Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 20218
Umtalsverð aukn-
ing útflutnings-
tekna
LANDIÐ: Útflutningstekjur
þjóðarbúsins af vöru- og þjón-
ustuviðskiptum voru rúmir 356
milljarðar króna á þriðja ársfjórð-
ungi. Það er um 44% aukning í
krónum talið frá sama tímabili í
fyrra. Gengi krónunnar var að
jafnaði um 7% sterkara á þriðja
fjórðungi í ár samanborið við
sama fjórðung í fyrra og er aukn-
ingin þar með meiri í erlendri
mynt, eða sem nemur um 54%.
Þetta má sjá í tölum sem Hagstof-
an birti í vikunni. Útflutnings-
tekjur af sjávarafurðum voru um
65 milljarðar króna á þriðja árs-
fjórðungi og stóðu nánast í stað
á milli ára á föstu gengi. Útflutn-
ingstekjur af eldisafurðum voru
rúmir átta milljarðar króna og
jukust um 26% á milli ára á sama
kvarða. Í ferðaþjónustu, sem varð
fyrir hvað mestum skakkaföllum
vegna Covid-19, námu útflutn-
ingstekjur af erlendum ferða-
mönnum á þriðja ársfjórðungi
107 milljörðum króna, sem er
248% aukning á föstu gengi mið-
að við sama tímabil í fyrra. Stór
liður í útflutningstekjum þjóðar-
búsins er ál og álafurðir, en tekj-
ur af þeirri starfsemi námu rúm-
um 79 milljörðum króna á þriðja
ársfjórðungi. Það er rúmlega
72% aukning á milli ára í er-
lendri mynt. Aukningin skýrist
að stærstum hluta af umtalsverð-
um verðhækkunum á heimsmark-
aðsverði á áli á undanförnum
mánuðum, sem hefur ekki verið
hærra í 13 ár. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
20. til 26. nóvember.
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu.
Akranes: 5 bátar.
Heildarlöndun: 22.807 kg.
Mestur afli: Ísak AK-67: 9.260
kg. í 7 löndunum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 30.120 kg.
Mestur afli: Kristinn HU-812:
30.120 kg. í þremur löndunum.
Grundarfjörður: 10 bátar.
Heildarlöndun: 489.181 kg.
Mestur afli: Viðey RE-50:
165.048 kg. í tveimur löndunum.
Ólafsvík: 9 bátar.
Heildarlöndun: 50.047 kg.
Mestur afli: Steinunn SH-167:
8.136 kg. í þremur löndunum.
Rif: 12 bátar.
Heildarlöndun: 327.607 kg.
Mestur afli: Örvar SH-777:
95.905 kg. í einni löndun.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 13.672 kg.
Mestur afli: Fjóla SH-7: 5.690
kg. í fimm löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Viðey RE-50 GRU: 100.207
kg. 21. nóvember.
2. Örvar SH-777 RIF: 95.905
kg. 21. nóvember.
3. Sighvatur GK-57 GRU:
87.371 kg. 24. nóvember.
4. Tjaldur SH-270 RIF: 67.995
kg. 22. nóvember.
5. Viðey RE-50 GRU: 64.841
kg. 25. nóvember.
-frg
Ekið á og stung-
ið af
AKRANES: Á sunnudag kom
aðili á lögreglustöðina og til-
kynnti um að ekið hefði ver-
ið utan í bíl hans sem stóð við
Akursbraut á Akranesi. Sást
blár litur í skemmdinni. Málið
var óupplýst þegar blaðið fór í
prentun. -frg
Ók á ljósastaur
AKRANES: Ekið var á ljósa-
staur við Ketilsflöt á Akra-
nesi á mánudagskvöld. Enginn
meiddist í óhappinu en bíll
og staur skemmdust nokk-
uð. Óhappið var tilkynnt til
tryggingarfélags ökumanns og
Veitna sem gerðu ráðstafanir
varðandi staurinn. -frg
Útafakstur á
Skarðsströnd
DALIR: Síðdegis á sunnudag
barst lögreglu tilkynning um
útafakstur á Skarðstrandarvegi.
