Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 202126
Krossgáta Skessuhorns
Dæma-
laust
Stöng
Vangá
Kona
Tölur
Á fæti
Fram-
för
Blankur
Seiði
Sk.st.
Gaura-
gangur
Röð
Hagur
Glatt
Fiskur
Tekt
Leti
Mat
Basl
Átelur
11 Spækja
Læti
Skæði
Varmi
Ofsögur
Lína
Treg
Dútla
Dúkur
Einkenni
50
6 Rasa
Stía
Sýl
Kvörn
Tal
Bærir
Laust
Erting
Ugga
Hugur
Skjóða
4 Fylgdu
Marr
Píla
10
Planta
Della
Óhljóð
Hangir
Plögg
Lánaði
Heil
7
Skerða
Svall
Skýrt
Líka
Klampar
Óhóf
8 Spor Grannt
Mynni
Röst
5
Klukk
Eytt
Grip
Sniðug
Böggl
12 Gröm
Trjóna
Vigtaði
1
Kusk
Frá
Óskar
Farða
Ókunn
Salli
Auðar
Niður
Par
Skarn
Einatt
Sérhlj. Mjúkt
Freri
Sjá um
Þófinn
3
Reim
Sómi
Gagn
Pílári
Býsn
Reiði-
hljóð Háski
2
Kopar
Flan
9
Fum
Föður-
leifð
Utan
Gæði
13
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Krossgáta er
birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni
lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukk-
an 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athug-
ið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir
sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn
- krossgáta, Garðabraut 2A, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausn-
ir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birtist). Dreg-
ið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bók að
launum.
Í síðustu krossgátu var rétt lausn „Freisting“. Heppinn þátttak-
andi var Svandís Bára Steingrímsdóttir, Þórólfsgötu 4, 310 Borg-
arnesi.
Ö G
B A Ð M U R O F N A U T N
Ö R L Á T A R E I N Á I N
N Ó I L U K T F L A S K A
N E N N A M A S T U R A K K
U N G I U R T A M A N A R
Ð U S S R Í N A S A R Ú
A R T A S Ý N R A U S N
G Á I L M A R Ö R S Ó A
Æ L Á L A G O R T T
Ð V E I G A F T U R T Ó
I L A F N L A G A R R
A L T B Ö G U G L Ó R A
G L I D A G G L Á I R
V I N T R Ú S S S Æ T M M M
N Ú L L N Í P A T Í A I Í
N V I S K U S I R K I L L
Pennagrein
Í febrúar næstkomandi stendur til
að kjósa um sameiningu sveitarfé-
laganna Eyja- og Miklaholtshrepps
og Snæfellsbæjar. Fulltrúar þessara
sveitarfélaga ásamt reyndum sam-
einingarráðgjöfum hafa unnið að
undirbúningi þessa verkefnis og
munu skila tillögum sínum núna á
aðventunni. Þriðjudaginn 16. nóv-
ember sl. var haldinn samráðs-
og upplýsingafundur með íbúum
sveitarfélaganna þar sem hver sem
vildi gat sent inn spurningar, tillög-
ur eða ábendingar í gegnum netið.
Gögn fundarins og svör við spurn-
ingunum ásamt fleiri upplýsingum
um þetta verkefni eru á vef þess,
www.snaefellingar.is
En skiptir þessi samein-
ing einhverju máli?
Sennilega er flestum ljóst að í fram-
tíðinni verða öll sveitarfélögin á
Snæfellsnesi sameinuð í eitt, enda
væri það skynsamlegt því það þarf
öflug sveitarfélög til að halda uppi
þjónustu og styðja við búsetu á
landsbyggðinni. Ekki er ósenni-
legt að í sveitarstjórnarkosningun-
um árið 2026 verði kosið í sam-
einuðu sveitarfélagi á öllu Snæfells-
nesi. En það verður að teljast ólík-
legt að sameining eða ekki samein-
ing Eyja- og Miklaholtshrepps og
Snæfellsbæjar á næsta ári eigi eft-
ir að hafa nokkur áhrif á framvindu
stóru sameiningarinnar, hvorki til
seinkunar, flýtingar eða á nokkurn
annan hátt. Það getur hins vegar
skipt miklu máli fyrir samfélagið á
sunnanverðu Snæfellsnesi til að efl-
ast og dafna að sameinast núna.
