Skessuhorn


Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 27 Jólaútvarp NFGB fm 101,3 Nemendafélags Grunnskóla Borgarness sent út frá Óðali 6.– 10. frá 10:00 23:00. og undanfarin ár og dagskrá útvarpað áður þáttum en síðan flytja sína þætti beinni útsendingu. Handritagerð fór fram þar sem hefur tekið sem sérstakt fréttastofunnar eins og undanfarin ár „Bæjarmálin í beinni” 10. des. kl. er von á góðum gestum hljóðstofu. Mánudagur 6. desember 10:00 Ávarp útvarpsstjóra 10:10 Bekkjarþáttur 1. bekkur 11:00 Bekkjarþáttur 3. bekkur 12:30 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu 13:00 Vinsælir menntaskólar Díana, Unnur og Alda 14:00 Tölvuleikjajól Karel, Oliver og Grétar Páll 15:00 Frægðarlífið Aníta, Arndís og Katla 16:00 Íslenski hesturinn Árdís Lilja, Emilía og Ólöf Rún 17:00 Íþróttatal Auðunn, Benjamín og Eyjólfur 18:00 Ensku deildin- spá Ólafur Már og Víðir 19:00 Áhugaverðir töluvleikir Óskar Steinn 20:00 Pönksaga Íslands Ásdís og Marta 21:00 The Conjuring Daniella, Oddný og Bryndís 22:00 Jólin koma Tæknimenn 23:00 Dagskrárlok Þriðjudagur 7. desember 10:00 Bekkjarþáttur 2. bekkur 11:00 Bekkjarþáttur 5. bekkur 12:30 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu 13:00 Bekkjarþáttur 6. bekkur 14:00 Doktor football junior Sveinn og Ernir, Grunnskóla Borgarfjarðar 15:00 Ferðalög með Bjarti Bjartur, Grunnskóla Borgarfjarðar 16:00 Bland í poka Julia, Kolfinna og Victoria 17:00 Tríó Haukur, Sveinn og Kacper 18:00 Tískan í gegnum árin Kristey og Rakel Svava 19:00 Svona eru jólin Tæknimenn 20:00 Félagsstarfið 2018-2019 Stjórn Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi 21:00 The cycle frontier closed beta Atli, Jóhannes og Magnús Sindri 22:00 Kvöldspjall Tæknimenn 23:00 Dagskrárlok Miðvikudagur 8. desember 10:00 Bekkjarþáttur 4. bekkur 11:00 Bekkjarþáttur 7. bekkur 12:30 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu 13:00 2007 Egill, Ólafur Hrafn og Magnús 14:00 Allt og ekkert Aldís Tara, Arna Rún, Guðbjörg og Linda, Heiðarskóla 15:00 Jólahefðir Arndís og Hanna 16:00 Draugasögur Anna, Birta og Natalia 17:00 Heitar pullur Helgi, Jónas og Jón Ingi 18:00 Jólahefðir á Íslandi Þóra, Sara og Ólöf Ösp 19:00 Tónlist og spjall Tæknimenn 20:00 Hljómsveitarspjall Hugrún, Hrafnhildur, Eyrún og Katrín Jóhanna 21:00 Menntaskóli Borgarfjarðar Nemendafélag MB 23:00 Dagskrárlok Fimmtudagur 9. desember 10:00 5. bekkur endurfluttur þáttur 11:00 1. og 2. bekkur, endurfluttur þáttur 12:30 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu 13:00 6. bekkur endurfluttur þáttur 14:00 AP og félagar Arnar Pálmi, Óskar Smári og Þorvaldur 15:00 Trúðar tala um NBA Sigurður og Sævar 16:00 Frægt fólk Guðrún Eygló og Tinna 17:00 Grín hjá Jonna Bastian 18:00 2020 Kristján Páll, Guðjón og Eiríkur 19:00 Húsráð Óðals Nemendur í Húsráði Óðals 20:00 Sagan um Jordan Belford Atli, Jökull og Óli Kristján 21:00 Fræg dauðsföll Heiða og Valborg 22:00 Spjall og tónlist Tæknimenn 23:00 Dagskrárlok Föstudagur 10. desember 10:00 3. og 4. bekkur endurfluttur þáttur 11:00 7. bekkur endurfluttur þáttur 12:30 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu 13:00 Bæjarmálin í beinni 14:00 Létt jólatónlist og spjall Tæknimenn 15:00 Fatahönnuðir og þeirra merki Auður og Birta 16:00 Loftslag Dóra 17:00 Tæknimenn leika sér Tæknimenn 18:30 Kveðja útvarpsstjóra og dagskrárlok. Nú er enn ein útvarpshelgin