Enginn slasaðist í óhappinu en
ökumaður kom bílnum ekki
upp á veginn aftur. Það var hinn
víðkunni bóndi á næsta bæ sem
kom til bjargar og aðstoðaði ök-
umann við að koma bílnum upp
á veg. -frg
Heimsóknir
óheimilar að sinni
GRUNDARFJ: Fangelsismála-
stofnun vekur athygli á því í til-
kynningu að nú er öllum heim-
sóknum gesta aflýst í fangelsinu
Kvíabryggju næstu daga. Er það
gert vegna sóttvarnaráðstafana í
tengslum við Covid-19. „Von-
ast er til að aftur verði unnt að
heimila heimsóknir að nokkrum
dögum liðnum.“ -mm
Vinnuvernd hvet-
ur til inflúensu-
bólusetningar
LANDIÐ: Fyrirtækið Vinnu-
vernd bendir á að í ljósi að-
stæðna og mikils fjölda í Covid
örvunarbólusetningum þessa
dagana virðist sem hlutfall
þeirra sem þiggja inflúensu-
bólusetningu sé lægra nú miðað
við undanfarin ár. „Heilbrigðis-
yfirvöld hafa hvatt fólk til þess
að láta bólusetja sig því búast má
við því að Inflúensan í ár gæti
orðið einkar skæð þar sem fáir
hafi fengið hana í fyrra vegna
samkomutakmarkana. Það get-
ur haft mikil áhrif í ofanálag
við þau Covid smit sem ganga
hverju sinni.“ Vinnuvernd hvet-
ur fyrirtæki til að huga að og
hvetja starfsfólk sitt til að fara í
bólusetningu ef það hefur hug á
því. „Við munum bjóða vinnu-
stöðum upp á aukna þjónustu
næstu vikurnar. Inflúensubólu-
setning á vinnustað, heimsókn
nr. tvö ef fjöldi hefur ekki kom-
ist í þeim heimsóknum sem nú
þegar er lokið og að starfsmenn
geta mætt í opna tíma hjá hjúkr-
unarfræðingi. Til að óska eftir
þjónustu skal senda tölvupóst á:
vinnuvernd@vinnuvernd.is eða
hringja í síma 578-0800. -mm
Jón Þór Ólafsson, fv. alþingismaður
Pírata og umboðsmaður flokks síns
við síðustu alþingiskosningar, hef-
ur kært Inga Tryggvason formann
yfirkjörstjórnar NV kjördæmis til
lögreglu. Kæruna byggir Jón Þór
á lýsingu málsatvika í greinargerð
undirbúningsnefndar Alþingis fyr-
ir rannsókn kjörbréfa og opinber-
um upplýsingum sem lögreglan
sendi nefndinni. Jón Þór heldur því
fram að formaður yfirkjörstjórnar
hafi skapað sér með lögbroti tæki-
færi til að svindla á atkvæðunum.
Hann hafi auk þess hraðað endur-
talningu atkvæðanna þannig að
lögbundið eftirlit var ómögulegt.
Loks hafi formaður yfirkjörstjórnar
farið rangt með í gerðabók, í fjöl-
miðlum, fyrir þingnefnd og lög-
reglu varðandi þau málsatvik sem
benda á mögulega sekt hans.
Í kæru Jóns Þórs til lögreglu seg-
ir: „Kæran beinir því til lögreglu
að rannsaka sérstaklega hvort gögn
málsins sýni að nægar líkur séu á
því að oddviti YNV hafi brotið 128
gr. laga um kosningar til Alþingis
með því að hafa vísvitandi rangfært
atkvæðagreiðslu. Séu fyrir hendi
næg sönnunargögn sé rétt sam-
kvæmt lögum að gefa út ákæru þess
efnis, en slíkt brot varðar fangelsi
allt að fjórum árum. Kæran beinir
því jafnframt til lögreglu að rann-
saka önnur möguleg lögbrot við
framkvæmd kosninganna er varða
sektum.” Þess er að lokum krafist
í kærunni að málið verði tekið til
rannsóknar lögreglu án tafar enda
málið þess eðlis. „Nauðsynlegt er
að lögregla framfylgi sínum skyld-
um að fullu eins og kveðið er á um
þær í lögum um kosningar þegar
þeir sem bera ábyrgð á framkvæmd
kosninganna fara mögulega á svig
við lögin.“ mm
Sveitarstjórn Húnaþings vestra
hefur farið afar óvenjulega leið
til að fjármagna og ýta við stjórn-
völdum um vegagerð um Vatns-
nesveg. Hafin er hópfjármögnun á
Karolina Fund vegna framkvæmda
við veginn. Segir sveitarstjórn óá-
sættanlegt að vegurinn sé ekki á
samgönguáætlun fyrr en á árun-
um 2030 til 2034 og því hafi ver-
ið ákveðið að fara þessa leið. Vatns-
nesvegur hefur ítrekað verið til um-
fjöllunar síðustu ár enda ein af tor-
færari leiðum á stofnvegum lands-
ins; holóttur malarvegur í slæmu
ástandi og þar verða reglulega um-
ferðarslys. Ragnheiður Jóna Ingi-
marsdóttir, sveitarstjóri Húna-
þings vestra, segir að sveitarfélagið
hafi vilja leggja sitt af mörkum til
að flýta framkvæmdum við veginn.
