Skessuhorn - 28.07.2021, Qupperneq 26
miðvikudagur 28. júlí 202126
veitinga-, skemmti- og afþreying-
arstaðurinn grjótið-Bistro-Bar við
kirkjubraut 10 á akranesi var opn-
aður fyrir írska daga í sumar. veit-
ingastaðurinn býður meðal annars
upp á mat með mexíkönskum áhrif-
um. Haraldur Helgason er eigandi
staðarins. að sögn Haraldar legg-
ur staðurinn mikla áherslu á að
allt hráefni sé fengið úr héraðinu.
Stefnt er að því að staðurinn skapi
sex til átta störf. Boðið er upp á sér-
stakan hádegismatseðil sem inni-
heldur kjötrétt dagsins, borgara,
fisk og salat. Einnig er í boði sér-
réttamatseðill þar sem sjá má áður-
greind mexíkönsk áhrif. um helgar
er boðið upp á dögurð (brunch) á
milli kl. 11 og 15.
Á staðnum eru til staðar tvö full-
vaxin pool borð auk þess sem gest-
um stendur til boða að reyna með
sér í pílu. Staðurinn er opinn alla
virka daga frá kl. 11 til kl. 23 og frá
kl. 11 til kl. 01 föstudaga og laugar-
daga en sóttvarnaraðgerðir ráða þó
opnunartímanum á meðan þær eru
í gildi. Haraldur segir að um miðj-
an ágúst muni staðurinn byrja að
bjóða upp á beinar útsendingar frá
enska boltanum og jafnframt verði
í boði ýmis tilboð í mat og drykk í
tengslum við boltann.
Á staðnum verður einnig rekið
kaffihús. Haraldur segir kaffihúsið
enn vera í mótun en að ljóst sé að
það vanti kaffihús í miðbæ akra-
ness. Segir hann að mikil áhersla
verði lögð á hágæða kaffi á kaffi-
húsinu.
Húsnæði grjótsins við kirkju-
braut hýsti áður lögregluna á akra-
nesi og þar með fangelsi bæjar-
ins. Haraldur segir að ætlunin sé
að segja sögu hússins með ýmsum
hætti á veggjum veitingastaðarins
og í stafrænum miðlum á næstu
misserum. aftan við veitingastað-
inn er hinn rómaði skrúðgarð-
ur akurnesinga sem nýlega hefur
gengið í endurnýjun lífdaga. Þar má
meðal annars sjá verkið Stúlku með
löngu í gosbrunni skrúðgarðsins en
styttan er nýkomin á sinn stað eftir
að hafa verið í viðgerð um árabil.
verkið var formlega vígt eftir end-
urbæturnar þann 17. júní 2020.
að sögn Haraldar verður stað-
urinn opinn alla verslunarmanna-
helgina fyrir gesti og gangandi, ak-
urnesinga jafnt og gesti þeirra. frg
„Það eru geysileg vonbrigði sem
fylgja því að gera væntingar barna
og ungmenna að engu annað árið í
röð. við höfum beðið eftir upplýs-
ingum eins og öll þjóðin. miðað við
þær forsendur sem okkur voru að
berast í kvöld er ljóst, að ekki verð-
ur hægt að halda unglingalands-
mót umFí á Selfossi um verslun-
armannahelgina,“ segir Þórir Har-
aldsson, formaður framkvæmda-
nefndar unglingalandsmóts umFí
í tilkynningu síðastliðið föstudags-
kvöld.
„Þetta er afar þungbær og erf-
ið ákvörðun. við erum með tár-
in í augunum því margir hafa lagt
hart að sér að gera það að veruleika
og mörg börn og ungmenni búin
að áforma að njóta helgarinnar
með fjölskyldum sínum og vinum.
