Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 21
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu Grettisgötu 89 105 Reykjavík Sími 525 8330
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu er með skrifstofuhúsnæði
til leigu á besta stað í miðbæ Akraness. Húsið er á Suðurgötu 62
og er um 70m2 að stærð.
Áhugasamir hafið samband við Ólaf Hallgrímsson hjá Sameyki í
síma 896 1470 eða með tölvupósti á netfangið oli@sameyki.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Samþykkt breyting á Aðal-
skipulagi Akraness 2005-2017
Flóahverfi breyting á skipulagsmörkum
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 9. nóvember 2021, breytingu
á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.
Breytingin felst í að mörkum iðnaðarsvæðis I-5 er breytt, gróðurbeltum
umhverfissvæðisins er breytt til samræmis. Stofnstíg er breytt til
samræmis við deiliskipulag og dælustöð fráveitu merkt I-14.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir
sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa
Akraneskaupstaðar.
Skipulagsfulltrúi
Dagur í lífi...
Nafn: Sunna Njálsdóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý
með eiginmanninum, Gunnari
Jóhannessyni í Grundarfirði.
Við eigum þrjú uppkomin börn;
Helgu Soffíu, Signýju og Hákon
sem eru flutt að heiman og barna-
börnin eru orðin fimm.
Starfsheiti/fyrirtæki: Ég er for-
stöðumaður Bókasafns Grundar-
fjarðar með þjónustu við ferðafólk
á upplýsingamiðstöðinni og til-
sjón og liðsinni með ýmsum verk-
efnum tengd menningarmálum.
Áhugamál: Skógrækt, ræktun alls
konar og umhverfismál. Ég var
dugleg að gróðursetja hér áður
fyrr en nú hjálpa ég til með face-
booksíðu Skógræktarfélagsins,
fylgist með skógarreitunum og tek
á móti fjölskyldum sem koma að
ná sér í jólatré fyrir jólin.
Dagurinn: Miðvikudagurinn 24.
nóvember 2021.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði á áttunda tím-
anum, kíkti á aðalfréttir nokkurra
miðla og skellti mér svo í sturtu og
liðleikateygjur undir heitu vatn-
inu.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Te með ristuðu brauði og osti með
marmelaði.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Vinnudagurinn byrj-
ar kl. níu og ég fór á bílnum með
töluverðu samviskubiti í stað þess
að taka reiðhjólið eða ganga.
Fyrstu verk í vinnunni? Það er
nauðsynlegt að taka tölvupóst-
inn og klára að svara því sem út af
stóð daginn áður. Það þarf t.d. að
svara fyrirspurnum um Norður-
ljós, millisafnalán og leita að skjöl-
um í skjalasafninu.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Venjulega fæ ég mér kaffibolla
með samstarfsfólkinu á bæjarskrif-
stofunni um tíuleytið þar sem ég
vinn fram að hádegi en vegna var-
úðarráðstafana í Covidbylgju hjá
okkur vann ég heima og fékk mér
morgunkaffið með eiginmannin-
um.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Ég
hef valið að taka alltaf klukkutíma
í hádegismat svo við hjónin náum
spjalli og fréttum saman og þenn-
an dag fengum við okkur ágæt-
is hádegisverð úr afgöngum síð-
ustu daga og nýjum norskum kar-
töflum.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Bókasafnið var lokað og fáir
á ferli í miðbænum. Félagsstarf-
ið í miðsalnum í Sögumiðstöðinni
liggur niðri meðan Covidbylgj-
an gengur yfir svo það var rólegt
í vinnunni. Aðalverkefnið eftir há-
degið var kjalmiðamerking nýju
bókanna og tenging þeirra við
Gegni, bókaskrárkerfið. Íslensku
bækurnar hafa streymt í bókabúð-
ir síðasta mánuðinn en erlend-
ar þýddar bækur koma út jafnt og
þétt allt árið svo þetta er ekki eins
mikil vertíð og var hér áður.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
kom við í bókabúðinni til að
athuga hvort komnar væru fleiri
nýjar bækur og þá var auðvitað til-
valið að fá sér kaffi og köku eft-
ir vinnu og njóta ilmsins af blóm-
kálssúpunni sem var verið að elda
til að senda heim til fólks í sóttkví
og fyrir gesti og gangandi.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég
setti túlípanana 50 sem ég keypti í
haust í moldarpotta og setti í kuld-
ann uppi á lofti. Þeir fara svo út í
útiskáp og fá að kólna vel í vetur
svo þeir komi ekki upp of snemma.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Ég steikti kola með miklu
af lauk og kartöflum.
