Skessuhorn - 22.06.2022, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2022 11
Alþingi samþykkti í liðinni viku
frumvarp heilbrigðisráðherra um
breytingu á lögum nr. 87/2018 sem
felur í sér að nikótínvörur eru felld
ar undir lög um rafrettur þannig að
í meginatriðum gilda þar með sömu
reglur um þennan varning. Megin
markmiðið er að tryggja gæði og
öryggi nikótínvara og tryggja með
tiltækum ráðstöfunum að börn
kaupi hvorki né noti nikótínvör
ur og rafrettur og áfyllingar fyrir
rafrettur.
Nikótínvara telst sú vara sem
inniheldur nikótín, hvort sem nikó
tínið er unnið úr tóbaki eða ekki og
varan inniheldur að öðru leyti ekki
önnur efni sem unnin eru úr tóbaki.
Dæmi um nikótínvöru eru nikótín
púðar. mm
Laugardaginn 11. júní gekk vaskur
hópur fólks á Helgrindur fyrir ofan
Grundarfjörð. Helgrindur er fjall
garður sem myndar meginfjöll í fjall
garðinum á Snæfellsnesi. Vindasamt
getur verið þar uppi og í hvassviðri
hvín svo hátt í Helgrindum, að heyr
ist sem væl niður í byggð. Algengara
er að ganga á Helgrindur að sunnan
verðu en þá er gengið frá bænum
Kálfárvöllum rétt áður en komið er
að Búðum. Í þetta sinn var gengið
norðanmegin frá og hófst og endaði
gangan í Grundarfirði.
Gangan hófst rétt við tjaldsvæð
ið í Grundarfirði og var farið upp
Egilsskarð í blíðskaparveðri. Skyggni
var gott og hiti þokkalegur en mik
ill þokubakki lá yfir fjallgarðinum
en göngumenn vonuðust til að það
myndi rofa til. Fyrst var gengið upp
grösugar brekkur en eftir því sem
ofar dró varð undirlendið stórgrýtt
ara og loks var gengið í snjó. Þegar
upp var komið hafði aðeins rof
að til en veðrið var heldur verra en
niðri í byggð; hvasst og kalt. Útsýni
var ágætt yfir sunnanvert Snæfells
nes og út á Faxaflóa og aðeins sást
glitta í Snæfellsjökul. Ekki var geng
ið á hæstu tinda Helgrinda sem eru
Tröllkerling (891 m), Böðvarskúla
(988 m) og Kaldnasi (986 m), held
ur var rétt stoppað til að taka myndir
og svo var haldið niður í Grundar
fjörð um Langahrygg með Kirkju
fell og nærliggjandi fjöll fyrir augum.
Gengnir voru 14,3 kílómetrar og tók
ferðin um átta klukkustundir.
Fararstjórinn í ferðinni var heima
maðurinn Gunnar Njálsson frá
Ferðafélagi Snæfellinga og stjórnaði
hann ferðinni og göngufólki af miklu
öryggi.
Þorsteinn Eyþórsson
Á meðfylgjandi mynd er væntanlegt
veiðihús fyrir Reykjadalsá í Borgar
firði sem Fiskræktar og veiðifé
lag Reykjadalsár lætur byggja. Nýja
húsið verður um 130 fm að stærð
með þremur svefnherbergjum og
svefnplássi fyrir sex. Það mun leysa
af hólmi eldra veiðihús, A bústað, í
landi Kjalvararstaða sem þykir ekki
lengur standast kröfur um aðbún
að. Húsið er suðvestan við þéttbýl
ið í Reykholtslandi.
mm/ Ljósm. bhs
Nú eru skemmtiferðaskipin farin
að koma í röðum til Grundarfjarð
ar og fara flestir farþegarnir í land
og taka gönguferð um bæinn eða
fara upp í rútur í skoðunarferðir
um svæðið. Hann blés hressilega að
sunnan þegar farþegarnir af Costa
Fortuna komu í land sunnudaginn
19. júní síðastliðinn en þeir létu það
ekki á sig fá og sveipuðu sig regn
stökkum eða öðrum vatnsheldum
fatnaði áður en komið var í land.
Costa Fortuna er næststærsta skip
ið sem kemur til Grundarfjarðar í
ár en skipið er 102.669 brúttótonn
og er 272 metrar að lengd. Skipið
hefur pláss fyrir 3.500 farþega.
tfk
Frumvarp um nikótínvörur
orðið að lögum
Veiðihús fyrir Reykjadalsá
tekið að rísa
Gengið á Helgrindur
Stíf sunnanátt þegar
Costa Fortuna kom til
Grundarfjarðar
Séð yfir Grundarfjörð, Klakk og Eyrarfjall.
Göngumenn við Örninn.
Helgrindur.
Gengið niður. Kirkjufell skartaði sínu fegursta.
Hópmynd.