Skessuhorn - 22.06.2022, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2022 13
Við höfum aðstoðað tugi fyrirtækja og sótt styrki yfir 100 milljónir
Við höfum aðstoðað tugi fyrirtækja og sótt styrki yfir 100 milljónir
Rekstraraðilar veitingarstaða eiga rétt á styrk fyrir tímabilið
Desember 2021 – Mars 2022 samanborið við sama tímabil 2019 hafi
tekjufall verið 20% eða meira.
Umsóknarfrestur: Júní 2022
Hafðu samband og
við könnum rétt þinn
Á þinn veitingastaður
rétt á styrk vegna COVID-19?
S: 554 5414 | upplysingar@ferdavefir.is | ferdavefir.is
Umsóknarfrestur: Júní 2022
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
veitingastyrkir_loka copy.pdf 4 22.4.2022 16:50
Hátíðardagskráin í Stykkishólmi fór að þessu sinni fram í mígandi rigningu en
Hólmarar létu það ekki á sig fá. Anna Margrét Ólafsdóttir var ræðumaður dagsins
og það var svo ung og efnileg söngkona, Embla Rós Elvarsdóttir, sem slúttaði
dagskráinni með laginu Halleluja eftir Leonard Cohen. Royal Rangers Hvítasunnu-
skátar voru svo með Karnival stemningu á túninu bakvið Árnasetur fyrir ungu
kynslóðina ásamt því að hestamenn teymdu undir börnum og tunnulestin ók um
miðbæinn með brosandi kátum börnum. Þrátt fyrir rigningu og rok þá var Kubb
keppni, sykurpúðagrill og fjör í Hólmgarðinum um kvöldið. Fjallkonan í Stykkis-
hólmi var Klaudia Sylwia Gunnarsdóttir. Með henni á myndinni eru dætur hennar
Elín Margrét Sigurðardóttir og Kristín Ósk Sigurðardóttir. Fjallkonan las ljóðið
Landið sem flokkar ekki fólk og er eftir Bubba Morthens. Nýstúdentar á myndinni
eru Símon Ernst og Lárus en þeir útskrifuðust af starfsbraut FSN. Ljósm. sá
Nýstúdentinn Þórunn Sara Arnars-
dóttir var fjallkonan í Borgarnesi þetta
árið. Ljósm. aðsend.
Tvíburarnir Unnur Katrín og Kristín
Anna Guðmundsdætur eru níu ára.
Þarna voru þær prúðbúnar að koma af
hestbaki á Safnasvæðinu í Görðum á
Akranesi. Ljósm. ki.
Hefðbundin hátíðarhöld voru í Grundarfirði á þjóðhátíðardaginn. Grundar- og
Kvernárhlaupið fóru fram um morguninn ásamt sundmóti á vegum Umf.
Grundarfjarðar. Að því loknu var uppskeruhátíð Ungmennafélagsins haldin þar
sem boðið var upp á grillaðar pylsur. Svo var skrúðganga upp á hátíðarsvæðið
þar sem fjölþjóðleg hátíðarræða var flutt og fjallkonan steig á svið. Hér eru þær
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, Paulina Kolenderska, Anne Desse og Magatte Gueye,
en þær Sigur borg, Paulina og Anne voru ræðumenn dagsins en þær eru frá Íslandi,
Póllandi og Frakklandi. Magatte Gueye, sem fékk íslenskan ríkisborgararétt í jan-
úar 2021, var fjallkona þetta árið og flutti hún ljóðið „Hver á sér fegra föðurland“
af mikilli prýði. Ljósm. tfk.
Hestamannafélagið í Grundarfirði
leyfðu öllum áhugasömum að skreppa
á bak. Ljósm. tfk.
Ungmennafélag Grundarfjarðar gaf öllum iðkendum flugdiska til að nota á nýja
folfvellinum sem er fyrir ofan byggðina í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Að venju var 17. júní fagnað í Skjólbeltunum á Hvanneyri. Ljósm. Hvanneyri á FB.