Skessuhorn - 01.12.2021, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 202130
Ef þú þyrftir að velja þér nýtt
nafn hvað yrði þá fyrir valinu?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Haraldur Valtýr Hinriksson
„Húgó.“
Helga Dís Daníelsdóttir
„Nína Daníela.“
Margrét Arnfinnsdóttir
„Dagrún.“
Anna María Þórðardóttir
„Þóra.“
Sigurbjörn Hauksson
„Ari.“
Hinn 19 ára gamli Adam Ingi Bene-
diktsson, markvörður frá Grundar-
firði, lék sinn fyrsta leik í sænsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu með
stórliði IFK Gautaborgar á sunnu-
daginn og sló strax í gegn hjá stuðn-
ingsmönnum liðsins. Þetta kem-
ur fram í grein Göteborgs-Posten
um Adam Inga þar sem sagt er að
sérstakur kollhnís Adams Inga fyrir
leik að eigin marki hafi vakið mikla
athygli. Adam Ingi segir í viðtali við
GP að hann geri þetta fyrir hvern
leik en þess má geta að kollhnís er
á sænsku kallaður því skemmtilega
nafni „kullerbytta.“
Adam Ingi heillaði stuðn-
ingsmenn Gautaborgar með
frammistöðu sinni í leiknum og
hélt markinu hreinu í 4-0 sigri
gegn Östersund. „Þetta er eins og
einhver draumur. Að vera hér fyr-
ir framan 15 þúsund manns, frá
smábæ á Íslandi,“ segir Adam Ingi.
Hann er ættaður frá Grundarfirði
en lék með 3. og 4. flokki FH á ár-
unum 2015-2017 og með 3. flokki
HK árið 2018 þar til að hann flutt-
ist til Svíþjóðar sumarið 2019 og
hóf að leika með U-19 liði Gauta-
borgar. Þá hefur hann leikið fjóra
landsleiki með yngri landsliðum
Íslands. Á dögunum skrifaði hann
svo undir atvinnusamning við fé-
lagið sem gildir til lok ársins 2024.
Aðalmarkvörður Gautaborgar er á
förum frá félaginu og það gæti gef-
ið Adam Inga fleiri tækifæri á næstu
leiktíð en leiktíðinni í Svíþjóð lýkur
um næstu helgi. Gautaborg er í átt-
unda sæti deildarinnar og er öruggt
með sæti í deildinni að ári.
Adam Ingi segir að hann hafi
vitað það í nokkra daga að kom-
ið væri að hans fyrsta leik í úrvals-
deildinni: „Þjálfarinn tók mig til
hliðar og sagði mér frá þessu. En
ég áttaði mig ekki á þessu fyrr en
ég gekk inn á völlinn með öllu sem
því tilheyrir. Þá kom adrenalínið,“
segir þessi ungi geðþekki Grund-
firðingur í viðtali við Gautaborgar-
póstinn.
vaks
Körfuknattleiksfélag ÍA hefur boð-
að til aðalfundar félagsins 2. janú-
ar næstkomandi. Nú ber svo við
að núverandi stjórn, sem er skipuð
þeim Jóni Þór Þórðarsyni, Hanni-
bal Haukssyni og Jónasi H. Ottós-
syni, ætlar ekki að gefa kost á sér
áfram. Því auglýsir stjórn félagsins
eftir ferskum og þróttmiklum að-
ilum til að taka félagið enn lengra.
Félagið hefur verið ört vaxandi, er
fjárhagslega í ágætu jafnvægi og á
bjarta framtíð. Þeir sem hafa áhuga
eru hvattir til að setja sig í samband
við Guðmundu Ólafsdóttur, fram-
kvæmdastjóra ÍA, á netfangið gud-
munda@ia.is fyrir 15. desember nk.
