Skessuhorn - 29.09.2021, Blaðsíða 6
MiðVikudaGur 29. sEpTEMBEr 20216
Píeta samtökin
fá styrk
LANDIÐ: píeta samtök
in fengu nýverið úthlutað 25
milljónum króna í styrk úr
ríkissjóði til að efla þjónustu
sína við einstaklinga í sjálfs
vígshættu sem þurfa á stuðn
ingi og meðferð að halda.
Markmið samtakanna er að
fækka sjálfsvígum og sjálfs
vígstilraunum og efla fræðslu
og forvarnir í því skyni. Þjón
usta samtakanna er gjaldfrjáls
og stendur til boða öllum sem
eru 18 ára eða eldri. Við píeta
samtökin starfar breiður hóp
ur fagfólks, svo sem félags
ráðgjafar, sálfræðingar, iðju
þjálfar, læknir, geðhjúkrunar
fræðingur og fjölskylduráð
gjafi. samkvæmt upplýsingum
embættis landlæknis er talið
að árlega taki um 40 einstak
lingar líf sitt hér á landi og þá
er ótalinn sá fjöldi sem gerir
tilraun til sjálfsvígs eða skað
ar sig með einhverjum hætti.
allir sem glíma við sjálfsvígs
hugsanir eða sjálfsskaðavanda
eiga greiðan aðgang að ókeyp
is ráðgjöf hjá píeta samtökun
um og sími samtakanna (s. 552
2218) er opinn allan sólar
hringinn en einnig má benda
á Hjálparsíma rauða kross
ins (1717) en í neyðartilvikum
skal ávallt hringja í 112. -mm
Þyrla sótti
slasaða
HOLTAV.H: Eftir hádegi á
sunnudaginn var þyrla Land
helgisgæslunnar kölluð til
vegna bílslyss á Holtavörðu
heiði. Bíll með þremur valt á
heiðinni og hafnaði hann utan
vegar og á hvolfi. allir í bíln
um voru fluttir með þyrlunni.
Ekki liggur fyrir líðan hinna
slösuðu. Loka þurfti heiðinni í
hálfan annan tíma vegna slyss
ins. -mm
Erlendur ók á
159 km hraða
VESTURLAND: Erlendur
ökumaður mældist á 159 kíló
metra hraða á Vesturlandsvegi
við svignaskarð seint á föstu
dagskvöld í síðustu viku. Við
urlög höfðu ekki verið ákveð
in þegar blaðið fór í prent
un en samkvæmt sektarreikni
lögreglunnar má viðkomandi
reikna með sekt að fjárhæð
230 þúsund krónur. -frg
Fékk á sig grjót
frá vörubíl
VESTURLAND: Ökumað
ur fólksbíls á leið um Vestur
landsveg á föstudag í síðustu
viku fékk á sig grjót sem féll af
malarflutningabíl þegar þeir
mættust. Ökumaður fólksbíls
ins náði ekki númeri malar
flutningabílssins en fólksbíll
inn skemmdist talsvert. Málið
er óupplýst. -frg
Leikfimi fyrir
eldri borgara
AKRANES: Fimleika
félag akraness býður upp
á leikfimi fyrir eldri borg
ara á þriðjudagsmorgnum
kl. 1011 í fimleikasalnum
í íþróttahúsinu við Vestur
götu. Námskeiðið er fjög
ur skipti og hefst 5. október.
Áherslur námskeiðsins eru
líkamsnudd með frauðrúll
um, léttar æfingar og teygj
ur undir leiðsögn þjálfara.
Hægt er að skrá sig á staðn
um eða í gegnum tölvupóst
á thordis@ia.is. Gjald fyrir
námskeiðið er 4000 krónur.
