Skessuhorn - 22.06.2022, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 20222
Útgáfan í sumar
SKESSUHORN: Nokkur er
spurt um útgáfudaga Skessu
horns í sumar. Það skal upp
lýst að blaðið kemur út alla
miðvikudaga í sumar, utan
eins. Það kemur ekki út blað
vikuna eftir verslunarmanna
helgi, miðvikudaginn 3. ágúst.
Starfsfólk á ritstjórn verður
í sumarleyfi frá 27. júlí til og
með 2. ágúst. -mm
Féll af hesti
SNÆFELLSNES: Erlend
ferðakona féll af hesti um
kvöldmatarleytið síðasta
laugardag í grennd við Hót
el Búðir. Kvartaði hún um
eymsli, var með áverka á höfði
og á baki og var illa áttuð eft
ir höfuðhögg. Konan var flutt
á HVE á Akranesi til nánari
skoðunar. -vaks
Fauk af
nýbyggingu
GRUNDARFJ: Í rokinu síð
asta sunnudag fauk byggingar
efni af nýbyggingu við
Grundargötu. Óskað var eft
ir aðstoð og kom björgunar
sveitin Klakkur á vettvang til
að hjálpa til við að koma í veg
fyrir frekara fok. -vaks
Þrír árekstrar
sama dag
HVALFJ.SV: Síðasta sunnu
dag gekk mikið á í Hval
fjarðargöngunum en alls urðu
þrír árekstar þennan dag.
Fjögurra bíla árekstur var
rétt fyrir klukkan fimm þar
sem tveir bílar voru óökufær
ir og voru þeir dregnir á brott
með dráttarbíl. Skömmu síð
ar var þriggja bíla árekstur
þegar einn bílstjóri var að
reyna að forða sér frá aftaná
keyrslu og fór utan í annan bíl
á leið í sömu átt. Var göngun
um lokað í tvígang með stuttu
millibili í þó nokkurn tíma
vegna óhappanna og mynduð
ust miklar bílaraðir í kjölfar
ið. Seinna um kvöldið um kl.
hálf níu var svo aftanákeyrsla
í göngunum. Slys á fólki var
minni háttar þennan dag en
nokkrir voru þó færðir til
aðhlynningar á HVE á Akra
nesi. -vaks
Breytt
hjúskaparlög
LANDIÐ Frumvarp dóms
málaráðherra um breytingar
á hjúskaparlögum nr. 31/1993
var nýlega samþykkt á Alþingi.
Gerðar voru breytingar á ýms
um ákvæðum hjúskaparlaga
svo sem varðandi undanþágu
heimild vegna lágmarksaldurs
til þess að stofna til hjúskapar,
könnun hjónavígsluskilyrða
og lögsögu í hjónaskilnaðar
málum, auk þess sem gerð
ar voru breytingar sem snúa
að því að færa tiltekin verk
efni frá ráðuneytinu til sýslu
manna. -mm
Landinn er út um allar trissur út
um allt land þessa dagana í sumar-
fríi ýmist í bústöðum eða á ferðinni
með tjaldið, tjaldvagninn, fellihýs-
ið, hjólhýsið eða húsbílinn hvað sem
þetta heitir nú allt saman. Þó er eitt
sem skemmir upplifun margra á ferð
sinni um landið en það er fjandans
lúsmýin sem hrellir ferðalangana
eins og hún kemst upp með. Blaða-
maður lenti í lúsmýi á dögunum og
segir ekki farir sínar sléttar af þessum
bölvuðu agnarsmáu mýflugum af
lúsmýsætt sem eru afar fíngerðar og
illa sýnilegar nema helst þegar þær
safnast margar saman á ljósa og hár-
litla húð manna til að taka úr þeim
blóð. Megi þær fara fjandans til!
Á fimmtudag má búast við norð-
lægri átt 8-13 m/s, en austlægari
syðst. Skýjað á landinu og rigning á
köflum, en þurrt að kalla á Vestur-
landi. Hiti 5 til 10 stig. Á föstudag er
útlit fyrir norðan 5-10 með súld eða
rigningu á norðurhelmingi lands-
ins. Skýjað með köflum sunnan til
og stöku skúrir. Hiti frá 4 stigum fyr-
ir norðan, upp í 12 stig á Suðurlandi.
