Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 25
Jóla-
Fjölskyldutími
Sunnudaginn 5. desember kl. 11-14.
Í boði verður að:
Klifra í öryggislínu
Skreyta piparkökur
Föndra músastiga
Lita jólamyndir
og auðvitað róla, spila, leika sér og allt
þetta venjulega.
1000 kr. inn
(börn í fylgd með fullorðnum).
smidjuloftid.is
Jólasöngstund kl. 10.30-11.00
Sjá nánar á Facebook síðu Smiðjuloftsins
Síðasti Fjölskyldutíminn fyrir jól
Fylgist með opnunartímum á Facebook
Þökkum frábærar samverustundir á árinu.
Gleðileg jól.
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
Stykkishólmur 2021
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & smur, Nesvegi 5
Þriðjudaginn 7. desember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
Pennagrein
Nú stendur yfir vinna við fjár-
hags- og framkvæmdaætlun Borg-
arbyggðar. Í allri uppbyggingu og
endurbótum á húsnæði, gatnagerð
og annars í eigu sveitarfélagsins er
mikilvægt að líta til íbúaþróunar
og forgangsraða verkefnum. Um
mikla fjármuni er að ræða og fjár-
festingu til framtíðar. Ábyrgð kjör-
inna fulltrúa er mikil og því lykil-
atriði að skýr framtíðarsýn liggi
fyrir til grundvallar ákvörðunum
og þær séu vel ígrundaðar og rök-
studdar.
1,5 milljarður í nýtt
skólahúsnæði á Klepp-
járnsreykjum
Sú framkvæmdaáætlun sem lögð
verður fram með fjárhagsáætlun
gerir ráð fyrir að ríflega 1,5 millj-
arður verði lagður í nýtt skólahús-
næði á Kleppjárnsreykjum til
næstu ára, í skóla sem rúma á um
130 börn. Í þessari áætlun á eft-
ir að gera ráð fyrir kostnaði við
lóð, innanstokksmuni og endur-
bætur og því má gera ráð fyrir að
heildarkostnaður nálgist 2 millj-
arða. Vissulega er úrbóta þörf á
húsnæðinu en er hér um að ræða
forgangsverkefni? Fulltrúar Fram-
sóknar telja að svo sé ekki með-
an við eigum gott skólahúsnæði á
Varmalandi þar sem aðeins um 35
nemendur stunda nám í dag í 1.-
10. bekk.
Forgangsverkefni sveitarstjórn-
ar eru af öðrum toga næstu árin.
Huga þarf að nýjum íþróttamann-
virkjum í Borgarnesi, skipulagi á
nýjum hverfum og lóðum og eitt
brýnasta verkefnið er að bregð-
ast við skorti á leikskólaplássi til
að geta tekið á móti fjölgun íbúa
í tengslum við uppbyggingu á
nýju hverfi í nágrenni við KB og
Húsasmiðjuna.
Eitt af því alvarlegasta sem hef-
ur skort við yfirstandandi fjár-
hagsáætlunarvinnu er framtíðar-
sýn á rekstur sveitarfélagsins og
skipulag. Þá þarf að meta hvað er
nauðsynlegt, hverju má breyta?
Hverjar eru þarfir og kröfur sam-
tímans? Í sveitarfélaginu eru t.a.m
um tíu félagsheimili, sex af þeim
eru í eigu sveitarfélagsins að fullu,
önnur að hluta til. Árlega skipt-
ast um 8-10 milljónir í brýnasta
viðhald á þessu húsnæði og ljóst að
nýtingin á húsnæðinu hefur breyst
í takt við tímann og nær nú aðeins
yfirleitt yfir fáa daga á ári. Er e.t.v
kominn tími á að stefna að sölu á
þessum húsum næstu árin og gefa
þeim nýtt hlutverk?
Verður allt skólahús-
næði og aðstaða jafn
góð?
