Skessuhorn - 22.06.2022, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 202214
Hreppslaug er sundlaug í Skorra
dal sem byggð var á þriðja ára
tug liðinnar aldar. Laugin hefur
í áratugi verið notuð fyrir skóla
sund barna af Hvanneyri og úr
nágrannasveitunum; Andakíl og
Skorradal. Hefð er svo fyrir að opna
laugina fyrir almenning um hvíta
sunnuhelgi ár hvert og stendur hún
opin yfir sumar tímann. Hrepps
laug nýtur mikilla vinsælda á sumr
in en meðalfjöldi gesta er um 5000
manns yfir sumar mánuðina. Síðast
liðin tvö ár hefur sundlaugin hins
vegar verið lokuð. Ákveðið var að
loka henni sumarið 2020 og endur
byggja aðstöðuna við laugina. Á
næstu dögum mun svo verða opn
uð ný og endurbætt aðstaða við
Hreppslaug. Byggt var nýtt hús í
staðinn fyrir gamla laugarhúsið.
Blaðamaður hitti að máli Gunn
ar Örn Kárason, gjaldkera Ung
mennafélagsins Íslendings, en
félagið stendur fyrir framkvæmd
unum við laugina.
Tvöföld stærð
gamla hússins
,,Við tókum ákvörðun árið 2020
þegar Covid skall á að loka snemma
og rífa laugarhúsið sem var hérna.
Gamla húsið var byggt upp úr 1960
ef ég man rétt. Það var bara orðið
barn síns tíma en það var rennandi
vatn undir því svo húsið hélt ekki
málningu og var orðið býsna lélegt;
lítið og þröngt. Við fengum styrk
frá Skorradalshreppi til að byggja
nýtt hús. Hér erum við komin í dag
með 160 fermetra hús sem er tvö
falt að stærð miðað við gamla hús
ið. Við erum þá með stærri aðstöðu
og stærri búningsklefa sem uppfylla
nútíma byggingareglugerð en þetta
er einingahús frá Steypustöðinni,“
segir Gunnar um nýbygginguna.
Smiðir voru í óða önn að ljúka
framkvæmdum þegar blaðamann
bar að garði.
Laugin var byggð 1928
og er friðuð í dag
Bætt aðkoma er að húsinu og ekki
skemmir fyrir fallegt útsýni út yfir
laugina og nágrennið þegar geng
ið er inn um aðalinngang hússins.
Klefarnir eru stærri og í sama gamla
stílnum með snögum en fram
kvæmdaraðilar vildu halda í gamla
stílinn sem í dag er ekki algengur
í nýbyggingum laugarhúsa. ,,Hús
ið er orðið aðgengilegt öllum en
laugin ekki enn, verkefni sem við
þurfum að leysa. Laugin er byggð
1928 en hún var friðuð 2013 ef ég
man rétt. Þá komum við henni sem
sagt inn í friðun sem opnaði t.d.
á smá fjármagn til að halda henni
við. En núna máluðum við hana
upp á nýtt samhliða þessum fram
kvæmdum og þá getum við fengið
styrk frá Minjastofnun. Laugin er
friðuð sem menningarminjar um
sundstarf ungmennafélaga á þess
um tíma en hún er byggð af ung
mennafélögum 1928. Hún er því
94 ára í ár.“
Söfnuðu fyrir nýjum
heitum pottum
Auk þess að byggja nýtt hús og
mála laugina sjálfa voru hannað
ir og steyptir tveir nýir heitir pott
ar en þeir voru byggðir af sömu
byggingaraðilum og byggðu pott
ana í Kraumu við Deildartungu
hver. ,,Það er einn lítill uppruna
legur pottur hérna. En hérna voru
tveir skelpottar sem við rifum. Við
fórum í að safna á okkar félagssvæði
fyrir þessum nýju pottum, söfnuð
um flöskum og fleiru og svo styrkti
Borgarbyggð okkur einnig með
þennan hluta framkvæmdanna. En
okkur tókst sem sagt að láta hanna
fyrir okkur nýja potta sem við
steyptum og eru þeir í sama stíl og
sundlaugin.“
Opnuð á næstu dögum
Gunnar segir framkvæmdirnar
ganga vel en mikil keyrsla er búin
að vera á framkvæmdum síðan
um áramótin. Stefnt er á að opna
laugina sem fyrst en opnunarpartý
verður síðar í sumar. ,,Það er ekki
komin nákvæm dagsetning á opn
unina en það gengur mjög vel og
við ættum að geta opnað á næstu
dögum. Við munum líklega bara
opna venjulega fyrstu dagana og
prufukeyra aðeins nýju aðstöðuna.
En svo munum við líklega vera með
smá opnunarpartý seinna. Við þor
um ekki alveg að gera það á fyrsta
degi,“ segir Gunnar að lokum.
sþ
Sveinbjörn Reyr Hjaltason slas
aðist alvarlega fyrir tveimur árum
síðan þegar hann var við akstur í
motocross brautinni á Akranesi. Í
maí á síðasta ári var áheitaverkefnið
Stokkið fyrir Svenna þar sem náð
ist að safna fyrir sérsmíðuðu hand
knúnu fjallahjóli handa Svenna. Á
dögunum fékk Svenni loksins nýja
hjólið til sín en þá kom í ljós að um
rangt hjól var að ræða og var það
sent til baka. Að sögn Svenna á
hann von á græna hjólinu sínu eft
ir nokkrar vikur og bíður spenntur
eftir að það komi til landsins. Í
millitíðinni hefur hann síðustu
daga hjólað á lánshjóli út um allar
trissur en hann fékk það lánað hjá
Arnari Helga Lárussyni formanni
SEM (Samtök endurhæfðra mænu
skaddaðra), sem safnaði á sínum
tíma fyrir fjórum samskonar raf
magns fjallahjólum fyrir hreyfi
hamlaða. vaks
Svenni á lánshjólinu sem
hann hefur verið að prófa
undanfarið. Ljósm. ki.
Svenni kominn
á ferðina
Hreppslaug verður opnuð á næstu dögum
Nýtt laugarhús hefur verið byggt og nýir heitir pottar steyptir
Við inngang má sjá afgreiðsluborð til vinstri og horft er beint út í laugina. Smiðir
voru í óða önn að leggja lokahönd á framkvæmdir þegar blaðamann bar að
garði.
Gunnar Örn Kárason við Hreppslaug með nýbyggt laugarhúsið í baksýn.
Búningsklefar eru hannaðir í gömlum stíl með snögum, en mun rúmbetri en í
gamla laugarhúsinu.
Aðkoma að húsinu er greið fyrir gangandi og hjólastóla.