Á laugardag og sunnudag er gert
ráð fyrir norðlægri átt 3-8, en 8-13
með austurströndinni. Skýjað að
mestu og þurrt að kalla á Norður- og
Austurlandi, en yfirleitt bjart sunn-
an heiða. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á
Suðurlandi.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Til hvaða landshluta langar
þig helst að ferðast í sumar?“
36% sögðu Vestfirðir, 24% sögðu
Austur land, 13% sögðu Vestur-
land, 10% sögðu Norðurland, 7%
sögðu Hálendið, 4% völdu Annað,
4% sögðu Suðurland og 2% sögðu
höfuð borgarsvæðið.
Í næstu viku er spurt:
Hefur þú fengið hraðasekt?
Um næstu helgi verður haldið
Landsmót 50+ í Borgarnesi á veg-
um UMFÍ. Sigurður Guðmundsson
frá Hvanneyri skipuleggur mótið fyr-
ir hönd UMSB og UMFÍ. Sigurður er
reyndur mótshaldari en hann hef-
ur skipulagt Landsmót 50+ nokkrum
sinnum. Sigurður er Vestlendingur
vikunnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Útbreiðsla Covid19 er nú vaxandi
hér á landi að nýju og vísbendingar
um að ný afbrigði veirunnar komi
með fjölda ferðamanna til lands
ins. Nú greinast opinberlega um og
yfir 200 manns á dag hér á landi en
líklega er fjöldinn meiri því margir
greinast með heimaprófi og fá ekki
greininguna staðfesta með opinberu
prófi. Flestir sem greinast hafa ekki
fengið Covid19 áður en endursmit
eru undir 10% af daglegum greind
um smitum.
Innlögnum vegna Covid19 tók
að fjölga hratt í síðustu viku og um
helgina létust tveir með sjúkdóminn
á Landspítalanum. 34 einstaklingar
lágu á spítalanum á mánudaginn,
enginn þó á gjörgæslu. Staðan var
engu að síður metin alvarleg, ekki
síst vegna mikils mönnunarvanda
í heilbrigðisstörf. Flestir inniliggj
Sú hefð hefur verið á Akranesi um
nokkurt skeið að útnefna bæjar
listamann á Þjóðhátíðardaginn 17.
júní. Þá nafnbót hefur undanfar
ið ár borið Valgerður Jónsdóttir
tónlistarkona sem nýverið þakkaði
fyrir sig með tónleikum. Að þessu
ákvað menningar og safnanefnd
Akraneskaupstaðar að útnefna
Hallgrím Ólafsson bæjarlistamann
fyrir árið 2022. Hallgrímur, oftast
kallaður Halli Melló, er fæddur og
uppalinn á Akranesi. Hann gekk í
Grundaskóla á æskuárunum og fór
þaðan í Fjölbrautaskóla Vestur
lands; „en var rekinn þaðan fyrir
einstaka hæfileika í að eyða tíma í
skipulagningu viðburða nemenda
félagsins á skólatíma,“ eins og segir
í umsögn nefndarinnar. „Þrátt fyrir
brösótt gengi í FVA lauk hann prófi
í leiklist frá Listaháskóla Íslands
2007 og vann síðan með leikfélagi
Akureyrar 20072008 og í Borgar
leikhúsinu 20082014. Hallgrímur
hefur síðan starfað hjá Þjóðleikhús
inu. Á leikferlinum frá útskrift hef
ur hann leikið í hátt í 40 leiksýning
um en einnig tekið þátt í ótal sjón
varpsþáttum og bíómyndum og
fékk tilnefningu til Eddunnar fyrir
leik sinn í Gullregni.
