Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 23
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Sorgin og jólin –
Vinaminni 8. desember kl. 20:00
Jólin og jólaundirbúningur getur reynst mörgum
erfiður tími, einkum eftir ástvinamissi.
Miðvikudagskvöldið 8. desember kl. 20:00 verður
samvera í Vinaminni þar sem fjallað verður um
jólahald í skugga sorgar og missis, hvernig gott er að
undirbúa sig fyrir þennan tíma og þau bjargráð sem
við höfum. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, prestur í
Garða- og Saurbæjarprestakalli flytur erindi. Hilmar
Örn Agnarsson og félagar úr Kór Akraneskirkju flytja
ljúfa tóna. Kaffi og spjall í lokin.
Samveran er einkum ætluð þeim sem misst hafa ást-
vini á árinu, eða á undanförnum árum, en öll þau sem
láta sig málið varða eru innilega velkomin. Heildar-
fjöldi viðstaddra getur þó ekki orðið meiri en 50 og
öllum sóttvarnareglum er að sjálfsögðu fylgt.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Störf í Þjónustuíbúðakjarna
FSS í Ólafsvík!
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir aftur til umsóknar laus störf í nýjum
þjónustuíbúðakjarna fatlaðra í Ólafsvík.
Meginverkefni er stuðningur- og hæfing íbúanna til sjálfstæðrar búsetu og aukinnar virkni í daglegu lífi,
menningu og félagslífi
Virða ber sjálfræði íbúa og hafa velferð þeirra að leiðarljósi í allri þjónustu
Um er að ræða vaktavinnustörf.
Hæfniskröfur
• Leitað er einstaklinga sem lokið hafa faglegu námi er nýtist í störfum,
s.s. félagsliða- eða stuðningsfulltrúamenntun, eða sambærilegu námi
• Reynsla og þekking af starfi með fötluðum er kostur
• Stundvísi, samvinnu- og samskiptahæfileikar og áhugi fyrir starfi með fólki með skerta
starfsgetu eru mikilvægir eiginleikar í starfinu
• Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
• Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og viðkomandi stéttarfélags.
Skriflegar umsóknir um starfið er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila ásamt prófskírteini og
sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar.
Þjónustukjarninn er reyklaus vinnustaður!
Upplýsingar veitir:
Jón Haukur Hilmarsson, forstöðumaður og fagstjóri FSS
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær; jonhaukur@fssf.is s. 430 7800
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu FSS, www.fssf.is
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021
Gestastofa Þjóðgarðsins í Malar-
rifi á Snæfellsnesi er komin með
fastagest. Það er refur sem land-
verðirnir eru farnir að kalla Gest.
Hefur hann verið að láta sjá sig
af og til í haust og það sem af er
vetri. Ekki skemmir það fyrir að
Gestur hefur einnig stillt sér upp
fyrir myndatöku. Landverðirnir
vilja koma því á framfæri að halda
þarf fjarlægð við refinn og önnur
villt dýr þegar fólk sér þau, alls ekki
elta þau ekki uppi eða hræða. Mik-
ilvægt er sömuleiðis að gefa þeim
ekki mat.
þa/ Ljósm. Gestastofa þjóðgarðsins.
Hljómlistarfélag Borgarfjarð-
ar stendur fyrir árlegum jólatón-
leikum félagsins fimmta árið í röð
fimmtudaginn 9. desember næst-
komandi. Að þessu sinni verða
tvennir jólatónleikar haldnir í
Hjálmakletti í Borgarnesi. Aðal-
gestur í ár er Sigríður Beinteins-
dóttir en auk hennar fleiri góð-
ir gestir, innan héraðs sem utan.
„Við gerum ráð fyrir því að svo
stöddu að allir tónleikagestir þurfi
að fara í hraðpróf fyrir tónleik-
ana og bera grímur á tónleikun-
um,“ segir í tilkynningu. Bent er á
FB síðu viðburðarins; Jólatónleik-
ar Hljómlistarfélags Borgarfjarð-
ar 2021
Halldóra Mogensen
hefur verið endur-
kjörin þingflokks-
formaður Pírata.
Kjör hennar fór
fram á þingflokks-
fundi Pírata í dag,
þar sem Björn Leví
Gunnarsson hlaut
jafnframt embætti
formanns flokks-
ins. Á fundinum
var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
einnig endurkjörin varaþingflokks-
formaður og Gísli Rafn Ólafsson
útnefndur næsti ritari þingflokks-
ins.
„Við upphaf hvers löggjafarþings
hefur þingflokkur Pírata valið nýj-
an formann Pírata með hlutkesti.
Það var framkvæmt á fyrrnefnd-
um þingflokksfundi
og féll embættið í
skaut Björns Le-
vís sem fyrr segir.
Formannsembætti
Pírata fylgja engar
formlegar skyld-
ur eða valdheim-
ildir. Björn Leví
mun þannig, rétt
eins og fyrri for-
menn Pírata, hafna
50 prósenta formannsálagi á þing-
fararkaup. Þingflokkur Pírata
stendur fyrir formannsvalinu til að
uppfylla formkröfur Alþingis og
þannig tryggja aðgang að sömu að-
stoð og aðrir þingflokkar njóta,“
segir í tilkynningu frá þingflokkn-
um.
mm
Gestarefurinn
Gestur í Malarrifi
Hljómlistarfélagið heldur
tvenna jólatónleika
Hlutkesti réði
forystu Pírata