Skessuhorn - 22.06.2022, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 202216
Síðastliðinn miðvikudag hélt
Rarik upp á 75 ára afmæli fyrir
tækisins. Opið hús var á völd
um starfsstöðvum víðs vegar um
landið. Starfsmenn Rarik tóku á
móti gestum og kynntu aðstöðu
og starfsemi fyrirtækisins á hverj
um stað. Boðið var upp á kaffi,
afmælistertu og aðrar veitingar
auk þess sem afmælisfáni var dreg
inn að húni. Hér á Vesturlandi var
opið á starfsstöðvum fyrirtækis
ins í Borgarnesi og Stykkishólmi.
Auk þess var opið hús á Blöndu
ósi, Sauðárkróki, Akureyri, Þórs
höfn, Egilsstöðum, Fáskrúðsfirði,
Hornafirði og á Hvolsvelli.
mm
Gestir á leið í opið hús við Sólbakka í Borgarnesi. Ljósm. Rarik.
Opið hús hjá Rarik
Svipmynd úr Stykkishólmi. Hér má sjá þá Halldór Árnason, Björn Sverrisson
og Jakob Björgvin Jakobsson. Ljósm. sá.
Um næstu helgi verður haldið
Landsmót 50+ í Borgarnesi á vegum
UMFÍ. Þar verður keppt í hinum
ýmsu íþróttagreinum. Keppt verður
í hefðbundum íþróttagreinum auk
óvenjulegra greina eins og pönnu
kökubakstri og stígvélakasti. Blaða
maður Skessuhorns hitti að máli
Sigurð Guðmundsson frá Hvann
eyri sem er nú í óða önn að skipu
leggja mótið fyrir hönd UMSB og
UMFÍ. Sigurður er reyndur móts
haldari en hann hefur skipulagt
Landsmót 50+ nokkrum sinnum.
Mótinu aflýst í tvígang
,,Ég byrjaði að vinna hjá UMFÍ
árið 2008 en árið 2014 var fyrsta
50+ mótið haldið á Hvammstanga
og ég hélt utan um það ferli. Svo
hélt ég utan um 50+ mótið í nokk
uð mörg ár eftir það. UMFÍ er sem
sagt að halda þetta mót í samstarfi
við UMSB og Borgarbyggð. Það
er pínulítið skrítið að koma þessu
í gang núna vegna þess við höf
um þurft að fresta mótinu núna
í síðustu tvö skipti. Síðasta mót
var í Neskaupstað 2018 en mótið
er haldið annað hvert ár. Við vor
um búin að undirbúa mótið 2020
þegar við þurftum að aflýsa því og
sama gerðist svo aftur 2021 en í
bæði skiptin var allt klárt. Nú lítur
loksins út fyrir að þetta náist. Þetta
verður rosalega gaman.“
Covid ennþá að
hafa áhrif
Sigurður segir að ennþá sé að skýr
ast hversu margir komi til með að
keppa þar sem enn eru að tínast inn
skráningar en útlit sé fyrir að ein
hverjar greinar verði felldar nið
ur. „Við erum ennþá að bíða eftir
skráningu en fólk er svolítið gjarnt
á að skrá sig á síðustu stundu. Það
er greinilegt að Covid er ennþá að
hafa áhrif á okkur. Þessir föstu hóp
ar sem hafa verið starfandi víðs
vegar um landið eru greinilega ekki
alveg komnir af stað þannig ég von
ast til að þetta geti verið svona svo
lítið byrjunin á því að fólk fari svo
loksins að hreyfa sig og komist af
stað í sínum íþróttagreinum. Fólk í
þessum aldurshópi er kannski bara
pínulítið hrætt líka því fólk er enn
þá að greinast með þessa blessuðu
veiru. En þegar fólk er komið á
þennan aldur og hættir að hreyfa sig
er ennþá erfiðara að koma sér aft
ur í gang.“
Nýjar keppnisgreinar
sem henta öllum
Mótið er fyrir fimmtíu ára og eldri
svo keppendur eru á breiðu aldurs
Landsmót 50+ verður í Borgarnesi um helgina
bili. Reynt er að búa til greinar sem
henta flestum auk þess sem ein
hverjar opnar keppnisgreinar eru í
boði óháðar aldri. „Í dag er fimm
tugt enginn aldur, en þetta er nátt
úrulega fyrir fimmtíu ára og eldri.