Konur eru sérstaklega hvattar til að
gefa kost á sér en stjórn félagsins
hefur eingöngu verið skipuð körl-
um undanfarin ár.
vaks
Snæfell skellti sér á Skagann á föstu-
dagskvöldið og lék gegn liði Aþ-
enu UMFK í 1. deild kvenna í
körfuknattleik, en Aþenustúlk-
ur frá Kjalarnesi leika heimaleiki
sína í vetur á Akranesi. Það má með
sanni segja að hart hafi verið barist
í íþróttahúsinu við Vesturgötu og
hörkuleikur sem leikmenn buðu
áhorfendum upp á. Snæfell byrjaði
leikinn betur og komst í 0:6 og síð-
an í 2:13 eftir rúmar þrjár mínútur í
fyrsta leikhluta. Aþena gafst þó ald-
eilis ekki upp og minnkaði muninn
í fjögur stig, 14:18 og staðan 18:25
eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leik-
hluta hélt baráttan áfram og Aþena
náði að minnka muninn í tvö stig,
29:31, eftir fimm mínútna leik en
þá tók Snæfell kipp, skoraði 13 stig
gegn aðeins fjórum stigum Aþenu
og staðan í hálfleik 33:44.
Aþenustúlkur komu grimmar inn
eftir leikhléið, skoruðu fyrstu tólf
stigin og allt í einu komnar yfir í
fyrsta skiptið í leiknum, 45:44. Und-
ir lok þriðja leikhlutans var stað-
an 52:54 en Snæfell skoraði síðustu
fimm stigin og kom sér í góða stöðu
fyrir lokahlutann, staðan 52:59
þegar liðin fengu sér vatn í þurrar
kverkarnar og ræddu málin. Í fjórða
leikhluta var eins og Snæfell væri að
sigla þessu heim, hélt þægilegu for-
skoti en Aþena neitaði að gefast upp
og um rúman miðjan leikhlutann
var munurinn aftur orðinn tvö stig,
66:68 og spennustigið orðið ansi
hátt í höllinni. Snæfell náði að sýna
styrkleika sinn í framhaldinu þegar
liðið skoraði níu stig gegn aðeins
tveimur og þó Aþena minnkaði
muninn í þrjú stig á síðustu mínút-
unni þá dugði það ekki til. Rebekka
Rán Karlsdóttir hitti úr öðru af
tveimur vítaskotum sínum á loka-
sekúndunni og lokastaðan fjögurra
stiga sigur Snæfells, 75:79.
Sianni Martin var allt í öllu hjá
Snæfelli með 40 stig og þá var áð-
urnefnd Rebekka Rán öflug með 24
stig. Violet Morrow skoraði tæplega
helming stiga Aþenu eða 40 stig og
var með 16 fráköst. Þá voru þær
Ása Lind Wolfram og Tanja Ósk
Brynjarsdóttir með 9 stig hvor og
Bergþóra Holton Tómasdóttir með
8 stig og 13 fráköst.
Snæfell er nú í 5.-9. sæti deildar-
innar með sex stig eins og Aþena,
Tindastóll, Hamar-Þór og Stjarnan
en liðin hafa leikið mismarga leiki.
Næsti leikur Snæfells er gegn Fjölni
B laugardaginn 4. des í Stykkis-
hólmi og hefst klukkan 15.
vaks
Kristrún Bára Guðjónsdótt-
ir hjá Karatefélagi Akraness varð
Norðurlandameistari í hópkata
um helgina ásamt þeim Móeyju
Maríu Sigþórsdóttur McClure frá
Breiðabliki og Freyju Stígsdóttur
frá Þórshamri. Mótið var haldið í
Stavanger í Noregi. Ísland hefur
einu sinni áður unnið til Norður-
landameistaratitils í liðakeppni en
það var árið 2012.
mm
Leita að fólki í stjórn
Á myndinni er Móey lengst til vinstri, þá Freyja og Kristrún. Ljósm. ge
Urðu Norðurlanda-
meistarar í hópkata
Grundfirðingurinn Adam Ingi sló í
gegn með liði Gautaborgar
Adam Ingi í búningi IFK Gautaborg. Ljósm. IFK Goteborg
Sianni Martin var allt í öllu hjá Snæfelli gegn Aþenu en er hér í leik á móti KR.
Ljósm. sá
Snæfellsstúlkur náðu sigri gegn Aþenu í hörkuleik