„Þetta var möguleiki sem við sáum
í stöðunni, að fara af stað með hóp-
fjármögnun og fá landsmenn og
aðra sem unna Vatnsnesinu til að
aðstoða okkur við það að safna fyr-
ir því að við getum byrjað á fram-
kvæmdum fyrr en ætlað er á sam-
gönguáætlun,“ sagði Ragnheiður í
viðtali við Ríkisútvarpið.
Vegurinn er 70 kílómetrar og
er áætlað að það kosti 3,5 millj-
arða að byggja hann upp og mal-
bika. Sveitarfélagið stefnir að því
að safna 100 milljónum með sam-
skotum og afhenda þær samgöngu-
ráðuneytinu. Söfnunarféð verður
eyrnamerkt því að hönnun vegar-
ins fari strax af stað. Þannig verði
tilbúin hönnun og hægt að færa
framkvæmdir fyrr á samgönguáætl-
un. Ragnheiður sveitarstjóri seg-
ir veginn í raun ónýtan og sé hann
sérstaklega slæmur núna því ekki
hafi náðst að hefla hann áður en
frost hljóp í jörðu. Mörg skólabörn
þurfa að ferðast um veginn daglega.
Lengsta leiðin hjá skólabörnum
í haust tekur tvo tíma og 20 mín-
útur, leið sem börnin eru vanalega
klukkutíma að fara og tæplega það
ef vegurinn væri í þokkalegu standi.
mm
Á þingsetningarfundi Alþingis, sem
fram var haldið síðastliðinn fimmtu-
dag, voru greidd atkvæði um stað-
festingu kjörbréfa alþingismanna.
Kosið var um fjórar tillögur sem hver
um sig gekk misjafnlega langt. Til-
laga meirihluta kjörbréfanefndar um
að staðfesta kjörbréf allra 63 þing-
manna, sem m.a. byggist á að láta
niðurstöðu úr endurtalningu í NV
kjördæmi gilda, var samþykkt með 42
atkvæðum, 16 alþingismenn sátu hjá
við afgreiðsluna og fimm voru á móti.
Áður en til afgreiðslu ofangreindr-
ar tillögu kom voru greidd atkvæði
um þrjár aðrar. Í fyrsta lagi að stað-
festa kjörbréf 47 þingmanna, eða allra
annarra en þingmanna Norðvestur-
kjördæmis og uppbótarþingmanna,
og boða til uppkosningar í NV kjör-
dæmi. Hana báru fram þær Svan-
dís Svavarsdóttir og Þórunn Svein-
bjarnardóttir sem báðar sátu í kjör-
bréfanefnd. Sú tillaga var felld sem
og tillaga Björns Leví Gunnarsson-
ar um að dæma öll 63 kjörbréf ógild
og boða til nýrra þingkosninga. Loks
var felld tillaga þess efnis að láta fyrri
talningu í Norðvesturkjördæmi gilda
og staðfesta kjörbréf samkvæmt því.
Þar með lýkur óvissu sem ríkt hef-
ur í rétta tvo mánuði um hverjir raun-
verulega taka sæti á Alþingi. Óvissan
var vegna vankanta á meðferð og
geymslu kjörgagna í Norðvesturkjör-
dæmi. mm
Húnvetningar fara óvenjulega
leið til að knýja á um vegagerð
Kjörbréf 63 alþingismanna samþykkt
Kæran byggir á meintum brotum formanns yfirkjörstjórnar og hann sakaður um
að hafa skapað sér tækifæri til að svindla á atkvæðunum daginn eftir að atkvæði
voru talin úr alþingiskosningunum 25. september sl.
Formaður yfirkjörstjórnar
NV kærður til lögreglu