Skessuhorn - 22.06.2022, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2022 15
Við höfum aðstoðað tugi fyrirtækja og sótt styrki yfir 100 milljónir
Umsóknartímabil: Ágúst 2021 – Mars 2022
Umsóknarfrestur: Júní 2022
Hafðu samband og
við könnum rétt þinn
Umsóknarfrestur hefur verið
framlengdur
S: 554 5414 | upplysingar@ferdavefir.is | ferdavefir.is
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
vidspyrnustyrkir_loka copy.pdf 1 22.4.2022 16:49
Nýverið var Stefáni Vagni Stefáns
syni 1. þingmanni Norðvesturkjör
dæmis afhentur undirskriftalisti nær
allra íbúa sem búa við Klofningsveg
nr. 590, sem liggur um Fellsströnd
og Skarðsströnd í Dölum. Þar er
mótmælt þeirri ákvörðun að taka
300 milljónir króna af tengivega
fé til lagningar á bundnu slitlagi
í Ólafsdal, þar sem er engin föst
búseta. Á sama tíma þurfi íbúar
með fasta búsetu og atvinnurekstur
að búa við algjörlega óviðun
andi aðstæður í samgöngumálum
eins og fram kemur í ályktuninni.
„Nauðsynlegt er að til verkefnis
ins í Ólafsdal verði fengið sérstakt
fjármagn, þannig að ekki þurfi að
hægja á þeirri framvindu við lagn
ingu vega á ofangreindu svæði sem
fyrirhuguð var, eins og nú stefnir í,“
segir í áskoruninni til þingmanna.
Þá segir að ennfremur sé verið að
vekja athygli á ástandi annarra lykil
innviða á svæðinu. „Þess er vænst
að alþingismenn svæðisins leggist á
eitt með að fá þær úrbætur á innvið
um svæðisins þannig að þeir þjóni
a.m.k. lágmarkskröfum sem gerð
ar eru til þessara þátta í dag. Þar er
bæði hægt að benda á óviðunandi
ástand fjarskiptamála, símasam
bandsleysi þegar rafmagn dettur
út, sem gerist mjög oft og vöntun
á þriggja fasa rafmagni sem heft
ir atvinnuuppbyggingu á svæðinu.“
Sveitarstjórn ályktaði
Fjölmargir að ir hafa bent á
nauðsyn þess að vegur fyrir Klofn
ing verði endurbyggður. Sveitar
stjórn Dalabyggðar samþykkti m.a.
samhljóða í apríl á síðasta ári áskor
un þessa efnis. Þar skoraði hún
á Vegagerðina að hefja hönnun
og framkvæmdir við endurbæt
ur á Klofningsvegi nr. 590 01
(Vestfjarðavegur Hafnará 11,2
km ) 02 ( Hafnará Orrahólsvegur
10,55 km,) sem í daglegu tali kallast
að fara fyrir strandir, strax þá um
sumarið. „Vegur fyrir strandir ligg
ur um skilgreint landbúnaðarsvæði
sem hefur átt undir högg að sækja
og var nú nýverið skilgreindur sem
partur af hringvegi um Vestfirði þar
sem ferðamálasamtök kynna nýja
ferðamöguleika vegna bættra sam
gangna á Vestfjörðum með nýjum
tengingum svo sem Dýrafjarðar
gangna og fl.
Stendur atvinnuþróun
fyrir þrifum
Á undanförnum misserum hef
ur málinu verið fylgt eftir og ýtt á
stjórnvöld og Vegagerðina að flýta
sem kostur er hönnun þannig að
framkvæmdir geti hafist sem fyrst.
Ólafur Sveinsson, Sigurður Rún
ar Friðjónsson og tengdadótt
ir hans, Sigrún Hanna Sigurðar
dóttir á Lyngbrekku, hafa meðal
annars beitt sér í málinu. Í saman
tekt sem þau Sigrún Hanna og Ólaf
ur Sveinsson unnu nýverið kem
ur fram að á Lyngbrekku sé rekið
eitt af afurðahæstu kúabúum lands
ins, en búið er í dag í þeirri stöðu
að ógerlegt er að þróa reksturinn
þannig að hann standist kröfur og
fylgi eftir þeirri þróun sem á sér stað
í atvinnugreininni. Benda þau á að
þar fari saman skortur á þriggja fasa
rafmagni, símasambandi sé veru
lega ábótavant og vegurinn óviðun
andi. Bent er á að á þessum vegi
séu tvær brýr yfir Laxá í Hvamms
sveit og Hvammsá sem báðar verða
að teljast ónýtar, skert burðargeta
þeirra er með þeim hætti að ekki er
hægt að koma sértækum vinnuvél
um og þungaumferð um veginn. Ef
halda á áfram þróun atvinnustarf
semi á svæðinu segja þau nauðsyn
legt að bæta innviði. Benda einnig
á að börnum á svæðinu hefur fjölg
að og þar af leiðir að umferð skóla
aksturs hefur aukist.
Loks segir að fyrirtæki eins og
rekið er í Lyngbrekku sé ein af
meginstoðum samfélags eins og er
í Dalasýslu. „Það yrði öllu samfé
laginu gríðarlegt högg ef hætt yrði
við uppbyggingu sem þar er fyrir
huguð, en verið er að þróa þessa
starfsemi í takt við tímann og ítr
ustu kröfur um tækni, vinnuaðstöðu
og gæði. Á svæðinu eru einnig önn
ur öflug bú, samvinna mikil á milli
þeirra og þróun til framtíðar.“ Í
samantekt Sigrúnar Hönnu og Ólafs
er þeirri beiðni komið á framfæri að
kannað verði með að flýta hönnun
og framkvæmdum á Klofningsvegi
nr. 590 eins og kostur er. mm
Lyngbrekka á Fellsströnd. Jörðin Svínaskógur er fjær á myndinni og nytjuð af bændum á Lyngbrekku. Ljósm. aðsend.
Skora á þingmenn að bæta innviði
sveitanna við Klofningsveg