Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 202120
Borgarbyggð byrjaði í síðustu viku
að setja upp jólaljós og skreytingar
í stofnunum og útisvæði í sveitar-
félaginu. Frá þessu sagði á vef
Borgarbyggðar en í síðustu viku
var verið að ljúka við að klæða
Skallagrímsgarð í jólafötin og var
formlega kveikt á jólatrénu síðast-
liðinn mánudag. Auk þess höfðu
starfsmenn áhaldahússins sett upp
götuskreytingar og skreytt jólatréð
á Hvanneyri.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu var
ekki hefðbundin aðventuhátíð en
þess í stað kveiktu börn úr 1. bekk
í Grunnskóla Borgarness á trénu
með jólasveinum sem voru með
sóttvarnareglurnar á hreinu. Jóla-
tréð í ár er úr heimabyggð en svo
virðist vera sem skemmtileg hefð sé
nú að myndast í sveitarfélaginu en
þetta er þriðja árið í röð sem jóla-
tréð kemur úr sveitarfélaginu. Þá
eru íbúar hvattir til þess að aðstoða
við að lýsa upp fallega sveitarfélag-
ið sitt.
vaks
Í dag, 1. desember, verða ljós
tendruð á jólatrénu í Hólmgarði í
Stykkishólmi. Í ljósi aukinna smita
í samfélaginu verður viðburður-
inn með svipuðu sniði og í fyrra.
Grunnskólabörn í 1.-4. bekk munu
eiga samverustund í Hólmgarði að
morgni dags þegar 1. bekkur tendr-
ar ljósin.
Á síðasta ári varð í fyrsta sinn
breyting á þeirri gömlu hefð
að þiggja grenitré að gjöf frá
Drammen, vinabæ Stykkishólms í
Noregi. Stykkishólmur hafði þann
sið frá árinu 1984 en í samræmi við
sjálfbærnistefnu Snæfellsness og
með vaxandi umhverfisvitund og
umræðu um loftslagsmál var tekin
ákvörðun um að sækja ekki vatn-
ið yfir lækinn og nýta þau tré sem
vaxa í nágrenni bæjarins í stað þess
að þiggja fleiri tré frá Noregi.
Líkt og í fyrra var íbúum, í sam-
vinnu við Skógræktarfélag Stykkis-
hólms, gefinn kostur á að kjósa um
tvö tré í Sauraskógi og stóð valið á
milli sitkagrens og stafafuru. Um
160 manns tóku þátt í valinu og
voru 75% sem völdu grenið. Sitka-
greni er ein algengasta trjátegund-
in í ræktun hér á landi en umrætt
tré var gróðursett um 1970 í Saura-
skógi
vaks
Kveikt var á ljósum jólatrjánna á
Hellissandi og í Ólafsvík síðast-
liðinn föstudagsmorgun. Athafn-
irnar voru með óhefðbundnum
hætti vegna sóttvarna. Búið var að
skipta grunnskólanum og leikskól-
anum á sinn tíma til að ekki kæmu
of margir saman í einu. Blíðskap-
arveður var þennan morgunn. Þrír
jólasveinar mættu á staðina og Jón
Haukur Hilmarsson spilaði á gítar
og söng með krökkunum. þa
Kveikt var á jólatrénu við Stjórn-
sýsluhúsið í Hvalfjarðarsveit á
föstudaginn og í tilefni af því komu
leikskólabörn af Skýjaborg í heim-
sókn. Eftir að hafa sungið og geng-
ið í kringum jólatréð bauð sveitar-
stjórinn upp á mandarínur.
vaks
Síðastliðinn föstudagsmorgun var
jólaskemmtun með óhefðbundnu
sniði á Akratorgi á Akranesi. Vegna
samkomutakmarkana var brugðið
á það ráð að bjóða leikskólabörn-
um í bæjarfélaginu að koma á torg-
ið, ásamt dagforeldrum með þeirra
börn. Afmælisbörnin Gunnar Berg
Lúðvíksson og Sylva Sól Styrm-
isdóttir úr leikskólanum Akraseli
fengu þann heiður að tendra ljósin
á trénu. Skólakór Grundaskóla
söng fjögur lög undir stjórn bæj-
arlistakonunnar Valgerðar Jóns-
dóttur. Skemmtunin tókst með
prýðum og börnin skemmtu sér
vel.
mm/ Ljósm. Akraneskaupstaður.
Ljósin tendruð á jólatrénu á Akratorgi
Úr Stykkishólmi. Ljósm. af vef bæjarins
Jólaljósin tendruð við lág-
stemmda athöfn í Stykkishólmi
Borgarbyggð er þessa dagana að klæða sig í jólafötin. Ljósm. af vefsíðu Borgarbyggðar
Borgarbyggð skreytir fyrir jólin
Kveikt á jólatrénu í
Hvalfjarðarsveit
Jólatrén í Snæfellsbæ
skína nú skært