Skessuhorn - 28.07.2021, Síða 21
miðvikudagur 28. júlí 2021 21
Umboðsaði l i fyr ir Málning hf
301 Hval f jarðarsveit | S ími 896 2356 | gardjons@vis ir. i s
útimálun – innanhússmálun
sandspör t lun
þakmálun
múrviðgerðir
vinnuly f ta
þjónustusamningar
Hjá GJ málun eru al l ir með mik la og góða reynslu v ið
málningarvinnu, jafnt v ið út imálun sem og innimálun.
Um árabi l höfum við þjónustað mörg f yr ir tæki , stofnanir,
f asteignafé lög , e instak l inga og húsfé lög með góðum árangri og
fengist v ið ýmis spennandi verkefni .
Regluleg t v iðhald á fasteignum borgar sig. Málning er góð vörn
f yr ir veðri og vindum. Með reglulegu viðhaldi er hæg t að verja
fasteignir og koma í veg f yr ir dýrar framkvæmdir.
víðgelmir er stærsti hraunhell-
ir landsins og oft sagður konungur
íslenskra hella og ekki að ástæðu-
lausu. Eins og nafnið gefur til kynna
er víðgelmir afar stór eða um það
bil 148 þúsund rúmmetrar og er
einn af lengstu hellum landsins eða
1.585 metrar. Þak hellisins hef-
ur hrunið á allstórum kafla, nærri
norðurenda hans, og er þar eini
inngangurinn. Hellirinn hefur að
geyma litríkar hvelfingar, 1100 ára
gamlar hraunmyndanir og árstíða-
bundinn ís sem setur skemmtilegan
svip á umhverfið. Hann er staðsett-
ur í landi Fljótstungu í Hvítársíðu
og er í Hallmundarhrauni. Þang-
að eru um það bil 15 kílómetrar
frá Húsafelli. Hellirinn var opnað-
ur um miðjan maí fyrir fimm árum
síðan fyrir skipulagðar ferðir. Þá var
búið að bæta aðgengi að hellinum,
smíða tröppur og göngupalla sem
eru alls um 600 metrar niður í hell-
inn, lagt í hann rafmagn og komið
fyrir ljósum í honum.
Blaðamaður Skessuhorns skellti
sér nýverið með fjölskyldunni í
víðgelmi og voru fjölskyldumeð-
limir mjög sáttir með upplifunina.
Ferðin tekur um einn og hálfan
tíma niður hellinn og upp aftur
og vorum við svo heppin að leið-
sögn leiðsögumannsins fór fram
á íslensku. Yfirleitt fer hún fram
á ensku en þar sem allir í ferðinni
voru íslenskir var hún á íslensku
og það var fínt fyrir börnin sér-
staklega því að efast má um að þau
hefðu nennt að hlusta á allt á ensku
þegar þau stundum missa athyglina
á sínu eigin tungumáli. leiðsögu-
maðurinn stoppaði hópinn af og
til með ýmsum fróðleik um hellinn
og skemmtilegum sögum og aldrei
leiddist manni á nokkurn hátt í
ferðinni. Þá var mjög skemmtileg-
ur endapunktur í ferðinni, sem best
er að segja ekki of mikið um til að
skemma ekki fyrir upplifun þeirra
sem ætla sér að kíkja í heimsókn í
víðgelmi.
allir fá hjálma og höfuðljós með
í för og gott er að klæða sig vel fyr-
ir ferðina því það getur verið kalt í
hellinum, eða um frostmark, og þá
er um að gera að fara varlega á rölt-
inu því pallarnir geta verið sleipir
á köflum. miðaverð fyrir fullorðna
er sjö þúsund, fyrir börn 7-15 ára
kostar 3.800 krónur og frítt er fyrir
sex ára og yngri. Sniðugt er að taka
með sér nesti og fá sér að borða
við þjónustuhúsið áður en lagt er
af stað í ferðina og ekki vitlaust að
taka með sér í hellinn kaffi eða heitt
kakó til að ylja sér og kannski smá
súkkulaði!
Fyrir þá sem hafa ekki fengið
nóg af hellum eftir þessa ferð þá
er stutt að kíkja í Surtshelli sem er
einn lengsti og þekktasti hraunhell-
ir á íslandi eða um 1.970 metrar
á lengd. Þá má einnig nefna fleiri
náttúruundur í nágrenninu, svo
sem Hraunfossa og Barnafoss í
Hvítá, sem alltaf er jafn gaman að
skoða. vaks
Hjónin karl ingi karlsson og Stein-
unn matthíasdóttir flytja um þessar
mundir búferlum úr Búðardal eftir
um 20 ára búsetu. Steinunn segir í
samtali við Skessuhorn að hún hafi
gegnum árin nýtt sér vel þá líkams-
ræktaraðstöðu sem ungmennafélag-
ið Ólafur Pái hefur staðið myndar-
lega á bak við. Þau hjónin langaði
að færa félaginu þakklætisvott fyrir
að halda úti þessari þörfu starfsemi
og færðu félaginu að gjöf togvél,
sem bætist í flóru tækja í líkams-
ræktinni. Togvélin virkar þannig að
fólk festir fæturna og hvolfir sér og
teygir þannig á bakinu. vélin á eft-
ir að gera bakveikum dalamönnum
gott á komandi árum. Tækið var af-
hent síðastliðinn fimmtudag og tók
ingibjörg jóhannsdóttir við því fyr-
ir hönd Ólafs Pá.
líkamsrækt Ólafs Pá keypti nýja
aðstöðu fyrir ræktina rétt fyrir
heimsfaraldur Covid-19 og hefur
verið að bæta hana undanfarið. in-
gibjörg segir aðstöðuna að verða
nokkuð vel tækjum búna, en nú sé
lagt kapp á öflun tækja og aðstöðu
sem gæti nýst fyrir sjúkraþjálfun og
er togbekkurinn einmitt mikilvægt
tæki sjúkraþjálfara. Næstu tæki
verða væntanlega meðferðarbekkur
og þau sérhæfðu raftæki sem þarf til
sjúkraþjálfunar.
Þeim sem vilja styðja við upp-
byggingu þessarar aðstöðu bent á
að hafa samband við ungmennafé-
lagið. ingibjörg vill koma á fram-
færi kærum þökkum ungmennafé-
lagsins til Steinu og kalla.
bj
Hraunhellirinn
Víðgelmir heimsóttur
Við innganginn þar sem ferðin hefst. Ljósm. Af síðu The Cave.
Séð inn í Víðgelmi. Ljósm. vaks
Hér er Ingi-
björg að
prófa nýju
togvélina.
Ungmennafélagið fékk
togvél í kveðjugjöf
Karl, Steinunn og Ingibjörg standa hér við nýju togvélina.