Skessuhorn


Skessuhorn - 01.12.2021, Qupperneq 22

Skessuhorn - 01.12.2021, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 202122 Fjórar listakonur hafa um hríð rek- ið saman vinnustofur að Ægisbraut 30 á Akranesi, þar sem áður var til húsa fyrirtækið Glerhöllin. Við- fangsefni þessara listakvenna er af ýmsum toga, svo sem listmálun, hnýtingar, saumaskapur og vefn- aður. Listakonurnar eru Tinna Rós Þorsteinsdóttir, Sigríður Björns- dóttir, Sjöfn Magnúsdóttir og Ás- laug Benediktsdóttir. Það var glatt á hjalla hjá listakonunum þegar blaðamaður Skessuhorns leit við hjá þeim til að forvitnast um hvað þær hefðu á prjónunum, nálunum, vefskyttunum og penslunum. Tinna Rós Þorsteinsdóttir geng- ur undir listamannsnafninu Tinna Royal. Tinnu þarf vart að kynna fyrir Akurnesingum en hún var bæjarlistamaður Akraness 2020. Verkefni Tinnu eru fjölbreytt og meðal verka hennar eru málverk, verk unnin úr tré, pappír, pallíett- um og steypu. Hún er auk þessa óhrædd við að kynnast nýjum miðl- um og skemmtilegt er að virða fyrir sér jólaskreytingar Tinnu þar sem hún tekur fyrir ýmsar matvælaum- búðir sem allir Íslendingar kannast við, svo sem dósir með fiskbúðing eða grænum baunum. Sigríður Björnsdóttir og Sjöfn Magnúsdóttir sinna fataviðgerðum. Sigríður hefur verið að gera við föt fyrir Norðurál auk þess sem þjón- usta við sjúkrahúsið er að bætast við. Sjöfn hefur sinnt breytingum fyrir verslunina Bjarg á Akranesi. Segja þær stöllur þörfina fyrir fata- viðgerðir og breytingar greinilega verið til staðar. Sjöfn er lærður klæðskeri og rek- ur saumastofuna Skærin á vinnu- borðinu. Auk þess að sinna fata- breytingum kannar hún ýmis- legt skemmtilegt við menningu, hönnun og listir. Sjöfn er í fullu námi í Háskólanum á Bifröst. Þar leggur hún stund á viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði. Sigríði er auk fataviðgerða ým- islegt til lista lagt. Hún er vefari og er með forláta vefstól í aðstöðu sinni. Þá vinnur Sigríður einnig ýmsa muni úr tré sem kemur meðal annars af jörð hennar, Droplaugar- stöðum í Fljótsdal. Þar má nefna skurðarbretti og fleira þar sem ís- lenskt tré fær að njóta sín. Áslaug málar fjölbreytt verk, bæði vatnslitamyndir og olíuverk. Meðal verkanna má finna mikið af fuglamyndum auk landslagsverka. Þá segist hún nýlega byrjuð að hnýta og er skemmtilegt að skoða alls kyns verk sem hún hefur hnýtt. Þær stöllur segjast hafa opið eft- ir hádegið alla daga frá þriðjudegi til föstudags. Þær segja þó að opn- unartíminn sé ekki heilagur enda séu þær oft viðlátnar á kvöldin og um helgar. Þær segja Covid óneit- anlega haft sitt að segja en það sé þó að lagast. Að sögn listakvennanna er alltaf heitt á könnunni þegar er opið og öllum velkomið að kíkja við. frg Vinnustofurnar eru staðsettar að Ægisbraut 30 á Akranesi. Reka vinnustofur á Ægisbraut á Akranesi Listakonurnar: Áslaug Benediktsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Sjöfn Magnúsdóttir og Tinna Rós Þorsteinsdóttir. Tinnar Rós við hluta verka sinna. Skemmtilegt er að sjá jólatré skreytt með listmunum Tinnu. Sjöfn Magnúsdóttir við aðstöðu sína. Sigríður Björnsdóttir við vefstólinn. Áslaug Benedikts- dóttir við hluta verka sinna. Hnýtt listaverk eftir Áslaugu Benediktsdóttur. Hluti verka Tinnu Rósar, Tinnu Royal.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.