Skessuhorn - 18.08.2021, Síða 6
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 20216
Jakob í Flokk
fólksins
NV.KJÖRD: Jakob Frí-
mann Magnússon tónlistar-
og athafnamaður er genginn
til liðs við Flokk fólksins og
mun skipa efsta sætið á lista
flokksins í Norðausturkjör-
dæmi í komandi alþingis-
kosningum. „Ég hef hrifist af
stefnumálum Flokks fólksins
þar sem áhersla er lögð á að
útrýma fátækt og óréttlæti
á Íslandi. Það er sjálfsögð
krafa að allir fái lifað mann-
sæmandi lífi í einu af auð-
ugustu samfélögum heims.
Hér á enginn að búa við bág
kjör að afloknu ævistarfi,
hlúa þarf betur að þeim sem
hafa lent í áföllum eða búa
við skerta orku og allir eiga
að njóta jafnra tækifæra til
menntunar og tómstunda-
starfs. alvöru velferðarsam-
félag byggist á heilbrigðu
samhengi milli verðmæta-
sköpunar og mannúðar.“
- mm
Samþykktu til-
boð í Fannahlíð
HVALFJ.SV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar ákvað í
vor að setja félagsheimilið
Fannahlíð á söluskrá. Á fundi
sveitarstjórnar þriðjudaginn
10. ágúst, var tilboð Magn-
úsar Jóns Engilberts Gunn-
arssonar samþykkt í eignina.
Það er að upphæð 51 milljón
króna. -arg
Lán fyrir fram-
kvæmdum
BORGARB: Sveitarstjórn
Borgarbyggðar samþykkti
samhljóða á fundi sínum í
síðustu viku að taka lán hjá
Lánasjóði sveitarfélaga ohf
í samræmi við fjárhagsáætl-
un Borgarbyggðar fyrir árið
2021. upphæð þess verður
200 milljónir króna. Lánið er
tekið til að fjármagna fram-
kvæmdir ársins hjá sveitarfé-
laginu. -mm
Reyndust ekki
allsgáðir
VESTURLAND: Síðastlið-
in vika var róleg í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi.
Eitthvað hefur þó verið um
akstur undir áhrifum áfeng-
is eða fíkniefna. Fimmtudag-
inn 12. ágúst var ökumaður
stöðvaður í Borgarnesi grun-
aður um að hafa ekið undir
áhrifum fíkniefna og fór það
mál áfram í hefðbundið ferli.
Þá voru þrír ökumenn stöðv-
aðir í Hvalfirði á sunnudag-
inn, 15. ágúst, grunaðir um
að hafa ekið undir áhrifum
áfengis. Einn þeirra var auk
þess of ungur til að aka bíl
og því ekki með réttindi. Í
slíkum tilfellum er viðkom-
andi færður á lögreglustöð
og haft samband við barna-
verndarnefnd og foreldra
barnsins. auk þess var for-
eldrum farþega, sem líka var
undir lögaldri, gert viðvart
og þeir beðnir um að sækja
barnið. -arg
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar
könnunar um búsetu á höfuðborg-
arsvæðinu og öðrum stærri bæjar-
félögum landsins, sem Byggðastofn-
un hefur birt á vef sínum, er akra-
nes í fjórða sæti af 19 bæjarfélög-
um yfir ánægðustu íbúana. Íbúar í
Þorlákshöfn, Grindavík og Hvera-
gerði eru ánægðastir allra með bú-
setu sína. Á akranesi eru 57% íbúa
mjög ánægðir með búsetu og 34%
eru frekar ánægðir. Borgarnes var
þriðja neðst á listanum en þar eru
38% íbúa mjög ánægðir með bú-
setu og 47% frekar ánægðir. Þá eru
um 10% íbúa á akranesi sem segja
það frekar eða mjög líklegt að þeir
muni flytja fyrir fullt og allt úr bæj-
arfélaginu í framtíðinni. 18% íbúa
í Borgarnesi telja það frekar eða
mjög líklegt að þeir muni flytja
annað í framtíðinni.
arg
Gunnar Smári Egilsson forsvars-
maður Sósíalistaflokksins hefur
biðlað til ríkisútvarpsins að í ljósi
þess að flokkurinn fær ekki fjár-
magn úr opinberum sjóðum eins
og þeir sem eiga þingmenn nú, að
flokkurinn fái fríar auglýsingabirt-
ingar á rúV. Í bréfi til útvarpsráðs
segir Gunnar Smári: „Eins og ykk-
ur er kunnugt ákváðu stjórnmála-
flokkarnir sem nú eru á þingi að
styrkja sjálfa sig fjárhagslega með
því að færa á kjörtímabilinu 2.848
milljónir króna úr ríkissjóði í eigin
sjóði, þar með talda kosningasjóði
sína. Þessi ákvörðun skaðar lýð-
ræðið þar sem hætta er á að erindi
nýrra grasrótarframboða almenn-
ings muni drukkna í auglýsingum
þeirra flokka sem hafa skammtað
sér þessa styrki. Styrkirnir eru því í
raun ekki til að örva lýðræðið held-
ur til að verja völd og stöðu þeirra
flokka sem fyrir eru.“
Þá segir Gunnar Smári að fjöl-
miðlum, og þá sérstaklega ríkis-
útvarpinu, beri að verja lýðræðið
og heilbrigða
umræðu og
gæta þess að sú
mynd sem þeir
færa almenn-
ingi af samfé-
laginu sé sönn
en ekki skekkt
af ægivaldi pen-
inganna. „Og
þessi skylda hverfur ekki þótt þeir
flokkar sem hafa komist í aðstöðu
til sjálftöku úr ríkissjóði misnoti
þá stöðu. Skyldan er þvert á móti
ríkari. Því verr sem stjórnvöld fara
með völd sín því ríkari kröfu ber að
gera á fjölmiðla að þeir spyrni við.“
Framkvæmdastjórn Sósíalista-
flokks Íslands fer því þess á leit við
útvarpsráð og yfirstjórn ríkisút-
varpsins að flokkurinn fái úthlut-
að auglýsinga-
tíma hjá miðlum
fyrirtækisins eins
og meðaltal þess
sem flokkarnir á
alþingi kaupa, í
það minnsta eins
og sá flokkur sem
auglýsir minnst
kaupir af ríkis-
útvarpinu. „Fyrirkomulagið getur
verið þannig að í upphafi hverrar
viku fái flokkurinn úthlutað þeim
tíma sem jafngildir notkun hinna
flokkanna í vikunni á undan og í
kosningavikunni til viðbótar þeim
tíma sem flokkarnir hafa pantað í
auglýsingatímum miðla ríkisút-
varpsins.“
Loks segir Gunnar Smári í bréfi
sínu: „Það mun ekki skaða ríkis-
útvarpið á nokkurn hátt að verða
við þessari beiðni, heldur þvert á
móti styrkja það sem ábyrga stofn-
un. Ólíklegt er að auglýsinga-
tímar verði uppseldir svo auglýs-
ingar Sósíalistaflokksins munu ekki
[ýta] neinum tekjum burt. Það er
því ríkisútvarpinu að tjónlausu að
verða við þessari beiðni. Það er hins
vegar mikilvægt fyrir samfélagið að
veita viðnám sjálftöku stjórnmála-
flokkanna og tilraunum þeirra til
að verja eigin völd á kostnað jafn-
ræðis og lýðræðis.“
mm
Íbúar á Akranesi reynast
mjög ánægðir með búsetu
Sósíalistaflokkurinn biðlar til RÚV um
fríar auglýsingar