Skessuhorn - 22.06.2022, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 202222
Áttu gæludýr?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Leikskólanum Hraunborg
á Bifröst)
Haukur Axel Ólafsson, 4ra ára.
,,Nei en ég á lömb og hesta! Og
gemlinga og kindur og hrúta en
það er búið að klippa hornin á
hrútunum.“
Maron Veigar Franklínsson,
6 ára.
,,Já ég á kisu, hún heitir Rjómi.“
Jóhann Storm Bernharðsson,
3ja ára.
,,Jább! Bellu.“
Mariana Areias Rocha, 5 ára.
,,Mig langar í svarta kisu og kan
ínu.“
Embla Adamsdóttir, 3ja ára.
,,Já! Ég á voffa!“
Íþróttamaður vikunnar
Í þessum lið í blaðinu leggjum
við fyrir tíu spurningar til íþrótta
manna úr alls konar íþróttum á öll
um aldri á Vesturlandi. Íþrótta
maður vikunnar að þessu sinni
er knattspyrnumaðurinn Grétar
Jónatan frá Búðardal.
Nafn: Grétar Jónatan Pálmason
Fjölskylduhagir? Bý í Búðar
dal með foreldrum mínum Pálma
Jóhannssyni og Önnu Sigríði
Grétars dóttur og systkinum mín
um þeim Jóhönnu Vigdísi og
Dalmari Loga.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Fótbolti og vinir mínir.Hvernig
er venjulegur dagur hjá þér um
þessar mundir? Þeir eru mismun
andi, stundum vakna ég snemma
og fer og rukka tjaldsvæðin, stund
um sef ég út. Fer á Akranes á fót
boltaæfingu, rukka tjaldsvæðin á
kvöldin og/eða vinn á pizzastaðn
um. Fer í körfubolta eða fótbolta
með krökkunum á kvöldin. Enginn
dagur er eins.
Hverjir eru þínir helstu kost-
ir og gallar? Ég er yfirleitt frekar
hress og kátur en get verið latur að
ganga frá.
Hversu oft æfir þú í viku? Við
erum þrír héðan úr Búðardal að
fara á æfingar á Akranes og við
reynum að fara tvisvar til þrisvar
í viku. En svo eru æfingar líka
hérna sem við mætum á þannig
að kannski eru þetta þrjú til fimm
skipti í viku.
Hver er þín fyrirmynd í íþrótt-
um? Christiano Ronaldo.
Af hverju valdir þú knattspyrnu?
Því það er besta íþróttin.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Pabbi minn.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Skemmtilegast að spila en upp
hitunin er leiðinlegust.
Yfirleitt frekar hress og kátur
Sumarmót Sundsambands Íslands
fór fram í Ásvallalaug í Hafnar
firði um helgina. Þar mætti besta
sundfólk Íslands til keppni. Mótið
eru fyrir stelpur 15 ára og eldri og
stráka 16 ára og eldri. Sundfélag
Akraness var með tíu keppendur á
mótinu sem allir syntu vel og urðu
í fjórða sæti í stigakeppninni. Fimm
Akranesmet féllu um helgina; tvenn
gullverðlaun, fimm silfur, eitt brons
og 19 persónuleg met var uppskera
helgarinnar.
Einar Margeir varð annar stiga
hæsti sundmaðurinn í unglinga
flokki á mótinu, Enrique Snær
fimmti í fullorðins flokki og Guð
björg Bjartey fjórða í unglinga
flokki kvenna. Enrique Snær hlaut
gullverðlaun í 200m og 400m fjór
sundi og silfur í 400m skriðsundi.
Einar varð annar í 200m fjórsundi,
50m bringusundi og 100m flug
sundi. Guðbjörg Bjartey hlaut silf
ur í 100m flugsundi. Guðbjarni var
þriðji í 200m skriðsundi.
Akranesmet féllu
Enrique Snær bætti Akranesmet
í 200m fjórsundi sem hann sjálfur
átti frá því í fyrra um 2 sekúndur,
Körfuknattleiksdeild ÍA hef
ur gert tveggja ára samning við
Nebosja Knezevic sem þjálfara
meistaraflokks karla og mun hann
stýra liðinu í 2. deildinni á kom
andi tímabili. Ásamt því að þjálfa
meistaraflokk karla mun Nebosja
einnig sjá um yngri flokka þjálf
un. Nebosja kemur til ÍA frá
Skallagrími þar sem hann þjálfaði
meðal annars meistaraflokk kvenna
áður en liðið var lagt niður á miðju
tímabili síðasta vetur. Þar á undan
þjálfaði hann yngri flokka á Ísafirði
í fimm ár með afar góðum árangri.
Í frétt á FB síðu Körfuknattleiks
félags ÍA segir að stjórn deildarinn
ar beri miklar væntingar til sam
starfsins við Nebosja og að reynsla
hans og metnaður muni skila lið
um ÍA aftur í fremstu röð á næstu
árum. vaks
Saga Traustadóttir úr GKG og Sig
urður Bjarki Blumenstein úr GR
eru Íslandsmeistarar í holukeppni í
golfi. Úrslitin réðust á sunnudaginn
á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Þetta er í
annað sinn sem Saga fagnar þessum
titli en fyrsti titill Sigurðar Bjarka á
GSÍ mótaröðinni.
Pamela Ósk Hjaltadóttir GM
varð önnur í kvennaflokknum og
Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK
varð þriðja. Kristófer Orri Þórðar
son GKG varð annar í karlaflokkn
um og Kristján Þór Einarsson GM
varð þriðji.
mm/ Ljósm. Golfsamband Íslands
Nebosja Knezevic ásamt Birki Guðjónssyni stjórnarmanni.
Ljósm. af FB síðu Körfuknattleiksfélags ÍA.
ÍA gerir samning við
nýjan þjálfara í körfunni
Íslandsmeistarar
í holukeppni
Tóku þátt í Sumarmóti SSÍ
nýja metið er 2.11.13. Einar Mar
geir setti nýtt Akranesmet í 200m
fjórsundi í piltaflokki á tímanum
2.13.00 en gamla metið átti Hrafn
Traustason á 2.14.77 frá 2009.
Hann bætti líka metið í sama flokki
í 100m flugsundi um rúma sekúndu
þegar hann synti á 59.83, hann átti
sjálfur metið frá því fyrr á árinu.
Guðbjarni bætti svo metið í 200m
skriðsundi í piltaflokki (1517 ára)
á tímanum 2.02.07. Gamla metið
átti Einar Margeir á 2.02.44 frá því
í mars.
Í 4x100m skriðsundi í blönduð
um flokki bætti svo Einar Mar geir,
Guðbjarni, Guðbjörg Bjartey og
Ingibjörg metið í bæði fullorðins
flokki og unglingaflokki þegar
þau syntu á 3.58.66. Gamla metið
áttu þau Atli Vikar, Una Lára, Júl
ía Björk og Ágúst frá árinu 2014 á
4.05.12.
kw
Guðbjarni varð þriðji í 200m skrið-
sundi.
Einar og Enrique í efstu sætum í 200m fjórsundi.
Guðbjörg Bjartey vann til silfurverðlauna í 100m flugsundi.
Lína Ósk Traustadóttir, 5 ára.
,,Já hundurinn minn heitir
Gloria, hún er svört og hvít.“