Skessuhorn - 18.08.2021, Qupperneq 13
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 2021 13
EINKUNNADAGURINN 2021
Umsjónarnefnd Fólkvangsins í
Einkunnum, Skógræktarfélag
Borgarfjarðar og Ferðafélag
Borgarfjarðarhéraðs blása
til Einkunnadagsins 2021,
laugardaginn 21. ágúst frá
kl. 10.00.
Unnið verður að lagfæringum
á stikuðum leiðum, snyrtingu
gróðurs og kurl borið í stíga.
Létt hádegishressing í boði
fyrir sjálfboðaliða.
Allir sem áhuga hafa á að
leggja verkefninu lið eru boðnir
hjartanlega velkomnir!
Nánari upplýsingar inn á www.
borgarbyggd.is og á Facebook-síðum
Borgarbyggðar, Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs og
Skógræktarfélags Borgarfjarðar
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
1
Óska eftir skrifstofuhúsnæði í Borgarnesi
Leigufélagið Bríet auglýsir eftir skrifstofuhúsnæði í Borgarnesi til
langtímaleigu. Húsnæðið þarf að vera á bilinu 120 – 140 fm með
sér- eða sameiginlegu fundarherbergi, salerni og eldhúsaðstöðu
Soffía Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri veitir frekari
upplýsingar í s: 513-1413
eða soffia@briet.is
Síðdegis á sunnudaginn var björg-
unarbáturinn Björg í Snæfellsbæ
kallaður út til þess að sækja vélar-
vana bát skammt utan við rif. Sex
manna áhöfn fór á Björginni og tók
hún bátinn í tog. Verkefnið tók um
50 mínútur en veður á svæðinu var
fremur leiðinlegt, að sögn björg-
unarsveitarmanna. Þess má geta að
þetta var þriðja útkallið sem sveit-
inni barst á einni viku.
mm
Vefurinn kosning.is er upplýsinga-
vefur fyrir framkvæmd alþingis-
kosninga sem fara fram 25. septem-
ber næstkomandi. Á vefnum er að
finna upplýsingar um framkvæmd
kosninganna, framboð og kjósend-
ur. „Vakin er sérstök athygli á því
að allt það helsta á vefnum er tek-
ið saman á sérstakri síðu sem „auð-
lesið efni“. Slíkt hentar þeim sem
reynist örðugt að lesa lengri og
flóknari texta, hvort sem er yngra
fólki, fólki sem er enn að læra ís-
lensku og yngri kynslóðinni. Sér-
stök tímalína er birt á vefnum sem
hefur að geyma allar helstu dag-
setningar sem skipta máli í aðdrag-
anda kosninganna. Þá er sérstakur
upplýsingakafli fyrir kjósendur um
atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
og kosningaathöfnina sjálfa á kjör-
dag. Þá er einnig að finna kafla um
kjörskrá auk upplýsinga um kosn-
ingarétt. Í kaflanum um atkvæða-
greiðslur utan kjörfundar eru einn-
ig leiðbeiningar um kosningar fyrir
þá sem eru í sóttkví eða einangrun
vegna Covid-19. Ýmsum algengum
spurningum og svörum hefur verið
safnað saman á einn stað á vefnum.
Framkvæmd alþingiskosninga
er sem fyrr samstarfsverkefni nok-
kurra opinberra aðila. Má þar helst
nefna dómsmálaráðuneytið, utan-
ríkisráðuneytið, landskjörstjórn,
yfirkjörstjórnir, aðrar kjörstjórnir,
sveitarstjórnir, Þjóðskrá Íslands
og sýslumenn. Þessir aðilar vin-
na að því í sameiningu að heildar-
framkvæmd kosninga fari fram með
skýrum og traustum hætti.
mm
Upplýsingavefurinn
kosning.is hefur
verið opnaður
Báturinn kominn í tog áleiðis til Rifshafnar. Ljósm. Björgunarsveitin Lífsbjörg.
Sóttu vélarvana bát
utan við Rif