Það eru t.d. ekki mörg ár í að ég
geti sjálfur farið að taka þátt á þessu
móti. Við erum að reyna að horfa til
þessa aldursbils og erum með nýjar
greinar í ár. Ringo t.d. sem er eins
og blak nema með hringjum sem
er kastað á milli liða og ekki þetta
skutl, hopp og læti sem er í blaki.
Við erum með körfubolta sem verð
ur svona „street ball“ körfubolti
þar sem þrír spila á móti þremur
og bara á eina körfu inni í íþrótta
húsi. Þá verða ekki þessi hlaup
sem vanalega eru í körfubolta. Svo
erum við með göngufótbolta en
þar er bannað að hlaupa. Þetta er
ný grein sem er aðeins að kom
ast af stað á landinu en það hefur
ekki verið mikið keppt í þessu. Ég
á von á gömlum fótboltakempum
sem munu bara rölta svolítið hratt
og verða þá ekki í neinum skriðtæk
lingum eða að togna aftan í læri eða
eitthvað slíkt. Maður þarf kannski
aðeins að stilla sér í hóf þegar mað
ur er komin yfir fimmtugt en þetta
verður mjög skemmtilegt. Við höf
um svo oftast boðið upp á greinar
þar sem allir geta tekið þátt óháð
aldri. Þannig við verðum með svo
kallaðan Flandrasprett innanbæjar
hér í Borgarnesi sem er 5 km hlaup
og opið öllum aldri. Svo verðum við
með utanvega hjólreiðakeppni og er
sú keppni einnig opin fyrir alla.“
Sérstakar keppnis-
greinar eru í boði
Sérkennilegar keppnisgreinar eru á
dagskrá eins og pönnukökubakstur
og stígvélakast. „Pönnuköku
baksturinn er bara rótgróinn frá
því í gamla daga. Við höfum haldið
honum inni fyrir skemmtanagildið
þó það séu ekkert rosalega margir
keppendur í greininni en þetta er
mjög áhorfendavænt. Fólki finnst
þetta skemmtilegt, þetta er öðruvísi
og við viljum halda þessum starfs
greinum inni sem lifa frá því í gamla
daga. Þá var líka keppt í að leggja á
borð og í dráttarvélaakstri, það hef
ur stundum verið keppt í dráttavéla
akstri á landsmótinu en núna ætlum
við að vera bara með pönnuköku
baksturinn sem verður í Hjálma
kletti.“
Að dæma
pönnukökubakstur
Blaðamanni lá forvitni á að vita
hvaða þættir eru dæmdir í pönnu
kökubakstri. „Ég næ eiginlega alltaf
að troða mér inn sem dómari í
pönnukökubakstrinum. Þú fram
leiðir ákveðið magn sem beðið er
um, svo er dæmt hvernig þú berð
þig að og hvort það sé snyrtilegt
í kringum þig. Svo er auðvitað
bragðið, áferðin á pönnukökunum
og hvernig þær eru brotnar saman.
Þú átt að rúlla ákveðið mörgum
pönnukökum upp og brjóta ákveðið
margar saman eins og það sé rjómi í
þeim en það er reyndar ekki rjómi.
Svo eru sumir keppendur að nota
eitthvað leyni innihald eins og
sítrónudropa eða kardimommu
dropa. Það er oft þannig að sá sem
er með frumlegasta leyni innihaldið
vinnur. Það eru komnar einhverj
ar skráningar í þetta svo það verður
spennandi að sjá hvernig þetta fer.“
Lítið tjaldsvæði
en gott veður
Brákarhátíð er einnig haldin í
Borgar nesi um næstu helgi svo
búist er við mannfjölda í bænum
þessa helgi. Í Borgarnesi eru þrjú
stór hótel, nokkur minni og gott
úrval er af gististöðum víðs vegar
í Borgarfirðinum. Sigurður telur
gistimöguleika þess vegna góða en
tjaldsvæðið í Borgarnesi er frekar
lítið. „Við krossum fingur með
tjaldsvæðið. Ef það springur, sem
ég vona að gerist, þá eru tjaldsvæði
annars staðar í Borgarfirði sem fólki
verður þá bara bent á. Það verður
rosalega gott veður þessa helgi, það
er búið að ákveða það. Það verður
bongóblíða eins og er alltaf þegar
50+ er haldið. Fólk verður hérna á
stuttbuxum og stuttermabolum og
skemmtir sér frá morgni til kvölds,“
segir Sigurður öruggur með gott
veður.