-vaks
Lífskjarasamn-
ingurinn heldur
út samnings-
tímann
LANDIÐ: Lífskjarasamn
ingur samtaka atvinnulífs
ins og aðildarfélaga alþýðu
sambands Íslands hvílir á
forsendum sem ekki stóðust
fullkomlega þar sem stjórn
völd efndu ekki öll fyrirheit
í yfirlýsingu sinni dags. 4.
apríl 2019. samninganefnd
alþýðusambands Íslands og
framkvæmdastjórn samtaka
atvinnulífsins hittust á fundi
á mánudaginn um fram
hald Lífskjarasamningsins,
en bregðist forsendur getur
hvor aðili sagt honum upp
fyrir kl. 16. þann 30. septem
ber. „Á fundi aðila kom fram
vilji af beggja hálfu til þess
að samningar standi og halda
þeir því gildi sínu þar til þeir
renna út þann 1. nóvember
2022,“ segir í tilkynningu frá
asÍ. -mm
Bæjarstjórn Grundarfjarðar skoðar
nú í samstarfi við Veitur ohf. hvort
hægt sé að hitaveituvæða Grund
arfjarðarbæ með svokallaðri fjar
varmaveitu. Frá þessu er greint í
tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ
og Veitum. samstarfið hófst í árs
byrjun og felst í forhönnun og fýsi
leikakönnun á hitaveituvæðingu
Grundarfjarðarbæjar með varma
dælum. Varminn yrði þá sóttur úr
bæði umhverfinu og glatvarma frá
fyrirtækjum í bænum. Þessi aðferð
er þekkt í hringrásarhagkerfum er
lendis en er nýjung hér á landi.
„Grundarfjörður er staðsettur á
skilgreindu köldu svæði, þ.e. þar
sem íbúar og atvinnulíf hafa ekki
aðgang að jarðhita og kynda því hús
sín með raforku og olíu. slík rafhit
un á íbúðarhúsnæði er að hluta nið
urgreidd af ríkinu þar sem hún er
mun dýrari en húshitun með jarð
hita. ríkið styrkir einnig fjárfest
ingar við hitaveituvæðingu á köld
um svæðum með eingreiðslu sem
að jafnaði miðast við 12 ára áætl
aðar niðurgreiðslur á rafmagni eða
olíu til húshitunar á veitusvæðinu.
atvinnuvega og nýsköpunarráðu
neytið hefur hins vegar staðfest að
fjarvarmaveita fyrir Grundarfjörð
uppfylli skilyrði laga um styrk sem
miðast við áætlaðar 16 ára niður
greiðslur. Ákvörðunin styður vel við
framgang þessa verkefnis og undir
strikar mikilvægi þess sem lið í að
skapa öflugt hringrásarhagkerfi á
Íslandi. Áformin eru í samræmi við
áherslur orkustefnu um fullnýtingu
orkuauðlinda, orkuöryggi, orku
skipti og þjóðhagslega hagkvæmni
hitaveituvæðingar á köldum svæð
um,“ segir í tilkynningu frá Grund
arfjarðarbæ og Veitum.
Fýsileikakönnunin felst í því að
áætla stofnkostnað hitaveitunnar,
rekstrarkostnað og að kortleggja
hugsanlegar varmauppsprettur í
Grundarfirði og nágrenni. „Tölvu
vædd varmaog straumfræðilí
kön hafa verið smíðuð með aðstoð
norskra sérfræðinga. Markmiðið
með þeim er að meta varmaburð
frá jarðlögum í kringum Grund
arfjörð. Með niðurstöðum þess
ara athugana verður hægt að meta
hvernig verðskrá fyrir slíkar fjar
varmaveitur á köldum svæðum gæti
litið út og hvort bygging og rekst
ur þeirra geti verið fýsilegur kostur
hér á landi.“ arg
Frá fundi í júní þar sem Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar og
Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna, kynntu málið fyrir Þórdísi Kolbrúnu
Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ljósm.
Grundarfjarðarbær.
Skoða fjarvarmaveitu fyrir
Grundarfjarðarbæ
Grundarfjörður. Ljósm. tfk.