liðin. En okkur finnst eins og við séum rétt að leggja af stað! Það er sagt að tíminn fljúgi þegar það er gam- an og það á svo sannarlega við núna. Þetta hefur verið frábær helgi. Skemmtilegir þættir og fjöl- margir viðmælendur. Mér telst til að 21 þætti hafi verið útvarpað beint og fjórir sem voru teknir upp áður. Auk þess var tónlist útvarp- að alla nóttina. Að þessum þáttum komu um 37 stjórnendur og gestir í hljóðstofu voru 66 auk fjölmargra nemenda úr grunnskólunum hér í bæ, því hefur verið líf og fjör alla helgina. Síðan 1988 hefur Útvarp Akranes verið fastur liður hjá Sundfélaginu og í jólaundirbúningi Skagamanna. Margir hafa sagt mér að þeir byrji jólaundirbúninginn þegar útvarpið fer í gang. Útvarpið fór fyrst í loft- ið til að safna fyrir tímatökutækjum í sundlaugina og ég veit ekki hvort útvarpið var hugsað til framtíðar þá, en alla vega erum við hér enn 33 árum síðar. Og erum ekkert á leiðinni að hætta. Öll vinna við útvarpið er unnin í sjálfboðavinnu og vil ég fyrir hönd útvarpsnefndar þakka öllum fyrir aðstoðina. Þáttastjórnendum, við- mælendum, sundmönnum og að- standendum þeirra og öllum öðr- um sem koma að þessu starfi. Það er ekkert sjálfgefið að þetta gangi allt upp, en hafið hjartans þakk- ir fyrir. Einnig þökkum við öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa stutt okkur með auglýsingum og á annan hátt, ykkar styrkur held- ur okkur á floti. Útvarp Akranes hefur verið út- varp á faraldsfæti í gegnum tíð- ina og stundum skipt um húsnæði á hverju ári! Níunda árið í röð eru við í gamla Landsbankahúsinu, og hér hefur farið virkilega vel um okkur, frábær aðstaða á alla kanta. Bestu þakkir fyrir að leyfa okkur að vera hérna Ívar Örn og Akra- neskaupstaður. Einnig vil ég þakka tækni- mönnunum okkar Óla Palla og Óla Val fyrir alla þeirra óeigingjörnu vinnu, þeir eru reyndar ekki bara tæknimenn, heldur aðstoða okkur við allt, undirbúning, ráðleggingar og alls konar reddingar. Þess- ir snillingar okkar eru í einu orði sagt frábærir! Hjá þeim eru engin vandamál, bara verkefni að leysa. Sundfélag Akranes óskar Ak- urnesingum og öðrum hlustend- um nær og fjær, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Njótið að- ventunnar, jólanna og samveru við vini og vandamenn. Takk fyrir áheyrnina og heyr- umst að ári liðnu. Útvarpsnefnd Útvarp Akraness 2021 kveður að sinni. Áslaug Guðmundsdóttir Bjarney Guðbjörnsdóttir Guðrún Guðbjarnadóttir Hjördís Hjartardóttir Maríanna Pálsdóttir Það var mikið um að vera í gamla Landsbankahúsinu á Akranesi á föstudaginn. Útsendingar Út- varps Akraness hófust klukkan 13 og þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði voru fulltrúar allra stærstu fjölmiðla landsins mættir til að skrásetja viðburðinn. Elsa Mar- ía Guðlaugs Drífudóttir, fréttakona RÚV, var mætt til þess að taka við- tal við þau Hlédísi fjölmiðlakonu á N4 og verkefnastjóra og Óla Palla, landsstjóra Rokklands og Füzz á RÚV með meiru. Sigurður Elvar Þórólfsson, ritstjóri Skagafrétta, beið síðan á kantinum eftir að röð- in kæmi að honum. frg Sigurður Elvar Þórólfsson, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Hlédís Sveinsdóttir og Ólafur Páll Gunnarsson í stúdíó Útvarps Akraness. Ljósm. Skessuhorn/ frg. Fjölmiðlafólk allt í kringum borðið Að afloknu Útvarpi Akraness Ruth Jörgensdóttir Rauterberg Trausti Gylfason

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.