Skessuhorn - 22.06.2022, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2022 9
Landsmót harmonikuunnenda í Stykkishólmi
Fjórtánda Landsmót Sambands íslenskra
harmonikuunnenda fer fram í Stykkishólmi dagana
30. júní til 3. júlí nk. í boði Félags harmonikuunnenda
í Reykjavík
Mótið, sem verður tileinkað Hafsteini Sigurðssyni
harmonikuleikara og tónlistarkennara í Hólminum. Það
verður formlega sett í íþróttahúsinu í Stykkishólmi klukkan
13:30 föstudaginn 1. júlí. Að því loknu taka við tónleikar
aðildarfélaga, sem standa til kl. 17:30. Klukkan 20:00 hefst
svo dansleikur í íþróttahúsinu, sem stendur til miðnættis.
Dagskrá laugardagsins hefst með tónleikum klukkan
13:30 og er áætlað að þeim ljúki kl. 15:30. Klukkan
16:00 fara fram sérstakir hátíðartónleikar Ástu Soffíu
Þorgeirsdóttur, Kristinu Farstad Björdal og Mariusar
Berglund. Stórdansleikur síðan í íþróttahúsinu um kvöldið
frá klukkan 20:00 til 01:00 eftir miðnætti.
Aðgangseyrir með armbandi er kr. 10.000 á alla
viðburði mótsins, þrenna tónleika og tvo dansleiki.
Á staka viðburði: Föstudagsdansleikur kr. 3000,
laugardagsdansleikur kr. 4000, tónleikar kr. 1500 og
hátíðartónleikar kr. 2000. Kynnir landsmótsins verður
Ellert Kristinsson.
Af þessu tilefni hafa harmonikuunnendur fengið
tjaldsvæði úthlutað næst íþróttahúsinu, meðan það endist,
en aðeins íþróttavöllurinn er á milli. Greið gönguleið er
að íþróttahúsinu. Tjaldsvæðið er hins vegar mun stærra.
Tilboð til harmonikuunnenda verður í boði, sem þýðir
að sé dvölin þrjár nætur eða fleiri kostar nóttin kr. 1000
– 1060 á mann. Ekki verður rukkað fyrir rafmagn í þeim
tilvikum.
Byggingarfélagið Bestla er um
þessar mundir með tvö fjölbýlis
hús í byggingu við Þjóðbraut 3
og Þjóðbraut 5 á Akranesi. Sigur
björn Hallsson, eða Silli eins og
hann er kallaður, er staðarstjóri
Bestlu á Akranesi en hann hóf störf
þar í október síðastliðnum. Blaða
maður Skessuhorns heimsótti Silla
í lok síðustu viku á vinnustaðinn
til að forvitnast um framkvæmd
irnar. Hann segir að ekki sé langt
í að fyrir tækið ljúki við fjölbýlis
húsið við Þjóðbraut 3, uppsteyp
an sé búin og búið að setja inn
réttingar á fyrstu tvær hæðirnar og
verið að vinna í þeirri þriðju. „Í vik
unni verða síðustu gólfin flotuð á
fimmtu hæðinni í stigaganginum
og lyftan sett í. Það er búið að mála
allt nema lokaumferðina á allar
íbúðirnar í blokkinni þannig að við
erum á síðustu metrunum að ná að
ljúka við fyrstu þrjár hæðirnar. Svo
er verið að klára garðinn og frágang
úti í kringum Þjóðbraut 3 og í ágúst
aðskiljum við svæðin tvö.“
Nokkur tilboð
þegar komin
En hvenær verður Þjóðbraut 3 til
búin til sölu? „Hún fer í söluferli
í vikunni en fór í óformlega sölu í
þar síðustu viku. Það var fyrir fólk
sem var búið að skoða og setja sig á
biðlista og bjóða í eignir. Það verða
þrjár fasteignasölur með eignirn
ar á sölu hjá sér, ein af Skaganum
og tvær í bænum. Miðað við undir
tektir er ég mjög bjartsýnn á að
þetta seljist hratt og vel enda þó
nokkur tilboð komin.“
Alls eru 38 íbúðir í hvorri blokk
fyrir sig og gengur allt samkvæmt
áætlun. Á Þjóðbraut 5 er kominn
bílakjallari og fyrstu tvær hæðirn
ar uppsteyptar og verið að byrja á
að setja gólfplötur á þriðju hæð
inni. Reiknað er með að lokið verði
við uppsteypu í október og síðan
klæðningarvinnu og annað í kjöl
farið. Gert er ráð fyrir að verkinu
ljúki næsta vor ef allt gengur eftir.
Garðabraut 1
í undirbúningi
Þegar lokið hefur verið við þessar
tvær byggingar er ætlunin, ef það
fær samþykki, að hefja framkvæmd
ir á Garðabraut 1 þar sem byggja á
fjölbýlishús. Form byggingarinn
ar verður vinkillaga með stíganda í
hæðinni, frá sjö hæðum á horni og
lækkar síðan í fjórar og fimm hæð
ir. Stefnt er að því að byggðar verði
íbúðir með góðu aðgengi, þ.e. bíla
geymslu og lyftu og verða flestar
íbúðir tveggja eða þriggja herbergja
og áhersla lögð á góða nýtingu fer
metra.
Stefna á aukin umsvif
Silli segir að lokum að ef þeir fái
framkvæmdaleyfi í sumar þá byrji
framkvæmdir við Garðabraut 1 í
haust; „Við byrjum kannski niður
rifið fyrr en við tökum enga áhættu
og byrjum ekki fyrr en öll leyfi eru
komin. Það væri gott ef við gætum
fært steypuvinnuna þegar henni
lýkur frá Þjóðbraut 5 yfir á Garða
braut en þetta á allt eftir að koma
í ljós. Engin fleiri verkefni eru
framundan hjá okkur eftir að þess
um lýkur en við erum opnir fyrir
öllu og ætlum að auka umsvif okk
ar á Akranesi. Við ætlum að fara
meira í það að gera hlutina sjálf
ir og minnka undirverktakana. Við
erum nú þegar komnir með 16
starfsmenn hér á Skaganum og ætl
um að bæta við okkur enn frekar.
Við erum nýlega búnir að ráða þrjá
Úkraínumenn til starfa og einn af
þeim er verkfræðingur. Við erum
opnir fyrir öllum tækifærum og
bjartsýnir fyrir komandi árum,“
segir Silli að lokum. vaks
Líklega verður Þjóðbraut 5 tilbúin næsta vor, en búið er að steypa upp bílakjallara
og fyrstu tvær hæðirnar.
Vel gengur með fjölbýlishúsin við Þjóðbraut
Sigurbjörn Hallsson staðarstjóri Bestlu á Akranesi. Þjóðbraut 3 fer í söluferli í vikunni. Fjær sést glitta í Dalbraut 4 sem fyrirtækið
byggði einnig.