Sem tónlistarmaður hefur Hall
grímur komið fram undir lista
mannsnafninu Halli Melló og
honum til heiðurs hefur Leik
listarklúbbur FVA fengið nafnið
„Melló,“ þar sem hann hef
ur margoft sinnt leikstjórn m.a. á
sýningunum Draumnum, Grea
se, Gauragangi og fleirum. „Hall
grímur er stoltur Skagamaður og
hefur alltaf verið tilbúinn að koma
í sinn gamla heimabæ til að sinna
ýmsum verkefnum svo sem að vera
viðburðastjóri Írskra daga og að
koma fram við hin ýmsu tækifæri.“
Loks segir í umsögn menningar
og safnanefndar: „Það er óhætt að
segja að hann hafi lagt sitt á vogar
skálina fyrir menningu og listir á
Akranesi og er því vel að þessari
nafnbót kominn.“
mm
Veitur hafa tilkynnt að fyr
ir dyrum standi umfangs
miklar framkvæmd
ir á hluta Borgar brautar
í Borgarnesi, stofngötu
bæjarins. Ásamt Veitum
koma að framkvæmdun
um Rarik, Vegagerðin
og Borgar byggð. Verk
ið felst í endurnýjun frá
veitulagna, hitaveitu og
vatnslagna ásamt endur
nýjun yfirborðs götu og
gangstíga á um 550 metra
kafla Borgarbrautar, milli
Böðvarsgötu og Egils
götu.
Verkefninu verður skipt upp í
þrjá áfanga: Fyrsti áfangi verður
í sumar og nær yfir Borgarbraut,
frá Egilsgötu að Skallagrímsgötu,
og eru áætluð verklok 1. október
2022. Í áföngum tvö og þrjú verð
ur Borgar braut, frá Skallagríms
götu að Böðvarsgötu lokað. Fram
kvæmdir við áfanga tvö eiga að hefj
ast vorið 2023 og að þeim loknum
verður unnið í áfanga þrjú. Gert er
ráð fyrir að vinna við áfanga 2 og 3
standi yfir frá 1. apríl til 15. október
2023.
Framkvæmdirnar munu hafa
umtalsverð áhrif á umferð á svæð
inu en settar verða upp viðeigandi
merkingar um hjáleiðir. Gera má
ráð fyrir aukinni umferð
vinnuvéla og öðru raski
á verktímanum. Íbúar og
fyrirtæki í bænum mega
því búast við einstaka lok
unum á rafmagni, hita
veitu og/eða vatnsveitu á
verktímanum og verður
upplýst um þær með eins
góðum fyrirvara og hægt
er hverju sinni, segir í til
kynningu frá Veitum.
Vegna framkvæmdanna
í sumar verður götunni
lokað frá Böðvarsgötu
í norðri að Egilsgötu í
suðri. Allri umferð verður
beint um íbúðargöturnar Böðvars
götu, Þórólfsgötu og Sæunnargötu
og loks um Bjarnarbraut. Þannig
munu hópferðabílar sem aka þurfa
með fólk t.d. í Landnámssetrið og
á Hótel Borgarnes, sem og aðrir
stærri bílar, að fara um fyrrnefndar
íbúðargötur.
mm
Fjölgun alvarlegra veika af Covid-19
andi sjúklinga eru eldri en 70 ára
en alvarleg veikindi sjást aðallega
hjá þeim sem hafa fengið þrjár eða
færri bólusetningar. Þetta er í sam
ræmi við niðurstöðu erlendra rann
sókna um að fjórði bólusetningar
skammtur minnkar verulega lík
ur á alvarlegum veikindum vegna
Covid19.
Í tilkynningu frá Almannavörn
um segir að fólk sé hvatt til að
gæta að sínum sóttvörnum; forð
ast fjölmenni, halda fjarlægð, þvo
og spritta hendur og nota andlits
grímu þegar sóttvörnum verður
ekki viðkomið. Þessum tilmælum er
sérstaklega beint að þeim sem eru
80 ára og eldri og fólki með undir
liggjandi sjúkdóma. Þá er óbólusett
fólk hvatt til að þiggja bólusetn
ingu. Eldra fólk og heimilisfólk á
hjúkrunarheimilum er hvatt til að
þiggja þriðja skammt bólusetningar,
sömuleiðis yngra fólk sem getur
verið viðkvæmt fyrir Covid. mm
Hallgrímur Ólafsson
valinn bæjarlistamaður
Guðríður Sigurjónsdóttir, formaður menningar- og safnanefndar Akraneskaup-
staðar, Hallgrímur Ólafsson bæjarlistamaður Akraness 2022 og Valgarður
Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar. Ljósm. akranes.is
Skjáskot af korti en grænlitaði hluti Borgarbrautar sýnir
áfanga eitt í verkefninu og verður gatan lokuð frá Egilsgötu að
Skallagrímsgötu í sumar. Ljósm. þg
Hluta Borgarbrautar í Borgarnesi
verður lokað í sumar