Skessuhorn - 18.08.2021, Side 21
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 2021 21
Á framboðslista Framsóknarflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi fyr-
ir kosningarnar í september skip-
ar Stefán Vagn Stefánsson fyrsta
sæti. Stefán er fæddur og uppalinn
í Skagafirði og býr í dag á Sauðár-
króki þar sem hann hefur starfar
sem yfirlögregluþjónn á Norður-
landi vestra frá árinu 2008. Hann
er giftur Hrafnhildi Guðjónsdótt-
ur, félagsráðgjafa á Sauðárkróki, og
saman eiga þau þrjú börn, sú yngsta
13 ára, strák sem er 22 ára og 28 ára
dóttur. „Við erum orðin svolítið rík
enda eigum við eitt barnabarn til
viðbótar,“ segir Stefán þegar blaða-
maður Skessuhorns ræddi við hann
í liðinni viku.
Gamall varðstjóri valdi
braut hans í lífinu
Stefán útskrifaðist frá Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra árið 1996
og lá þá leiðin beint í lögregluna.
„Eftir stúdentspróf var ég að íhuga
hvað ég vildi taka mér fyrir hendur
næst þegar einn gamall varðstjóri
sem þá var hér á Sauðárkróki spurði
mig hvort ég hefði áhuga á lögregl-
unni. Ég hafði aldrei íhugað að fara
í lögregluna en sagðist ætla að hugsa
þetta aðeins. Hann sagðist vera bú-
inn að ræða við sýslumann, sem þá
var lögreglustjóri, og ganga frá því
að ef ég vildi koma væri staða laus
fyrir mig. Hann réði því eiginlega
mínum örlögum þessi ágæti mað-
ur og valdi þessa braut fyrir mig
í lífinu, sem ég sé svo sannarlega
ekki eftir. Þetta hefur verið áhuga-
verður og gríðarlega skemmtileg-
ur tími sem ég hef verið í lögregl-
unni,“ segir Stefán. Seinna sama ár
flutti hann til reykjavíkur og gekk
til liðs við lögregluna þar. „Ég fór
svo fljótlega í Lögregluskólann og
eftir útskrift fór ég beint í sérsveit
ríkislögreglustjóra.“ Árið 2006 fór
Stefán í ferð á vegum Íslensku frið-
argæslunnar til afganistan þar sem
hann leiddi friðargæsluliða.
Alltaf haft áhuga
á pólitík
Stefán og fjölskylda fluttu aftur í
Skagafjörðinn árið 2008 þegar Stef-
án tók við starfi yfirlögregluþjóns.
tveimur árum seinna var honum
boðið að taka oddvitasæti á lista
Framsóknar í sveitarstjórnarkosn-
ingum, sem hann þáði. Framsókn-
arflokkurinn hefur verið í meiri-
hluta í Skagafirði síðan þá og fyrstu
tíu árin var Stefán formaður byggð-
arráðs og nú síðustu tvö ár hefur
hann verið forseti sveitarstjórnar.
„Ég hef líka setið í stjórn Samtaka
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
og verið formaður þar. auk þess
hef ég verið í ýmsum verkefnum,
nefndum og ráðum í gegnum árin
og er í dag formaður flóttamanna-
ráðs,“ segir hann.
En hvað leiddi Stefán út í stjórn-
málin? „Stjórnmál hafa alltaf
blundað í mér. Ég ólst upp á heim-
ili þar sem var alltaf mikil pólitík,“
svarar hann en faðir Stefáns, Stefán
Guðmundsson, var þingmaður fyr-
ir Framsóknarflokkinn frá 1979 ti
1999. „Ég ólst upp við að taka þátt
í allskonar verkefnum tengdum
kosningum; pabba og flokknum.
Maður var ungur að hlaupa með
bæklinga milli húsa og sinna ýms-
um minni verkefnum. Þetta þótti
mér alltaf mjög gaman. Ég hef held
ég alltaf haft áhuga á pólitík og er
með sterkar skoðanir. Það var samt
ekki fyrr en ég flutti á Sauðárkrók
árið 2008 sem ég ákvað að leggja
mitt lóð á vogarskálina í þeim efn-
um,“ segir Stefán.