En í ljósi aðstæðna verðum við að
sýna ábyrgð og samstöðu á þessum
óvissutímum og taka þátt í barátt-
unni. Því miður er ómögulegt að
halda mótið með ábyrgum hætti
innan þeirra takmarkana sem sett-
ar hafa verið og því verðum við að
fresta mótinu,“ segir Þórir. undir-
búningur fyrir mótið hefur stað-
ið yfir síðustu ár og er þetta annað
árið í röð sem því þarf að fresta.
Þátttökugjald verður
endurgreitt
Skráning hefur verið í fullum gangi
á unglingalandsmót umFí all-
an júlí og stefndi í að mótið yrði
eitt það fjölmennasta frá upphafi.
„umFí mun endurgreiða öllum
þátttakendum sem þegar hafa skráð
sig. Enginn þarf að óska sérstaklega
eftir endurgreiðslu. Ef einhverjar
spurningar vakna er hentugast að
senda skeyti á umfi@umfi.is.“ mm
Hið árlega Flemming pútt mót var
haldið á Hvammstanga síðastliðinn
föstudag. leiknar voru tvisvar sinn-
um 18 holur á mótinu. mótið gekk
vel og veður var allgott, að sögn
Flemmings. Þátttakendur voru 39
og hafa aldrei verið fleiri en mótið
hefur verið haldið árlega frá 2011.
Þess má geta að mótið er opið öll-
um hvar sem þeir búa og hefur síð-
ustu ár verið haldið sömu helgi og
Eldur í Húnaþingi. Síðustu ár hafa
Borgfirðingar verið mjög duglegir
að mæta á Hvammstanga og hafa
átt langflesta keppendur. völlurinn
var þungur eftir góða rigningu en
það hafði ekki áhrif á árangurinn.
Hver púttarinn af öðrum kom sér
og öðrum á óvart með góðum leik á
annars erfiðum velli.
geta má þess að völlurinn er á
einstökum stað í góðu skjóli fyr-
ir norðan vindi, staðsettur sunn-
an við hús Heilsugæslunnar á
Hvammstanga. Þar hafa stjórnend-
ur í gegnum árin veitt mótsgestum
aðgang að salerni og mótshaldara
aðra hjálp. Einnig hafa stjórnend-
ur Húnaþings vestra og Heilsu-
gæslunnar verið duglegir að halda
svæðinu í góðri umhirðu. Fyrir það
ber að þakka.
mótsstjóri var Flemming jessen
en um skráningu, útreikning, ljós-
myndun, veitingar og verðlaunaaf-
hendingu sáu Elín jóna rósinberg,
kristianna jessen, kristín ingibjörg
Baldursdóttir og Þórdís Benedikts-
dóttir.
Úrslit urðu þessi:
Karlar
1. Þorbergur Þórðarson, akranesi,
66 högg
2. ingimundur ingimundarson,
Borgarbyggð, 67 högg
3. Sveinn Hallgrímsson, Borgar-
byggð, 69 högg / bráðabani
4. marteinn reimarsson, Húna-
þing vestra, 69 högg / bráðabani
Konur
1. jónína B. ingólfsdóttir, Borgar-
byggð, 69 högg
2. guðrún Birna Haraldsdóttir,
Borgarbyggð, 71 högg
3. katrín r. Björnsdóttir, Borgar-
byggð, 72 högg
16 ára og yngri
1. aron vattnes Einarsson, reykja-
vík, 76 högg
2. ari karl kárason, Húnaþing
vestra, 88 högg
3. Óskar Smári gíslason, Húna-
þing vestra, 91 högg. mm/fj
Grjótið-Bistro-Bar við skrúðgarðinn á Akranesi.
Grjótið er nýr veitingastaður
á Akranesi
Haraldur Helgason, eigandi Grjótsins-Bistro-Bars.
Keppt í strandblaki á Unglingalandsmóti. Ljósm. UMFÍ.
Unglingalandsmóti
UMFÍ frestað
Úrslit úr Flemming – pútt mótinu á Hvammstanga
Þátttakendur voru 39 og hafa aldrei verið fleiri.
Þrjú efstu í flokki karla og kvenna.