Félagslegi hlutinn
stærstur
Sigurður segir Landsmótið ekki
síður hafa félagslegan tilgang en
íþróttirnar séu til að hafa gaman af.
Kótelettukvöld verður svo í Hjálma
kletti á laugardagskvöldinu sem er
opið öllum. „Fólk sem er komið á
þennan aldur er alveg með keppnis
skap en stærsti hlutinn af þessu er
bara að hafa gaman. Á laugardags
kvöldinu er hátíð í Hjálmakletti þar
sem fólk getur skráð sig í kótelettu
veislu og skemmtiatriði verða í
boði. Það er hefð á 50+ mótunum
að það sé flott samkvæmi þar sem
allir keppendur og gestir geta skráð
sig og verið með. Þannig það er
ótrúlega skemmtileg viðbót á þess
um mótum en það verður svo dans
að og tjúttað fram á kvöld.“
Keppnisgreinum
dreift um bæinn
Mótið verður að mestu haldið við
íþróttamiðstöðina í Borgarnesi en
einnig verður keppt í golfi á gólfvell
inum við Hamar og Hjálmaklettur
nýttur undir pönnukökubakstur,
bridds og skák. „Við erum ekki að
dreifa mótinu mikið. Á íþróttavell
inum verður frjálsíþróttamótið og
fótboltinn. Sundið verður í sund
lauginni. Ringo, körfubolti og bot
sía verður í íþróttahúsinu. Yngri
hópurinn er svolítið í boltaíþrótt
unum, sundi og golfinu en eldri
hópurinn í pútti og ringo. Gam
an er að segja frá því hvað púttið er
stórt í Borgarbyggð. Ótrúlega stór
hópur sem hefur staðið sig vel og
náði að halda sér í gangi þrátt fyrir
Covid. Aðrir hópar á landinu duttu
bara niður en hérna náði hópurinn
einhvern veginn að halda dampi.
Þau hafa verið að keyra til Mos
fellsbæjar til að æfa sig. Það er svo
mikil vægt að halda dagskránni á
þessum aldri, annars er svo erfitt að
ná sér af stað aftur.“
Frábær íþróttaaðstaða í
Borgarnesi
Sigurður segir Borgarnes vanta
bætta íþróttaaðstöðu en aðstaðan
henti engu að síður vel fyrir mót
af þessari stærð. „Aðstaðan hérna
í Borgarnesi er náttúrulega bara
frábær til að halda svona mót. Það
passar bara allt, hér er allt til alls og
öll aðstaða er til fyrirmyndar. Við
þurftum að vísu að útbúa púttvöll.
Þannig að það var rosalega flottur
púttvöllur útbúinn á Hamarsvelli.
Það er kannski eina viðbótin sem
þurfti að fara í. En annars erum við
bara að nota sömu aðstöðu og var
notuð árið 1997 hér. Þó við vilj
um bætta íþróttaaðstöðu þá hent
ar þessi aðstaða vel undir þetta mót.
Vinnuskólinn og áhaldahúsið hjá
Borgarbyggð hafa verið að snyrta
bæinn fyrir 17. júní, Brákarhátíð og
50+ mótið svo bærinn mun glansa
og skarta sínu fegursta þessa helgi,“
segir Sigurður sannfærður um að
vel snyrtur bærinn muni iða af lífi í
fallegu veðri um næstu helgi. sþ
Hluti púttara í Borgarnesi mætti í húsakynni UMSB til að skrá sig á mótið þegar
blaðamaður ræddi við Sigurð. Púttið er vinsæl íþrótt í Borgarbyggð og margir af
fremstu pútturum landsins þar að finna.
Sigurður Guðmundsson, fyrrum framkvæmdastjóri UMSB, skipuleggur mótið. Hér stendur hann við minnisvarða þeirra
landsmóta sem haldin hafa verið í Borgarnesi. Kominn er nýr, auður minnisvarði sem merktur verður Landsmóti 50+ 2022.