Sveitarfélagið rekur íþróttamann-
virki í Borgarnesi, Varmalandi og
á Kleppjárnsreykjum. Þessi mann-
virki eru dýr í rekstri og viðhaldi
en eru mikið notuð og ótvírætt
einn af mikilvægum þáttum í góð-
um búsetuskilyrðum í sveitarfé-
laginu. Sveitarfélagið starfræk-
ir starfsstöðvar grunnskóla á fjór-
um stöðum. Mikilvægt er að þegar
rætt er um fjölda starfsstöðva til
framtíðar að miðað sé við að þær
áætlanir og fjárfestingar sem ráð-
ist er í horfi til þess að öll börn og
starfsfólk í grunnskólum sveitarfé-
lagsins hafi jafn góða aðstöðu og
starfsumhverfi. Öll börn eiga að
hafa aðgang að heilsusamlegu hús-
næði, góðri aðstöðu til útivistar
ásamt því að njóta góðrar aðstöðu
til íþrótta- og sundkennslu. Það er
því mikilvægt að fyrir liggi áður
en lagt er af stað í fjárfestingar
eins og á Kleppjárnsreykjum hve
mörgum börnum sá skóli á að taka
við til framtíðar, hvort að miðað sé
við að fara innan fárra ára í sams-
konar endurbætur og fjárfestingu
við grunnskólann á Hvanneyri og
á Varmalandi til að jafna aðstöðu-
mun barna í sveitarfélaginu?
Vísbendingar um
hækkandi álögur á íbúa
Núverandi meirihluti horfir til
þess að fjármagna bæði fram-
kvæmdir og endurbætur með
lánsfé til næstu ára. Ekki er litið
til mikilvægis þess að rekstraraf-
gangur sé til staðar til að hægt sé
að fara í fjárfestingar. Þetta gefur
vísbendingar í þá átt að eina leiðin
fyrir sveitarfélagið til að standa
skil á afborgunum lána og vaxta-
greiðslum sé að hækka álögur á
íbúa næstu árin, fasteignagjöld og
gjaldskrár. Þetta er ekki góð þró-
un og verður ekki til þess fallin að
laða að fyrirtæki og fjölskyldur.
Meirihluta sveitarstjórnar virð-
ist Í fjögurra ára framkvæmda-
og fjárfestingaráætlun sem lögð
er fram skorta vilja eða getu til að
leggja fram framtíðarsýn á nýtingu
fasteigna í eigu sveitarfélagsins til
framtíðar. Fyrir liggur að þörf er
á endurbótum og miklu viðhaldi
á flestum eignum sveitarfélags-
ins t.a.m. mörgum félagsheimil-
um, safnahúsi, slökkvistöð, félags-
legum íbúðum, sem og viðhaldi á
flest öllu skólahúsnæði.
Stórfurðuleg
forgangsröðun
Dæmi um stórfurðulega forgangs-
röðun sem flokkast jafnframt und-
ir það að vera svívirðileg er t.a.m.
sú ákvörðun að ráðstafa ríflega
100 milljónum á næstu tveim-
ur árum í að innrétta nýtt hús-
næði sveitarfélagsins á Digranes-
götu á meðan ekki fást nokkrar
milljónir í að bæta öryggi skóla-
barna í biðskýlum. Nokkuð sem
foreldrafélagið hefur kallað eftir í
mörg ár. Enda núverandi biðskýli
um 40 ára gömul og engin lýsing
við þau. Einnig er í þeirri áætl-
un sem unnið er með í dag ekkert
fjármagn sett í áform um skipulag
og uppbyggingu í Brákarey. Sveit-
arstjórn einfaldlega skuldar íbúum
það að gengið sé rösklega í það að
taka ákvörðun um örlög þess hús-
næðis sem þar er í eigu sveitarfé-
lagsins og hver áform eru á þessu
verðmæta svæði.
Að mörgu er að hyggja þegar
ákvarðanir um fjárfestingar og
ráðstöfun fjármagns eru teknar.
Brýnt er að sveitarstjórnarfull-
trúar láti ekki hjá líða að setja sig
vel inn í fjármál og rekstur m.t.t.
langtímaáhrifa ákvarðana á íbúa
sveitarfélagsins og tækifæri til
uppbyggingar.
Guðveig Lind Eyglóardóttir
Höf. er oddviti Framsóknar í
Borgarbyggð
Keðjuverkandi
áhrif ákvarðana