Skessuhorn - 29.07.2022, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 20222
Næstu útgáfur
SKESSUHORN: Skessu-
horn kemur út samkvæmt
venju næsta miðvikudag, 27.
júlí. Eftir það fer allt starfs-
fólk í viku sumar leyfi og
kemur því ekki út blað mið-
vikudaginn 3. ágúst. Þann
dag kemur hins vegar starfs-
fólk úr fríi og undirbýr
útgáfu blaðs 10. ágúst. - mm
Hallbera leggur
skóna á hilluna
AKRANES: Skagakonan
Hallbera Guðný Gísladótt-
ir hefur ákveðið að leggja
knattspyrnuskóna alfar-
ið á hilluna. Þetta tilkynnti
hún á Instagram síðu sinni
en Hallbera er 35 ára göm-
ul og var að spila á sínu
þriðja stórmóti með lands-
liði Íslands á EM. Hallbera
er fædd og uppalin á Akra-
nesi og hóf feril sinn með
ÍA áður en hún gekk til liðs
við Val árið 2005. Hún spil-
aði 341 leik í deild og bik-
ar með ÍA, Val og Breiða-
bliki og skoraði alls 73 mörk.
Hallbera vann sjö Íslands-
meistaratitla á ferlinum, þar
af sex með Val og einn með
Breiðabliki. Þá vann hún
fjórum sinnum bikarinn með
Val og einu sinni með Blik-
um. Hallbera lék á ferlinum
einnig með Kalmar, Piteå,
Djurgården og AIK í Svíþjóð
og eitt tímabil með ítalska
félaginu Torres. „Einhvern
tímann þarf allt að taka enda
en leikurinn í kvöld var minn
síðasti á ferlinum. Frá mín-
um dýpstu hjartarótum Takk
fyrir mig,“ skrifaði Hallbera
á Instagram. -vaks
Tafir og lokanir
við götur
AKRANES: Á mánudaginn
hófu verktakarnir Emkan
ehf. störf við viðhald gatna á
Akranesi. Einhverjar tafir og
lokanir geta orðið á meðan á
vinnu stendur. Fram kemur
á vef Akraneskaupstaðar að
þær götur sem verður gert
við eru Asparskógar, Garða-
braut, Garðagrund, Jör-
undarholt, Ketilsflöt, Still-
holt og Ægisbraut. Nánari
lýsingu á hverjum verkþætti
má sjá á vef bæjarins. -vaks
Bæjarhátíðir á Vesturlandi
halda áfram. Um helgina fer
fram Hinseginhátíð Vestur-
lands í Snæfellsbæ og Á góðri
stund í Grundarfirði og vafa-
lítið verður mikið fjör. Þá verð-
ur Reykholtshátíð haldin þar
sem unnendur klassískrar tón-
listar fá að njóta sín í fögru
umhverfi. Það er því nóg um
að vera.
Á fimmtudag má gera ráð fyr-
ir suðvestlægri eða breyti-
legri átt, 3-8 m/s. Dálítil rign-
ing sunnan til, en annars skýj-
að með köflum og stöku skúrir.
Hiti 9 til 14 stig. Á föstudag og
laugardag má búast við fremur
hægri breytilegri átt eða haf-
golu. Skýjað verður með köfl-
um og líkur á skúrum, einkum
síðdegis. Hiti 9 til 16 stig yfir
daginn. Á sunnudag og mánu-
dag er útlit fyrir norðlæga eða
breytilega átt, skýjað verður
með köflum og sums staðar
smáskúrir. Hiti breytist lítið.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hvað á að gera
um verslunarmannahelgina?“
Meira en þriðjungur, eða 36%
sagðist ætla að vera í kósý-
heitum heima, 20% hafa ekki
enn ákveðið það, 17% sögð-
ust verða að vinna, 12% ætla í
sumarbústað eða á hótel, 6%
sögðust ætla að splæsa í ferð
til útlanda, 5% ætla í útilegu
en aðeins 2% sögðust stefna á
útihátíð.
Í næstu viku er spurt:
Hvaða útivist stundar þú
mest á sumrin?
Í Skessuhorni í dag er m.a. rætt
við Einar Þór Strand í Stykkis-
hólmi um líf hans og reynslu
við björgunarstörf og hvernig
sé fyrir viðbragðsfólk að vinna
úr þeim áföllum sem stundum
fylgja verkefnum þeirra. Einar
Þór er Vestlendingur vikunnar
að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Kolfinna Jóhannesdóttir hefur ver-
ið skipuð í embætti skólameist-
ara Kvennaskólans í Reykjavík frá
1. ágúst nk. Kolfinna starfaði sem
sviðsstjóri greiningarsviðs Mennta-
málastofnunar 2018–2022 og sér-
fræðingur á sviði framhaldsskóla-
mála og teymisstjóri framhalds-
skóla- og velferðarmála hjá stofn-
uninni 2016–2018. Hún var skóla-
meistari Menntaskóla Borgarfjarð-
ar 2011–2014 þegar hún tók við
starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar
sem hún gegndi til ársins 2016.