Hvernig var kvöldið? Fréttir
og Kastljós og síðan Kiljan með
bókaspjalli og fróðlegum viðtöl-
um um bækur. Eftir athugun á
heimildum fyrir námsverkefni
datt ég inn í fræðsluþátt um skað-
leg áhrif tískuiðnaðarins á um-
hverfið. Hrollvekja sem var ekki
holl fyrir svefninn.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Gengið um húsið til örygg-
is og tannburstun.
Hvenær fórstu að sofa? Um hálf
tólf, seinna en venjulega vegna
fyrrnefnds sjónvarpsþáttar.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Hreinskilnislega? Ilmur-
inn af blómkálssúpunni hjá Græna
kompaníinu sem ég veit að ein-
hverjir fengu senda heim. Verslan-
ir og veitingahús hafa boðið upp á
sendingar heim með mat og tóm-
stundaefni til að létta fjölskyldum
í einangrun og sóttkví lífið.
Eitthvað að lokum? Við búum
í litlu samfélagi, tæplega 1000
manns, og ég er oft undrandi á
hvernig lítið samfélag getur látið
fámennt sveitarfélag ganga á við
mun stærri og fjölmennari. Það
verður mikil breyting á sam-
félaginu þegar flestir halda sig
heima vegna smithættu og ýmis-
legt fer í gang til að auðvelda fólki
að komast í gegnum dagana, sum-
ir með hálfa fjölskylduna heima og
hinn hlutann úti í bæ til að geta
sinnt vinnu. Við búum líka vel að
geta gengið að uppfærðum upp-
lýsingum og ábendingum daglega
um ástandið í bæjarfélaginu þegar
mikið gengur á.
Forstöðumanns Bókasafns Grundarfjarðar
Út er komin ríkulega myndskreytt
bók um Pál Guðmundsson lista-
mann á Húsafelli. Nefnist hún Af
nótnaborði náttúrunnar. Höfundur
texta er Sigmundur Ernir Rúnars-
son en ljósmyndir tók aldavin-
ur Páls; Friðþjófur Helgason ljós-
myndari frá Akranesi.
Í bókarkynningu segir höfund-
ur: „Það er eins og úrið hægi á sér
þegar Páll á Húsafelli er sóttur
heim, enda er tíminn í hans húsa-
kynnum ekki af klukkuverki þessa
heims. Ljúfmennskan ræður þar
mestu, í bland við háttvísi og æðru-
leysi, en samfundir með listamann-
inum eru þeirrar náttúru að allt
um hægist – og gesturinn finnur
það á eigin skinni að eitthvað hef-
ur gerst sem glæðir skilningarvitin
og skerpir sköpunarþrána. Og hann
gengur aldrei samur maður á veg,
heldur rórri í sálinni, ríkari af friði,
enda áminntur um að náttúran er
hans og hann er náttúran.“
Útgefandi er Skrudda, bókin er
160 síður í liggjandi broti og er gef-
in út á íslensku og ensku. mm
Á FB síðunni Fuglar á Vestur-
landi birti Elín Ósk Gunnarsdótt-
ir í Belgsholti í Melasveit mynd í
síðustu viku af smáfugli sem villt-
ist inn til hennar. Í fyrstu hélt hún
að um væri að ræða músarindil en
líklega var hér á ferðinni fugl sem
nefnist gransöngvari. Slíkir fugl-
ar eru einungis 8 grömm að þyngd
en samkvæmt Wikipedia eru þetta
algengir laufsöngvarar sem eiga
heimkynni í norður- og tempruð-
um svæði Evrópu og Asíu, þ.e.
miklu sunnar á jarðarkringlunni.
Latneska heiti gransöngvara er
Phylloscopus collybita. Elín Ósk
náði mynd af fuglinum með að
setja hann í glæra krukku en sleppti
honum síðan út að myndatöku lok-
inni.
mm/ Ljósm. eóg
Gransöngvari á ferð í Melasveitinni
Af nótnaborði náttúrunnar