Brennur fyrir
byggðamálum
„Það hefur verið áhugavert og lær-
dómsríkt að taka þátt í sveitar-
stjórnarmálum og leiða sveitar-
félagið þessi ár. Þetta hefur ver-
ið góður skóli að fara í gegnum og
ég bý að þeirri reynslu. Ég tel þetta
líka mjög góðan undirbúning fyr-
ir þau verkefni sem ég er að tak-
ast á við í dag, með að fara í fram-
boð til alþingis og þar með á næsta
stjórnsýslustig. Ég tel það kost að
hafa verið hinum megin við borð-
ið, að þekkja hvernig sé að starfa í
sveitarstjórn áður en maður fer á
þing,“ segir Stefán. Spurður hvaða
málefni brenni helst á honum er
hann ekki lengi að svara: „Ástæð-
an fyrir að ég fór í sveitarstjórnar-
pólitík er að ég brenn fyrir byggða-
málum og málefni landsbyggðar-
innar hafa alla tíð verið mér afar
hugleikin. Það er sama hvort það
eru heilbrigðismál, samgöngumál,
menntamál eða löggæslumál, sem
ég þekki vel, það er byggðaþráður í
þeim öllum og við verðum að halda
þessum málefnum á lofti. Stjórn-
völd verða að horfa á þessi málefni
frá öðrum vinkli en excelskjali þeg-
ar kemur að úthlutun fjármuna rík-
isins. Íbúatölur á landsbyggðinni
eru eitt en það má ekki gleymast að
bak við hverja kennitölu er persóna
sem á rétt á þjónustu frá ríkinu. Við
erum ekki jöfn hvað þetta varðar og
mér finnst á síðustu árum eins og
þetta bil milli höfuðborgarsvæðis-
ins og landsbyggðarinnar hafi vax-
ið og því verðum við að snúa við,“
segir Stefán.
Samgöngumálin
mikilvæg
Í Norðvesturkjördæmi segir Stefán
að mikilvægt sé að ráðast í töluverð-
ar endurbætur á samgöngum. „Það
er gríðarlega mikilvægt að hafa
greiðar samgöngur til og frá þétt-
býliskjörnum og dreifðum byggð-
um í landinu. Þetta á við um vegi,
flug og ferjusiglingar. Við þurf-
um að hafa greiðan aðgang innan
svæðisins og þangað sem þjónustan
er veitt. Þá skiptir það líka máli fyr-
ir kjördæmið þó verkefnin séu utan
kjördæmis, eins og Sundabraut og
breikkun Vesturlandsvegar. Þetta er
þjóðbraut sem við förum öll, hvort
sem við erum að koma úr Skaga-
firði, frá akranesi, Snæfellsnesi eða
hvaðan sem er í kjördæminu,“ seg-
ir Stefán og bætir við að einnig sé
mikilvægt að klára vegalagningu á
sunnanverðum Vestfjörðum. „Þar
er ekki boðlegt ástand. Það hefur
að undanförnu farið gríðarlegt fjár-
magn í vegaframkvæmdir á þessu
svæði en það þarf að halda áfram
og klára þetta verkefni. Við erum
líka með stofn- og tengivegi um
allt kjördæmið sem þarf að laga,“
segir hann. Þá segir Stefán einnig
liggja á því að klára ljósleiðaravæð-
ingu um allt land. „Við erum með
þetta verkefni sem hefur gengið
gríðarlega vel, Ísland ljóstengt, þar
sem ríkið lét tengja dreifðu byggð-
ir landsins við ljósleiðara en nú
standa eftir þéttbýliskjarnar um allt
land. Þetta þarf að klára. Fjarskipti
eru gríðarlega mikilvægt í dag fyr-
ir landsbyggðina og eru sem dæmi
lykilþáttur í störfum án staðsetn-
ingar,“ segir Stefán.