Kolfinna er með háskólapróf
í rekstrarfræðum frá Samvinnu-
háskólanum á Bifröst, BS gráðu í
viðskiptafræði og MA gráðu í hag-
nýtum hagvísindum frá Viðskipta-
háskólanum á Bifröst. Hún er jafn-
framt með diplómu í kennslufræði
frá Háskólanum í Reykjavík,
diplómu í menntaforystu og stjórn-
un frá Háskólanum í Nottingham.
Hún hefur stundað doktorsnám á
sviði menntavísinda frá árinu 2016,
fyrst við Háskólann í Nottingham
og síðan við Menntavísindasvið
Háskóla Íslands.
mm
Guðlaugur Þór Þórðarson
umhverfis-, orku- og loftslagsráð-
herra hefur skipað þriggja manna
starfshóp til að gera tillögur til
ríkisstjórnarinnar varðandi nýt-
ingu vindorku, þ.á.m. um lagaum-
hverfi hennar og hvernig verði tek-
ið á ýmsum álitamálum. Starfs-
hópinn skipa Hilmar Gunnlaugs-
son, hrl., formaður, en auk hans eru
Björt Ólafsdóttir, fyrrv. ráðherra
umhverfis- og auðlindamála og
Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrv.
alþingismaður í hópnum. Starfs-
hópurinn á að skila tillögum sínum
til ráðherra fyrir 1. febrúar 2023.
Í sáttmála ríkisstjórnarinnar seg-
ir að setja skuli sérstök lög um nýt-
ingu vindorku með það að mark-
miði að einfalda uppbyggingu vind-
orkuvera til framleiðslu á grænni
orku. Áhersla verði lögð á að vind-
orkuver byggist upp á afmörkuð-
um svæðum nærri tengivirkjum og
flutningslínum, svo unnt verði að
tryggja afhendingaröryggi og lág-
marka umhverfisáhrif. Tekið er
fram að mikilvægt sé að breið sátt
ríki um uppbyggingu vindorku-
vera og tillit sé tekið til sjónrænna
áhrifa, dýralífs og náttúru; einnig
að taka verði afstöðu til gjaldtöku
fyrir slíka nýtingu.
Hlutverk starfshópsins verður að
skoða og gera tillögur til ráðuneyt-
isins um hvernig ofangreindum
markmiðum verði náð. Gert er ráð
fyrir að starfshópurinn fari ítarlega
yfir lög nr. 48/2011, um verndar-
og orkunýtingaráætlun, að því er
varðar meðhöndlun og málsmeð-
ferð vindorku yfir 10 MW innan
rammaáætlunar; auk lagafrumvarps
og þingsályktunartillögu sem lögð
voru fram 2021 um staðsetning
vindorkuvera í landslagi og náttúru
Íslands.
Þegar er hafin vinna við lög-
fræðilega úttekt á samanburði á
lagaumhverfi vegna vindorkuvera
í nokkrum löndum. Þar er eink-
um um að ræða Noreg, Danmörk,
Skotland og Nýja Sjáland, þar sem
aðstæður eru með líkum hætti og
hérlendis við hagnýtingu vindorku,
auk þess sem greindir verða helstu
þættir í regluverki fleiri ríkja. Hinn
nýskipaði starfshópur mun fá niður-
stöður þessarar úttektar til afnota,
þegar þær liggja fyrir og getur nýtt
þær við vinnslu á tillögum sínum.
Að loknu mati og greiningu á við-
fangsefninu er starfshópnum ætlað
að vinna drög að lagafrumvarpi á
grundvelli niðurstaða sinna.
mm
Bátur sökk á Breiðafirði
Snemma á miðvikudagsmorgun í
síðustu viku sökk plastbáturinn Villi
Björn SH-148 á miðjum Breiða-
firði og maraði þar í hálfu kafi eins
og meðfylgjandi mynd sýnir. Tve-
ir menn, feðgar, voru um borð og
komust þeir báðir heilu og höldnu
yfir í nærliggjandi bát; Hvítá HF
sem Guðlaugur Jónsson stýrði.
Neyðarkall barst Landhelgis-
gæslunni klukkan 7:20 og til-
kynnt að mikill leki væri kom-
inn að bátnum og að dælur hefðu
ekki undan. Einungis sex mínút-
um síðar hafði Guðlaugur Jóns-
son á Hvítánni komið feðgunum
til bjargar. Hann segir að feðgun-
um hafi vissulega verið brugðið en
óhappið hafi orðið á besta stað við
góðar aðstæður þar sem fjöldi báta
var að veiðum í nágrenninu. „Ég
var nýbúinn að sigla fram hjá þeim og nýbúinn að setja færin niður.
Svo heyri ég neyðarkallið og kippi
færunum strax um borð. Þá kalla
þeir aftur og er báturinn þá kominn
á hliðina og ég kem til þeirra. Þá
liggur báturinn á hliðinni og þeir
uppi á stýrishúsinu. Ég byrja auð-
vitað á að passa mig á því að það sé
ekkert drasl í sjónum, upp á að fá
ekki í skrúfuna. Ég stefni svo upp
að bátnum og þeir hoppa um borð
til mín.“ Þannig lýsir Guðlaugur
giftusamlegri björgun feðganna.
mm
Hér er báturinn nær sokkinn. Ljósm. gj.
Kolfinna ráðin skólameistari Kvennaskólans
Starfshópi ætlað að móta
tillögur um beislun vindorku
Villi Björn
SH-148.
Ljósm. úr
safni/ af.