Á heimasíðunni www.snaefell-
ingar.is kemur fram að markmið
sameiningarinnar sem á að kjósa
um í febrúar er: “…að samein-
ingin styrki byggð og skapi frek-
ari sóknartækifæri fyrir samfélagið
á sunnanverðu Snæfellsnesi.“ Sam-
göngur á sunnanverðu Snæfellsnesi
eru tiltölulega góðar og fjarskipti
sömuleiðis, ljósleiðari hefur verið
lagður til allra þeirra sem það vildu.
Þannig að samgöngur og fjarskipti
ættu ekki að aftra neinum verkefn-
um á svæðinu. Eitt af því sem myndi
styrkja byggðina er fjölgun íbúa, og
best væri að fá fleiri fjölskyldur með
börn, en góður leik- og grunnskóli
er forsenda þess að barnafjölskyld-
ur horfi til svæðisins með búsetu í
huga.
Að okkar mati eru skólamál
og þjónusta við barnafjölskyldur
stærsta og mikilvægasta mál þessar-
ar sameiningar. Á sunnanverðu
Snæfellsnesi eru nú reknir tve-
ir grunnskólar af þessum tveimur
sveitarfélögum. Báðir skólarnir eru
í gömlum byggingum og hafa fáa
nemendur sem gerir það að verk-
um að rekstur þeirra er að mörgu
leiti töluverð áskorun. Í besta falli
er það ólíklegt að báðir skólarnir
verði reknir mörg ár enn og ef festa
á í sessi skólahald á sunnanverðu
Snæfellsnesi er grundvallaratriði að
sameina Lýsuhóls- og Laugargerð-
isskóla í einn skóla.
Góður skóli sem er rekinn af
metnaði og framsækni er líklegri
til þess að laða að fjölskyldufólk en
nokkuð annað. Þess vegna verður
samstarfsnefndin að setja fram skýra
stefnu í skólamálum sem verður
hægt að vinna hratt og örugglega
ef að sameiningu verður! En ef að
niðurstaðan verður sú að sameina
ekki þessi tvö sveitarfélög og gera
ekki einn öflugan skóla á sunnan-
verðu nesinu er veruleg hætta á að
endingin verði sú að báðir skól-
arnir verði lagðir niður og börnin
í framhaldinu keyrð yfir Vatnaleið
og Fróðárheiði til skóla, það væri
hrikaleg niðurstaða fyrir samfélagið
á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Við undirrituð fluttum í Staðar-
sveit haustið 2018, þá með einn
tveggja ára strák með okkur og litla
stelpu á leiðinni. Við fluttum heim í
sveitina okkar svo gott sem um leið
og ljósleiðarinn var kominn í gagn-
ið og hægt var að sinna vinnu yfir
netið. Ef ekki væri fyrir þá stað-
reynd að á svæðinu er góður leik-
og grunnskóli hefðum við ekki látið
verða af því að setjast hér að með
börnin okkar. Ekki vegna þess að við
höldum að leik- og grunnskólarnir í
Ólafsvík og á Hellissandi séu ekki
góðir, síður en svo, heldur vegna
þess að við myndum ekki vilja bjóða
börnunum okkar upp á að þurfa að
fara yfir fjallveg til að fara í skólann,
en einnig af því að skólinn og starf-
ið í honum rammar inn samfélag-
ið. Til að útskýra það aðeins betur
þá hefur í gegnum tíðina allt sam-
félagið í skólahverfi Lýsuhólsskóla
sinnt skólanum og staðið við bakið
á honum. Margir mæta á árshátíðir,
tónleika og föndurdaga þó að börn
þeirra hafi útskrifast úr skólanum
jafnvel fyrir tugum ára síðan, allir
eru velkomnir. Ef skólinn væri ekki
til staðar fyrir alla til að sameinast
um væri samfélagið mun fátækara.
Að okkar mati skiptir þessi sam-
eining verulegu máli fyrir fram-
tíð byggðarinnar og samfélagsins
á sunnanverðu Snæfellsnesi! Við
viljum því hvetja alla í Eyja- og
Miklaholtshreppi og Snæfellsbæ til
þess að kjósa með þessari samein-
ingu þegar þar að kemur. Þannig
verður hægt að gera einn góðan
skóla hér á sunnanverðu nesinu sem
samfélagið getur fylkt sér á bakvið
og staðið með, vaxið og dafnað!
Eiríkur Böðvar Rúnarsson og
Franziska Maria Kopf,
Böðvarsholti 1, Staðarsveit, 356
Snæfellsbæ
Sameining samfélagsins á sunnanverðu Snæfellsnesi