Skessuhorn - 22.06.2022, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 202218
Pennagrein
Brúin starfshópur um forvarnir,
mennta, og menningarsvið og vel
ferðar og mannréttindasvið Akra
neskaupstaðar vill brýna fyrir for
eldrum og þeim sem fara með for
sjá barna mikilvægi aðhalds yfir
sumartímann.
Forvarnarhlutverk for-
eldra og forsjáraðila
Þá er enn einu skólaárinu að ljúka.
Skólaárið einkenndist af samkomu
takmörkunum vegna Covid fram
an af en á vorönn hefur skóla og
frístundastarfið verið að komast í
fyrra horf. Rannsókn sem börn og
unglingar í 8.10. bekk grunnskól
anna á Akranesi svöruðu í febrúar
2022 bendir til þess að þau séu að
standa sig afar vel á flestum svið
um þrátt fyrir óvenjulegar aðstæð
ur. Góður árangur í heilsuefl
ingar og forvarnarstarfi síðustu
áratuga hefur meðal annars náðst
með samstöðu foreldra. Nú eft
ir að samkomutakmörkunum hef
ur verið aflétt er mikilvægt að halda
vel utan um börnin og foreldrar og
aðrir umönnunaraðilar myndi þétt
net.
Við viljum brýna foreldra/for
sjáraðila leik og grunnskólabarna á
Akranesi í mikilvægu forvarnarhlut
verki sínu. Það eru ýmsar hættur
sem geta fylgt ævintýrum sumarsins
þegar börn og unglingar hafa jafn
an aukinn frítíma. Mikilvægt er að
foreldrar leikskólabarna og barna
í yngri bekkjum grunnskóla kynni
sér verndandi þætti í lífi barna og
unglinga, ekki síður en foreldrar
eldri barna.
Hér viljum við benda á mikil
væga verndandi þætti:
• Samvera foreldra og barna.
• Nægur svefn.
• Foreldrar sýni umhyggju og
setji skýr mörk.
• Foreldrar þekki vini barna
sinna og foreldra þeirra.
• Þátttaka barna í skipulögðu
frístundastarfi.
• Virða útivistartíma.
• Skýr afstaða gegn neyslu
áfengis, vímuefna, tóbaks,
nikótínpúða, rafretta og
koffín drykkja.
• Samstarf, traust og þátttaka
í foreldrastarfi, t.d. bekkjar
samningum, foreldraráðum og
foreldrarölti.
• Þetta eru þættir sem foreldrar
þurfa að hafa í heiðri í uppeldi
barna á öllum aldri.
Rannsóknir sýna að helstu áskor
anir sem við stöndum frammi fyrir
eru til að mynda útivera barna eftir
að lögbundnum útivistartíma lýk
ur og að færri börn meta andlega
heilsu sína góða eða mjög góða.
Börnum fjölgar sem telja sig ekki
fá nægan svefn og mikilvægt er að
fylgja eftir reglum og koma sér
saman um viðmið um snjall tækja
og tölvunotkun barna. Það er sam
merkt öllum samfélagsmiðlum að
aldurstakmark er að minnsta kosti
13 ár. Mikilvægt er að virða þau
aldurstakmörk og koma þannig
í veg fyrir að börnin okkar séu í
heimi sem þau hafa hvorki þroska
né aldur til. Leyfum börnunum á
öllum aldri að taka þátt í ævintýr
um sumarsins með okkur, ræðum
við þau og takmörkum skjánotkun.
Ölvun unglinga í 10. bekk hefur
minnkað töluvert frá því í febrúar
2021 og kannabisneysla sömuleiðis.
Niðurstöður rannsókna R&G sýna
að neysla á nikótínpúðum og orku
drykkjum sem innihalda koffín er
of mikil sem er áhyggjuefni.
Rannsóknir sýna jafnframt að
töluvert er um klámáhorf barna
sem og nektarmyndasendingar og
mikilvægt er að spyrna gegn þessu
með öllum ráðum.
Rannsóknir sýna að með vernd
andi þættina að leiðarljósi þá getum
við í sameiningu tekist á við stórar
áskoranir með góðum árangri.
Með sumarkveðju,
Brúin, starfshópur um forvarnir,
mennta,- og menningarsvið og vel-
ferðar- og mannréttindasvið
Akraneskaupstaðar.
Verndum börnin og
unglingana okkar í sumar
Nemendur í Grunnskóla Borgar
fjarðar, Hvanneyrardeild, héldu
fjáröflun og buðu flóttafólki frá
Úkraínu, sem nú heldur til á Bif
röst, á hestbak í síðustu viku. Á
hverju ári standa nemendur fyr
ir slíku verkefni þar sem þeir selja
m.a. jólakort og rennur ágóðinn
til styrktar góðu málefni í samfé
laginu. Í ár völdu krakkarnir að
styrkja fólkið frá Úkrainu á Bifröst.