Bæta
heilbrigðisþjónustu
Stefán segir mikilvægt að á kom-
andi kjörtímabili verði settur auk-
inn þungi í landbúnaðarmálin.
„Það þarf að gera breytingar svo
landbúnaðarráðuneytinu verði lyft
upp á þann stall sem það á skilið
og landbúnaðurinn fái þá athygli
sem hann þarf.“ Þá segir hann
stóra málið fyrir komandi kosning-
ar óumdeilanlega vera heilbrigð-
ismál. „Ef við hugsum hvað hef-
ur verið rætt um í samfélaginu síð-
asta eina og hálfa árið þá eru það
að sjálfsögðu heilbrigðismálin. Við
höfum á þessum tíma verið að reka
okkur á ýmsa flöskuhálsa í kerfinu,
sem við verðum að laga. Landspít-
alinn er ekki einkamál reykvíkinga,
við þurfum öll að leggja áherslu á
að leysa vandann þar. En það skipt-
ir líka máli að greiða úr heilbrigð-
isþjónustunni í okkar nærumhverfi.
Það þarf að sjá til þess að sú þjón-
usta uppfylli kröfur neytenda. Það
má eflaust kalla þetta klisju og þetta
er málefni sem ég er viss um að allir
flokkar munu leggja áherslu á. Ég
hef ekki töfralausnir og efast um
að nokkur frambjóðandi geti sleg-
ið fram heildstæðri lausn á þess-
um mikla vanda sem við stöndum
frammi fyrir í heilbrigðiskerfinu.
Það hafa miklir fjármunir farið í
þetta kerfi síðustu ár en það hefur
ekki dugað til að leysa þessi vanda-
mál,“ segir Stefán og bætir við að
nú þurfi að horfa á þetta vanda-
mál frá öðrum hliðum. „Ég tel að
nú þurfi að skoða heilbrigðiskerfið
í heild sinni og finna út hvaða þjón-
usta það er sem neytandinn kallar
eftir og hvernig kerfið geti mætti
kröfum neytenda á sem bestan hátt.
Við þurfum að horfa á þetta heild-
stætt og greiða úr þessum stóra
vanda,“ segir Stefán.
Vill heyra í kjósendum
aðspurður segist Stefán hlakka til
komandi vikna í aðdraganda kosn-
inga. „Þetta er aðeins öðruvísi bar-
átta en hefur verið á öðrum árs-
tíma. Við finnum það að fólk er
enn í sumarfríi, bændur uppteknir
í heyskap og svo eru kvaðir vegna
faraldursins. En við höfum verið
að fara um kjördæmið og reynt að
hitta á fólk eins og hægt er og mun-
um halda því áfram. Ég vona að á
komandi vikum fram að kosningum
náum við að hitta sem flesta og ræða
við fólkið í kjördæminu. En ef fólk
er með vangaveltur eða fyrirspurn-
ir er alltaf sjálfsagt að hafa samband
við okkur. Ég tek alltaf símann og
svo getur fólk fundið mig á Fa-
cebook og sent skilaboð. Það hefur
aldrei verið jafn auðvelt að ná í fólk
eins og núna. Við viljum reyna að
komast sem víðast, hitta sem flesta
og endilega heyra frá kjósendum,“
segir Stefán Vagn Stefánsson, odd-
viti Framsóknarflokks í Norðvest-
urkjördæmi.
arg
Stefán Vagn, Hrafnhildur Guðjónsdóttir eiginkona Stefáns fyrir miðju og Lilja
Rannveig Sigurgeirsdóttir sem skipar annað sæti á lista Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi. Ljósm. Stefán Vagn Stefánsson.
Stóru málin fyrir komandi kosningar eru
óumdeilanlega heilbrigðismálin
Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar oddvita Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi
Stefán Vagn Stefánsson leiðir lista Framsóknarflokksins í kosningunum í september. Ljósm. Framsóknarflokkurinn.