Skessuhorn


Skessuhorn - 01.12.2021, Qupperneq 14

Skessuhorn - 01.12.2021, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 202114 Nú er unnið að lagfæringum á göngustígum og gatnamótum á þremur stöðum á hringveginum í gegnum Borgarnes. Þar er eins og allir þekkja mikil og þung um- ferð bíla allt árið og því brýnt að bæta merkingar, mannvirki og lýs- ingu eins og kostur er. Undir lok vikunnar var verið að endurhlaða hraðahindrun á móts við leikskól- ann Klettaborg. Umferð var á með- an stýrt með ljósum um þá akrein sem ekki var unnið við. Á þess- um stað verða jafnframt sett upp gönguljós og því þurfti að leggja nýjar lagnir. Hleðslusteinninn sem lagður var er 8 cm þykkur og við kantana var steypt til að verja stein- inn álagi. Næsti verkþáttur verða framkvæmdir á móts við aðkeyrsl- una þar sem beygt er upp í Stöð- ulsholt, Kvíaholt, Húsamiðjuna og KB. Þar verður sett upp ný afrein og er byrjað að grafa fyrir henni. Verktaki í þessum framkvæmdum er Borgarverk en Garðaþjónustan Sigur-garðar sér um hleðslustein og frágang. Meðfylgjandi myndir voru tekn- ar í ljósaskiptunum á fimmtudaginn þegar keppst var við að hlaða göngustíg sem jafnframt er hraða- hindrun á móts við Klettaborg. mm Lítið hefur verið byggt í Ólafsvík að undanförnu. Nú er hins vegar að rísa nýtt íbúðarhús við Fossabrekku 3. Það eru þau Hanna Metta Bjarnadóttir og Jón Tryggvason sem eru að byggja sér 224 fermetra hús. Það er byggt úr forsmíðuð- um einingum sem smíðaðar voru af þeim Jóni Tryggvasyni og Sigurði Gylfasyni hjá JT trésmíði. Einung- is tók sjö daga að reisa húsið og loka því. þa Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa tekið höndum saman um að á Vestur- landi byggist upp nýsköpunar- og þróunarsetur á sviði landbúnað- ar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni, ferðamála og nýtingu náttúrugæða að leiðarljósi. Byggir þessi vinna meðal annars á sýn Þórdísar Kol- brúnar R Gylfadóttur fráfarandi ráðherra atvinnumála um að þörf sé á því að hér á landi verði til öflug stofnun sem styrki samvinnu og ný- sköpun á sviði landbúnaðar og mat- vælaframleiðslu með umhverfis- og loftslagsmál að leiðarljósi. Fimmtudaginn 18. nóvember var haldinn fundur í húsakynn- um Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri með þátttöku fulltrúa frá fyrirtækjum og stofnunum sem lýst hafa áhuga á að styðja við upp- byggingu nýsköpunar- og þróunar- seturs háskólasamfélagsins á Vest- urlandi. Um 30 manns mættu til að ræða um framtíð íslensks land- búnaðar og matvælaframleiðslu með sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi. „Mikill hugur var í þátttakendum sem allir lýstu yfir áhuga á að vera í öflugu samstarfi við háskólana tvo á Vesturlandi við að móta aðgerðaáætlun og fram- tíðarsýn fyrir matvælalandið Ís- land með áherslu á landbúnað,“ segir í tilkynningu eftir fundinn. Fundinn sátu meðal annars full- trúar frá umhverfis- og auðlinda- ráðuneytinu, Orkustofnun, Lands- virkjun, Bændasamtökum Íslands, Rannsóknarmiðstöð landbúnað- arins, Háskóla Íslands, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, Borg- arbyggð, Breið þróunarfélagi, Sí- menntunarmiðstöð Vesturlands, Hugheimum, Orkídeu, Auðnu tæknitorgi og Íslandsstofu, auk fulltrúa frá LbhÍ og Háskólanum á Bifröst. Landið hefur burði til að verða leiðandi Að sögn Áshildar Bragadóttur, ný- sköpunar- og þróunarstjóra Land- búnaðarháskóla Íslands sem meðal annarra hefur unnið að undirbún- ing stofnunar nýsköpunar- og þró- unarsetursins, er framtíð íslensks landbúnaðar og matvælafram- leiðslu björt. Tækifærin liggja með- al annars í því að horft sé til þeirra sóknarfæra sem felast í hreinni orku og auðlindum íslenskrar nátt- úru. Hagnýting nýrrar tækni, sjálf- virknivæðing, vöruþróun og ný- sköpun í öllu starfsumhverfi land- búnaðar getur skipt greinina miklu máli og haft gríðarleg áhrif á tæki- færi Íslands á sviði sjálfbærrar mat- vælaframleiðslu. Þannig velja neyt- endur um allan heim matvæli út frá þáttum eins og gæðum og um- hverfisvitund og uppruni matvæla skiptir neytendur sífellt meira máli. Áshildur bendir einnig á að ís- lensk matvæli eru þekkt á erlend- um mörkuðum fyrir að vera fyrsta flokks og áherslan á lúxusferða- mennsku hefur gert það að verk- um að fjöldi ferðamanna sækir Ís- land heim með það fyrir augum að njóta þess besta sem landið hefur upp á að bjóða. „Það var virkilega ánægjulegt að finna að fjölmargir deila þeirri sýn sem við höfum til þessara greina atvinnulífsins, en á sama tíma er mikilvægt að til stað- ar sé stuðningur við nýsköpun og þróun á þessu sviði. Með stuðn- ingi tveggja öflugra háskóla á Vest- urlandi teljum við nýsköpunar- og þróunarsetrinu vel komið fyrir á þessu landsvæði þó setrið muni þjóna landinu öllu,“ segir Áshildur Bragadóttir nýsköpunar- og þró- unarstjóri LbhÍ. mm Auka umferðaröryggi í gegnum Borgarnes Nýtt hús rís í Fossabrekku Ræddu sjálfbæran og umhverfisvænan landbúnað og matvælaframleiðslu Áshildur Bragadóttur, nýsköpunar- og þróunarstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands. Svipmyndir af fundinum á Hvanneyri síðastliðinn fimmtudag. Ljósm. LbhÍ.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.