Tókst krökkunum að safna góðum
pening en í heildina söfnuðust um
100 þúsund krónur. Í samstarfi við
Guðrúnu Fjeldsted á Ölvaldsstöð
um í Borgarhrepp tókst að bjóða
60 manns á hestbak. Guðrún, eða
Gunna eins og hún er oftast köll
uð, segir þetta yndislegt verkefni
og gaman að upplifa þakklætið sem
skín af úkraínska fólkinu.
60 manns vilja komast á
hestbak hjá Gunnu
,,Þetta er hópur númer tvö núna og
ég tek tíu manns í einu. Ég dreifi
þeim á þá daga sem ég er ekki upp
tekin og er að vinna í því núna að
koma þeim öllum að í rólegheitum.
Það verður sér hópur fyrir krakk
ana þar sem verður kannski meira
teymt undir og svona. Krakkarnir á
Hvanneyri söfnuðu þessum hund
rað þúsund krónum og Heiðrún,
verkefnisstjóri hjá Borgarbyggð,
hringdi í mig og spurði hvort ég
myndi gera þetta fyrir þann pening
sem ég sagðist að sjálfsögðu myndi
gera. Það er bara æðislega gaman
að gera þetta fyrir þetta fólk. Ég
sé hvað það er mikil upplifun fyr
ir þau og ánægja hjá þeim að fara
út í ána og ríða yfir vatnið, horfa
yfir til Hvanneyrar og umgangast
skepnur. Sumir virðast samt vanari
skepnum en aðrir. Eina sem er að
það er svolítið erfitt að tala við þau,
en allir gera sitt besta. Okkur tekst
þetta öllum saman,“ segir Gunna.
Fórum óörugg af stað
Blaðamaður talaði við úkraínska
hópinn, með aðstoð túlks úr hópn
um, en öll voru þau hæstánægð
með reiðtúrinn og greinilegt að
vatnið stóð upp úr, eins og Gunna
sagði. ,,Okkur fannst þetta öllum
gaman að sjálfsögðu. Þetta var bara
yndislegt, alveg frábært og sérstak
lega í þessu landslagi. Sum okkar
hafa farið á hestbak í Úkraínu og
eru vön hestum en flest erum við
óvön því að umgangast hross. Það
sem stóð upp úr var þegar við fór
um yfir ána, það var æðislegt. Við
stoppuðum svolítið þar til að taka
myndir.“ Ekkert þeirra sagðist hafa
verið hrætt við að detta af baki
nema kannski einn og einn fyrst
þegar haldið var af stað. Hlægjandi
sögðust þau svo hafa komið til baka
eins og atvinnumenn á hestbaki.
Reiðskólinn
fullsetinn í sumar
Gunna rekur reiðskóla á Ölvalds
stöðum og hefur gert í fjölmörg ár.
Hún segir mikla aðsókn í reiðskól
ann í sumar. ,,Reiðskólinn er full
ur í sumar. Ég verð með sirka átta
námskeið yfir sumarmánuðina. Ég
er farin að taka tvær vikur í einu
fyrir reiðnámskeiðin og svo tek
ég mér frí í eina viku á milli nám
skeiða. Ég er búin að klára eitt
námskeið þetta sumarið og fæ til
mín krakka alls staðar að. Ég er
með um 18 hross sem ég nýti í
þetta sem eru þæg og góð. Í hópa
eins og þennan frá Úkraínu er ég
bara með mína bestu og þægustu
hesta. Svo er líka svolítið af hóp
um með vanari mannskap. Ég
fæ til dæmis til mín hópa í sum
ar þar sem eldra fólk með barna
börn kemur og það eru fjórar svo
leiðis ferðir sem koma í sum
ar, 22 í hverjum hóp. Það eru til
dæmis ömmur og afar sem búa
kannski annars staðar í heiminum
en barnabörnin og hafa aldrei var
ið tíma með afkomendum sínum.
Þessir hópar hafa komið til mín
áður og það eru mjög rólegir og
yndislegir hópar, bara eldra fólk að
njóta lífsins með barnabörnunum
sínum,“ segir Gunna.
sþ
Nemendur í Hvanneyradeild GBF buðu fólki
frá Úkraínu á hestbak
Riðið heim í hlað eftir vel heppnaðan reiðtúr. Guðrún Fjeldsted.
Vinsælt var að mynda sig með hestunum.
Hópurinn kátur með Gunnu fyrir miðju.
Gunna gaf hópnum bækling um
íslenska hestinn.