koma að verkefninu eru frá
akranesi. aðalverktaki verksins er
SF smiðir ehf. en eigendur þess
fyrirtækis eru bræðurnir Fannar
og Sturla magnússynir. auk þeirra
kemur fjöldi annarra fyrirtækja að
verkinu og er langstærstur hluti
þeirra innanbæjarfyrirtæki. raf-
lagnir eru í höndum raf-Pro ehf.,
ak pípulagnir sjá um pípulagn-
irnar, loftræstiþátturinn er í hönd-
um Blikksmiðju guðmundar, Haf-
steinn daníelsson sér um sögun
og múrbrot, Skagamálun málar
og rgr múrverk múrar. Þá sér
Siggi dúkari um dúklögn og flotun
og megas ehf. sér um súrefnis- og
öndunarloftslagnir. Framkvæmdin
er mannfrek og hafa starfsmenn
verktaka á svæðinu verið á bilinu
tíu til tuttugu talsins á hverjum
tíma. verklok eru áætluð í byrjun
mars á næsta ári.
Fyrirtækin SF smiðir og raf-
Pro hafa með sér samstarf í þessu
verki og fleiri verkefnum sem fram
undan eru. að sögn þeirra Sturlu,
Fannars og Bjarna inga er vitlaust
að gera og sem dæmi hafa þeir
ekki bætt við stærri verkum síðan
í október í fyrra. Fram undan eru
stór og smá verk auk þess sem fyr-
irtækin munu á næstunni byggja
saman tvö einbýlishús og tvö fjór-
býlishús. Þá eru fleiri verkefni í
pípunum, meðal annars á nýút-
hlutuðum lóðum við Suðurgötu
og verða það fyrstu húsin til þess
að rísa í svokölluðum Sementsreit
á akranesi. frg / Ljósm. aðsendar. Verið að flota gólfin.
Framkvæmdir á Sjúkrahúsinu á Akranesi ganga vel
Fannar Magnússon, Bjarni Ingi Björnsson og Sturla Magnússon.
Búið að hreinsa allt út úr húsnæðinu.